FÍB Blaðið 3tbl. 2021

Page 19

Jean Todt forseti FIA í heimsókn á Íslandi Jean Todt, forseti Alþjóða akstursíþróttasambandsins (FIA), kom í stutta heimsókn til Íslands í ágúst sl. Todt hitti meðal annarra forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannesson, Steinþór Jónsson, formann FÍB, og heimsótti nýsköpunarráðuneytið. Hann kynnti sér enn fremur íslenskt mótorsport. Þetta var önnur heimsókn Todt til Íslands í forsetatíð hans en hann kom hingað fyrst 2011. Hann hefur leitast við að heimsækja sem flest aðildarfélög innan FIA en þau eru samtals 228 í 132 löndum.

Frá heimsókninni á Bessastöðum: Frá vinstri, Steinþór Jónsson, formaður FÍB, Hildur Sigurðardóttir, Jean Todt, forseti FIA, Michelle Yeoh, Elisa Reid, forsetafrú, Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB, og ritari Michelle Yeoh.

Jean Todt var framkvæmdastjóri keppnismála hjá Ferrari áður en hann var kjörinn forseti FIA árið 2009. Todt tók þá við forsetaembættinu af Max Mosley sem lést einmitt í maí sl. Todt var staddur hér á landi með eiginkonu sinni, Michelle Yeoh, sem var hér á landi við tökur á sjónvarpsþáttunum The Withcher: Blood Origin. Forseti FIA á að baki langan og farsælan feril í alþjóðlegu mótorsporti. Hann var fyrst rallökumaður og síðar aðstoðarökumaður hjá Peugeot og sem slíkur hreppti hann heimsmeistaratitil í rallakstri. Hann tók til óspilltra mála hjá Ferrari og byggði upp hið sigursæla Formúlu-1 lið frá grunni og réði til liðsins unga og efnilega ökumenn. Meðal þeirra var Michael Schumacher sem réðist til Ferrari-liðsins sem ökumaður árið 1996.

RAFGEYMAR

Eru tækin tilbúin fyrir veturinn? FÍB-blaðið

Bíldshöfði 12 • 110 Reykjavík • 577-1515 • NÝTT: Vefverslun á www.skorri.is

19


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.