Refsivert er að skilja dýr eftir í bílum á heitum dögum Í Svíþjóð bar nokkuð á því í sumar að hundaeigendur skildu dýrin eftir ein í bílum sínum þegar heitt var í veðri. Að skilja hund eða kött eftir í bíl á heitum degi er hættulegt fyrir dýrið — jafnvel þó að svo sé aðeins í stuttan tíma. Það er brot á lögum um dýraníð og getur varðað fangelsi. Þrátt fyrir þetta hefur sænsku lögreglunni undanfarnar vikur borist tilkynningar frá vegfarendum sem hafa séð hunda lokaða í bílum, að því fram kemur hjá sænsku fréttastofunni TT.
„Samkvæmt sænskum lögum er dýraeigendum skylt að setja ekki dýrin í þjáningu og hættu og telst það glæpur, óháð því hvort það gerist af gáleysi eða óviljandi, að skilja dýrin eftir í heitum bíl,“ segir Elisabeth Schöning hjá dýralækningadeild Uppsalaborgar. Lögreglan mælir með því að almenningur láti vita þegar dýr sjást skilin eftir í bílum. Í neyðartilvikum verði að brjótast inn í þá svo að hægt sé að bjarga þeim.
Hans Rosengren hjá Sænska hundaræktarfélaginu segir í samtali við TT að allir ættu að vita hversu hættulegt það er að skilja hund eftir í bíl undir þessum kringumstæðum. Stöðugt bætast þó við nýir hundaeigendur, sérstaklega hin síðustu ár, og sumir þeirra eru ekki meðvitaðir um hættuna sem þessu fylgir. Samkvæmt reglugerð sænska landbúnaðarráðuneytisins er bannað að skilja dýr eftir án eftirlits í bíl ef hitastigið inni í ökutækinu getur farið yfir 25 gráður eða undir 5 gráður í mínus. Í sumum tifellum getur hitastigið farið upp í 80 gráður samkvæmt mælingu sænska tryggingafélagsins If. Dýrið getur látist ef það er skilið eftir í 20–50 mínútur í heitum bíl. Þá liggur ábyrgðin alfarið hjá dýraeigandanum.
Smíðum bíllykla Smíðum og forritum flestar gerðir bíllykla Tímapantanir óþarfar
26
510-8888 – Skemmuvegur 4 - 200 Kópavogi FÍB-blaðið