FÍB Blaðið 3tbl. 2021

Page 50

Viðtal við Guðjón og Ólaf hjá Orku náttúrunnar

Höfum alla möguleika á því að verða fremstir í heiminum á þessu sviði Rafbílum á Íslandi fjölgar jafnt og þétt og hefur sala á þeim tekið töluverðan kipp á síðustu 2–3 árum. Það sem af er árinu eru tengiltvinnbílar flestir nýskráðra fólksbíla á Íslandi eða 24%. Rafbílar eru með 19,9% hlutdeild og tvinnbílar með 21,2% af markaðnum. Bensín- og dísilbílar eru samanlagt með tæplega 35% markaðshlutdeild. Þessi þróun á ekki aðeins við hér á landi heldur víðast hvar og þá alveg sér staklega í Evrópu. Nú er einn af fimm nýjum bílum í Evrópu raftengjanlegur og er helmingur þeirra um hreina rafbíla að ræða. Norðmenn hafa um allnokkra hríð verið leiðandi á þessum markaði. Hlutdeild nýorkubíla í Noregi 2020 var 74,8% og Ísland kom í öðru sæti með 45%. Alls seldust 1,4 milljónir rafbíla í Evrópu 2020. Allt eins er búist við að markaðshlutdeild í Evrópu tvöfaldist á þessu ári og nálgist því að verða um 15%.

Erum við í stakk búinn að mæta þessari þróun? Sú spurning hlýtur óneitanlega að vakna hvernig við erum í stakk búin að mæta þessari fjölgun. Orka náttúrunnar (ON) er einn af þeim aðilum sem bjóða upp á þjónustu til rafhleðslu og annarra þátta tengdum nýorkubílum. Samkeppnin á þessu sviði hefur aukist á þessu sviði á síðustu árum og fleiri aðilar hafa komið inn á markaðinn. ON hefur lagt mikinn metnað í að þétta hleðslunetið og auka þjónustu um allt land samfara aukinni notkun rafbíla. Félagið rekur og þjónustar hraðhleðslur við helstu þjóðvegi landsins þannig að viðskiptavinir geti hlaðið bíla sína á ferð um landið. ON býður upp á hleðslu rafmagnsbíla, bæði hraðhleðslu og hefðbundna hleðslu á höfuðborgarsvæðinu. Einnig er fyrirtækjum boðið upp á hleðsluleiðir fyrir viðskiptavini sína, uppsetningu, rekstur og þjónustu allan sólarhringinn, allt

árið. Í því felst einnig aðgengi að viðskiptakerfi fyrirtækisins og þar með greiðslukerfi. Þá er boðið upp á lausnir fyrir fjölbýlishús, veitt ráðgjöf bæði á sviði hleðslulausna og viðskiptakerfis. Þegar við á bendir fyrirtækið á tæknilega aðila sem geta sett upp og rekið stöðvar fyrir fjölbýli. ON býður upp á hleðslur frá því allt að 22 kW, 50 kW og 150 kW. Í hleðslustöðvum ON eru ýmist annaðhvort eða bæði hraðhleðslur (50kW og 150KW) og hleðslur (22kW). Fjölgunin í takt við það sem við sjáum og spáð hafði verið Guðjón Hugberg Björnsson, tæknistjóri hleðslulausna hjá ON, segir það blákalda staðreynd að rafmagnsbílum hefur fjölgað mikið á síðustu misserum. Í grunninn hefur hleðsla þannig séð ekki breyst mikið. Þær eru aftur á móti hraðari og stærri og ON er betur í stakk búið til að mæta aukinni eftirspurn. „Það eru breytingar í pípunum og spenna á rafhlöðum er að hækka úr 400 í 800. Við teljum okkur reiðubúin að mæta aukinni þörf og erum mjög spennt og jafmframt bjartsýn á framhaldið í þessum efnum. Fjölgun rafbíla er ekki beint að koma okkur á óvart og segja má að hún sé í takt við það sem við höfum verið að sjá og spáð hafði verið fyrir um. Þetta er almenn þróun sem er að eiga sér stað um alla Evrópu. Úr þessu stöðvar ekkert þessa þróun sem er mjög spennandi í alla staði. Þetta hefur auðvitað tekið tíma að komast á skrið en er núna að raungerast,“ segir Guðjón Hugberg Björnsson í spjalli við FÍB-blaðið.

50

FÍB-blaðið


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.