
6 minute read
Reynsluakstur: Nissan
Reynsluakstur
Nissan Qashqai
Nýr og mjög athyglisverður jepplingur af þriðju kynslóð Nissan Qashqai er kominn til landsins. Það er ekki ofsögum sagt að þessi bíll hefur verið eitt af flaggskipum japanska bílaframleiðandans frá því að hann kom fyrst á göturnar 2007. Um þrjár milljónir eintaka hafa selst frá upphafi í Evrópu.
Nýi bíllinn hefur nú þegar fengið góðar viðtökur hér á landi og í Evrópu. Mjög góð sala hefur verið á bílnum víðast hvar. Bíllinn hefur tekið töluverðum breytingum með hverri kynslóðinni en fæst eins og áður bæði fram- og afturhjóladrifinn. Qashqai hefur með tíð og tíma tekið miklum breytingum í útliti, í tæknibúnaði og meiri rými og þá alveg sérstaklega með nýjustu útgáfunni sem kom á markað fyrir skemmstu. Athygli vakti þegar hönnun bílsins hófst að ákveðið var að fara inn á nýjar brautir við hönnun hans. Skoðunarkönnun var sett á laggir á meðal eigenda Qashqai og þeir spurðir hvaða breytingar þeir vildu sjá við gerð hönnun bílsins. Þetta fékk góð viðbrögð hjá eigendum og var reynt að komast til móts við óskir þeirra eins og kostur var.
Í reynsluakstur var tekinn fjórhjóladrifinn bíll af gerðinni Tekna. Vélin er 158 hestafla 1.3 DIG-T bensínvél. Hún er með forþjöppu sem er boðin í tveimur útfærslum, annars vegar sex gíra beinskiptingu og hins vegar 7 gíra sjálfskiptingu og með fjórhjóladrif. Umræddar vélaútfærslur eru með mildari tvinntækni sem eykur eldsneytisnýtingu, snerpu úr kyrrstöðu og aðstoð upp brekkur til að lágmarka eyðslu og draga úr losun CO2 um 4g á ekinn km. Þessi vél kom fyrst fram á sjónarsviðið 2018 en hefur nú verið þróuð áfram með nýjum tæknilausnum til enn bættra afkasta og skilvirkni.
Acenta kemur aðeins framhjóladrifinn eins og áður. Tekna, Tekna+ og N-Connecta eru aftur á móti með fram- og afturhjóladrif. Allar útgáfurnar eru vel útbúnar, bæði með öryggi og þægindi í huga. Akstur á malarvegi var þægilegur og góð fjöðrun kom berlega fram. Bíllinn lá vel á veginum og aksturinn allur mjúkur og veitti ökumanni góða tilfinningu. Þetta kom glögglega fram í akstri á malarvegi.

Bíllinn býr einnig yfir nýjum og lengri undirvagni og hann er breiðari og yfirbyggingin hærri.
Útlitsbreytingar
Þessi kynslóð er með nokkrar útlitsbreytingar sem stinga og breyta bílnum töluvert. Má í því sambandi benda á framhlutann með nýja V-Motion grillið og C-laga díóðuljósin. Nudd er í framsætum en slíkt hefur ekki verið til staðar áður og afturhlerar eru með rafknúnum afturhlera með snertilausri opnun svo að eitthvað sé nefnt. Gott rými er í aftursætum og fer sérlega vel um farþega þegar fótarýmið er haft í huga. Bíllinn býr einnig yfir nýjum og lengri undirvagni og hann er breiðari og yfirbyggingin hærri. Þá er vert að geta þess að bíllinn er léttari en áður enda eru hurðar, frambretti og vélarhlíf úr áli í stað stáls. Athygli vakti breytingin með afturhurðina farþegamegin sem opnast nú um 90° sem er kostur út af fyrir sig.


Breytingar hafa verið gerðar á mælaborðinu en þar hefur verið komið fyrir 11“ framrúðuskjá með völdum upplýsingum. Við miðjustokkinn er nýr 9“ upplýsinga- og afþreyingarskjár með afar notendavænu viðmóti og samhæfingu við Android Auto og Apple CarPlay auk þess sem Google Street View er í boði og app í símann til að breyta stillingum bílsins úr fjarlægð.

Innrétting hefur tekið þó nokkrum breytingum.
Fjórar gerðir Qashqai
BL býður nýjan Nissan Qashqai í fjórum mismunandi búnaðarútfærslum: ríkulega búnu grunnútgáfunni Acenta, sem kostar frá 4.690.000, N-Connecta sem kostar frá 5.590.000, Tekna sem kostar frá 5.990.000 og loks Tekna+ sem kostar frá 6.290.000. Til dæmis um öryggisstaðalbúnað Acenta, sem ekki eru í fyrri árgerðum, má nefna sjálfvirka neyðarhemlun sem skynjar bíla, gangandi vegfarendur og hjól, vegaskiltisnema, akreinavara og -stýringu, neyðarbremsuaðstoð, aðvörun á hliðarumferð, blindhornaviðvörun, skynvæddan hraðastilli, sjálfvirka skiptingu milli háa og lága ljósageislans og bakkskynjara með árekstrarvara.
Nissan Qashqai er mörgum kostum gæddur. Þar sem greinarhöfundur er Qashqai–eigandi er þessi nýi bíll mjög álitslegur kostur í bílakaupum. Bíllinn er línulegur og ný hönnun hans hefur að mörgu leyti heppnast vel. Farþega- og farangursrými hefur aukist til muna sem er stórt skref í því að gera bílinn enn fjölskylduvænni en áður.
Jón Kristján Sigurðsson

Nissan Qashqai Tekna
Grunnverð: 4.690.000 kr. Afl: 158 hestöfl Rúmtak: 1.332 cc Tog: 270 nm Hámarkshraði: 198 km/klst. Eyðsla bl. ak: 6,2 l/100 km CO2: 158 g/km Farangursrými: 475 lítrar L/B/H: 4.425/2.084/1.625 mm Hjólhaf: 2.665 mm Eigin þyngd: 2.040kg Dráttargeta: 750/1800 kg.
Rými, aksturseiginleikar
Staðsetning margmiðlunarskjás
Heimsmarkaðsverð á eldsneyti hækkar skarpt
Nokkuð hefur verið um verðhækkanir hjá íslensku olíufélögunum á síðustu vikum og er verðið á bensíni nú 275 krónur á lítra á flestum þjónustustöðvum. Á sama tíma kostar lítrinn af dísilolíu víðast hvar um 255 krónur. Þessi verð í krónum á lítra eru þau hæstu sem sést hafa hér á landi síðustu áratugina og uppreiknað með vísitölu neysluverðs eru þarf að fara aftur til 2012 til að sjá sambærileg verð.
COVID-19 hefur haft mikil áhrif á eftirspurn á olíumarkaði. Miklar sveiflur hafa verið á heimsmarkaðsverði á seinustu tveimur árum en olía lækkaði mikið í verði þegar eftirspurn dróst víða saman í heimsfaraldrinum. Nú í haust tók verð að hækka verulega þegar aukið líf færðist í efnahagskerfi heimsins. Hækkun á eldsneyti kemur illa við neytendur og félagsmenn í FÍB. Sýnu verst er þessi hækkun gagnvart íbúum í dreyfðari byggðum sem hafa ekki aðgang að ódýrara eldsneyti líkt og er í boði á höfuðborgarsvæðinu vegna samkeppni við Costco og einnig á Akureyri. Það er mat Runólfs Ólafssonar, framkvæmdastjóra Félags íslenskra bifreiðaeigenda, FÍB, og Drífu Snædal, forseta Alþýðusambands Íslands, ASÍ, að stjórnvöld ættu að grípa í taumana vegna hækkandi eldsneytisverðs. Bæði hafa þau áhyggjur af hækkunum sem nú eru í gangi, hækkun olíuverðs sem kemur niður á lífskjörum almennings.
270 260 250 240 230 220 210 200 190 180 170 160 150 140 130 120 110 100 90 80 70 60 50 40 30 20 10
ÞRÓUN BENSÍNVERÐS Á ÍSLANDI FRÁ JANÚAR 2005 TIL OKTÓBER 2021
Útsöluverð - sjálfsafgreiðsla Innkaup með opinberum gjöldum Álagning, flutningskostn. o.fl. Skattar kr/l
til Héraðssaksóknara

Rannsókn Héraðssaksóknara á Procar-málinu er á lokastigi. Það er saksóknari hjá embætti Héraðssaksóknara sem fær málið til afgreiðslu. Mál þetta snýst í stuttu máli um að snemma árs 2019 viðurkenndu forsvarsmenn bílaleigunnar Procar að hafa skrúfað kerfisbundið niður kílómetrateljara í bílum sínum þegar þeir voru settir í sölu. Játningin kom í kjölfar útsendingar á fréttaskýringaþættinum Kveik þar sem fjallað var um þetta svikamál. Þar kom í ljós að margir höfðu orðið fyrir barðinu á svikunum. Héraðssaksóknari fékk málið til rannsóknar úr höndum lögreglu í lok maí 2019 vegna þess hve umfangsmikið það var. Upplýst var í Kveik að átt hefði verið kílómetrateljara í verulegum fjölda bíla og um langt árabil. Mismikið hafi verið undið ofan af kílómetrateljurum bílanna en í sumum þeirra um tugi þúsunda kílómetra.
FÍB-fréttir spurðust fyrir um það 20. september 2021 hvar málið væri statt og fékk svör um að það væri á lokastigi hjá embættinu. Rannsókninni, sem hefði verið mjög umfangsmikil, væri nú að mestu lokið og frágangur allur á lokastigi.
Samtök ferðaþjónustunnar vísuðu Procarleigunni úr samtökunum eftir umfjöllun Kveiks og bæði lögregla og Samgöngustofa hófu rannsókn á málinu. Hlutur Samgöngustofu í rannsókninni varð skammur því að stofnunin taldi sig ekki geta svipt bílaleiguna starfsleyfi vegna þess að valdheimildir hennar næðu ekki til endursölu ökutækja á markaði.
FÍB-blaðið 45
