FÍB Blaðið 3tbl. 2021

Page 42

Reynsluakstur

Nissan Qashqai Nýr og mjög athyglisverður jepplingur af þriðju kynslóð Nissan Qashqai er kominn til landsins. Það er ekki ofsögum sagt að þessi bíll hefur verið eitt af flaggskipum japanska bílaframleiðandans frá því að hann kom fyrst á göturnar 2007. Um þrjár milljónir eintaka hafa selst frá upphafi í Evrópu. Nýi bíllinn hefur nú þegar fengið góðar viðtökur hér á landi og í Evrópu. Mjög góð sala hefur verið á bílnum víðast hvar. Bíllinn hefur tekið töluverðum breytingum með hverri kynslóðinni en fæst eins og áður bæði fram- og afturhjóladrifinn. Qashqai hefur með tíð og tíma tekið miklum breytingum í útliti, í tæknibúnaði og meiri rými og þá alveg sérstaklega með nýjustu útgáfunni sem kom á markað fyrir skemmstu.

42

FÍB-blaðið

Athygli vakti þegar hönnun bílsins hófst að ákveðið var að fara inn á nýjar brautir við hönnun hans. Skoðunarkönnun var sett á laggir á meðal eigenda Qashqai og þeir spurðir hvaða breytingar þeir vildu sjá við gerð hönnun bílsins. Þetta fékk góð viðbrögð hjá eigendum og var reynt að komast til móts við óskir þeirra eins og kostur var. Í reynsluakstur var tekinn fjórhjóladrifinn bíll af gerðinni Tekna. Vélin er 158 hestafla 1.3 DIG-T bensínvél. Hún er með forþjöppu sem er boðin í tveimur útfærslum, annars vegar sex gíra beinskiptingu og hins vegar 7 gíra sjálfskiptingu og með fjórhjóladrif. Umræddar vélaútfærslur eru með mildari tvinntækni sem eykur eldsneytisnýtingu, snerpu úr kyrrstöðu og aðstoð upp brekkur

til að lágmarka eyðslu og draga úr losun CO2 um 4g á ekinn km. Þessi vél kom fyrst fram á sjónarsviðið 2018 en hefur nú verið þróuð áfram með nýjum tæknilausnum til enn bættra afkasta og skilvirkni. Acenta kemur aðeins framhjóladrifinn eins og áður. Tekna, Tekna+ og N-Connecta eru aftur á móti með fram- og afturhjóladrif. Allar útgáfurnar eru vel útbúnar, bæði með öryggi og þægindi í huga. Akstur á malarvegi var þægilegur og góð fjöðrun kom berlega fram. Bíllinn lá vel á veginum og aksturinn allur mjúkur og veitti ökumanni góða tilfinningu. Þetta kom glögglega fram í akstri á malarvegi.


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.