
2 minute read
Endurkröfur á tjónvalda
Samþykktar endurkröfur á tjónvalda í umferðinni námu alls tæpum 143 milljónum króna árið 2020 og tæpum 96 milljónum árið 2019 að því fram kemur í tilkynningu frá endurkröfunefnd. Ölvun tjónvalds hefur jafnan verið algengasta ástæða endurkröfu en endurkröfur vegna lyfjaáhrifa tjónvalda, einkum vegna ávana- og fíkniefna, hefur fjölgað hlutfallslega á undanförnum árum.
Fram kemur að endurkröfunefndinni bárust 130 mál til úrskurðar árið 2020 og samþykkti hún 119 þeirra að einhverju leyti. Árið 2019 voru málin aðeins færri, eða 126, og samþykkti nefndin 114 endurkröfur að einhverju leyti.
Hæstu endurkröfurnar árið 2019 námu um 5,5 milljónum króna, 5 milljónum króna og sú tæpumr 4,3 milljónum króna. Alls voru 42 endurkröfur hærri en kr. 500.000 árið 2019. Tvær hæstu endurkröfurnar árið 2020 voru hvor um sig 6,5 milljónir króna, sú þriðja hæsta var 6 milljónir króna og hin fjórða tæpar 4,8 milljónir króna. Árið 2020 voru 56 endurkröfur hærri en 500.000 krónur. Árið 2008 skipaði þáverandi viðskiptaráðherra nefnd sem falið var að semja frumvarp til laga um ökutækjatryggingar sem kæmu í stað XIII. kafla gildandi umferðarlaga nr. 50/1987. Ákvæði um ökutækjatryggingar voru þannig færð í sérlög, nr. 30/2019. Endurkröfunefnd er skylt að taka saman skýrslu um störf sín, sbr. 3. mgr. 23. gr. reglugerðar nr. 1244/2019 um ökutækjatryggingar og afhenda hana fjármála- og efnahagsráðherra en afrit er jafnframt sent Fjármálaeftirlitinu, bifreiðatryggingafélögunum, FÍB og SFF að ákvörðun nefndarinnar.
Á síðastliðnum árum hefur fjöldi mála, sem komið hefur til kasta nefndarinnar frá ári til árs, jafnan
verið sveiflukenndur. Þannig verða endurkröfur ekki nema að nokkrum hluta raktar til tjónsatvika sem urðu á árinu þegar nefndin fékk viðkomandi mál til meðferðar. Oft hafa tjónin orðið a.m.k. einu eða tveimur árum áður. Þá liggur fyrir að félögin safna að jafnaði málum saman og senda þau nefndinni í bunkum. Í slíkum tilvikum getur orðið nokkuð tilviljanakennt hvorum megin áramóta málasendingarnar falla. Af þeim 114 málum þar sem endurkrafa var samþykkt 2019 voru 50 mál vegna ölvunar eða tæp 44%. Lyfjaáhrif var önnur algengasta ástæða endurkröfu eða 46 og rúm 40% mála. Í 23 málum voru ökumenn endurkrafðir sökum réttindaleysis. Fjórir ökumenn fengu endurkröfu vegna ofsa- eða hættuaksturs og fjórir vegna stórfellds vanbúnaðar ökutækis eða farms þess.
Í samþykktu málunum 119 árið 2020 var mælt fyrir um endurkröfu vegna ölvunar í 69 málum eða í um 58% tilvika. Lyfjaáhrif var í öðru sæti með 67 tilvik eða í um 56% mála. Réttindaleysi ökumanns var ástæða endurkröfu í sex málum, tveir ökumenn lentu í heitu vatni vegna glæfra- eða hættuaksturs, einn vegna vanbúnaðar ökutækis og einn vegna brots á varúðarreglu og notkunar farsíma.
Fram kemur í tilkynningunni að ökumenn virðast almennt gera sér grein fyrir því að umferðarlagabrot ökumanna, svo sem ölvunarakstur, ofsa- og hættuakstur o.s.frv., geti haft í för með sér ökuleyfissviptingu og víta í formi sektar eða fangelsis. Þá sýnist fólk einnig nokkuð meðvitað um að eigið tjón tjónvalds, sem verður í slíkum tilvikum, þurfi tjónvaldur iðulega að bera sjálfur.
Þá segir að margir virðast hins vegar ekki átta sig á að afleiðingarnar fyrir brotlegan ökumann eru ekki tæmandi með þessu, heldur kunni vátryggingafélagið að eignast endurkröfurétt á hendur þeim sem tjóni olli af ásetningi eða af stórkostlegu gáleysi. Til að upplýsa almenning um þetta og í forvarnarskyni hefur endurkröfunefndin iðulega leitast við að koma á framfæri upplýsingum um störf sín við ýmsa aðila, þ.m.t. við fjölmiðla.