Ársskýrsla 2019

Page 82

ÁRSSKÝRSLA 2019

BRAUTSKRÁNINGARRÆÐA REKTORS Á HÁSKÓLAHÁTÍÐ 15. JÚNÍ Kandídatar, gestir og starfsfólk HA Háskólinn á Akureyri hefur verið í örum vexti undanfarin ár og þið, ágætu kandídatar, eruð hluti af þeim mikla vexti. Að þessu sinni eru 419 nemendur af þremur fræðasviðum brautskráðir, þar af 303 úr grunnnámi og 116 nemendur úr framhaldsnámi. Þetta er stærsti útskriftarárgangur skólans frá upphafi og til merkis um þann mikla árangur sem náðst hefur í uppbyggingu háskóla sem þjónar öllu landinu með nýjum og framsæknum hætti. Þrotlaus vinna starfsfólks og öflugir nemendur skólans hafa gert Háskólann á Akureyri að einni stærstu og öflugustu menntastofnun landsins. Kæru kandídatar Þetta er stór áfangi og í dag fagnið þið. Það eru forréttindi fyrir okkur sem störfum við Háskólann á Akureyri að hafa fengið að taka þátt í lífi ykkar og vonandi aðeins náð að móta ykkur til betri útgáfa af ykkur sjálfum. Það eru forréttindi að hafa tækifæri til þess að geta leyft sér að læra, að afla sér þekkingar í gegnum lestur, verkefnavinnu og samtöl við aðra nemendur, kennara ykkar og leiðbeinendur. Stundum

82

er það þannig að við áttum okkur ekki á því hversu mikil forréttindin eru þangað til að við höfum ekki lengur aðgengi að þeim eða aðrir geta ekki fetað í okkar eigin fótspor. Ágætu gestir, hér í salnum og þið sem heima sitjið Á síðustu fimm árum hefur aðsókn við Háskólann á Akureyri aukist gífurlega. Heildarfjöldi nemenda hefur vaxið um tæplega 50% frá árinu 2014 og er nú svo komið að við getum ekki lengur tekið við öllum nemendum sem vilja stunda nám við skólann. Nú eru samkeppnispróf í þremur námsgreinum ásamt því að valið er inn í viðskiptafræði þannig að ekki er lengur nóg að hafa stúdentspróf í samkeppni um námspláss, heldur verður meira að koma til. Nú þegar menntun er að verða lykillinn að því að samfélög geti tekist á við hraðar breytingar verðum við sem myndum íslenskt samfélag að spyrja okkur hvort við teljum að það sé rétt að aðgengi að háskólanámi sé takmarkað með þessum hætti. Hverri menntastofnun ber að sjálfsögðu að halda sig innan þeirra fjárheimilda sem útdeilt er á hverju tímabili en þegar vinsældir einnar stofnunar aukast verulega, líkt og Háskólans á Akureyri, vakna upp


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.
Ársskýrsla 2019 by Háskólinn á Akureyri // University of Akureyri - Issuu