
1 minute read
Nemendaskrá
NEMENDASKRÁ, ÞJÓNUSTUBORÐ NEMENDASKRÁR
Þjónustuborð Nemendaskrár var fært undir Markaðs- og kynningarmál 1. september 2018. Á þjónustuborði Nemendaskrár er leitast við að tryggja áfram gott skipulag á daglegu starfi háskólans ásamt því að veita stúdentum og starfsfólki almennar upplýsingar og þjónustu. Fulltrúar á þjónustuborði Nemendaskrár annast meðal annars innritun nýnema, skráningu í og úr námskeiðum og prófum, og prentun og frágang brautskráningargagna í nánu samstarfi við skrifstofustjóra fræðasviða. Einnig veita fulltrúar almenna þjónustu og upplýsingagjöf, og annast símsvörun, útgáfu vottorða og innkaup og afgreiðslu á skrifstofuvörum fyrir starfsfólk háskólans. Enn fremur sjá fulltrúar um utanumhald ferðabeiðna og flugbókana.
Advertisement
Þá hafa fulltrúar umsjón með allri nemendaskráningu og skjalavistun sem henni tengist, auk bókana og leigu á stofum og fundarherbergjum í húsnæði skólans.
Mikil samvinna er milli fulltrúa á þjónustuborði Nemendaskrár, skrifstofustjóra fræðasviða og Ugluteymis, sem samanstendur af Óskari Þór Vilhjálmssyni, tæknimanni á Kennslumiðstöð, Birnu Hreiðarsdóttur (vefstjóri í afleysingum) og Katrínu Árnadóttur, forstöðumanni Markaðs- og kynningarmála.
Skipulag Nemendaskrár var óbreytt frá árinu áður og fram að októbermánuði og verkefni þau sömu. Þann 1. október tók Bára Sif Sigurjónsdóttir við starfi verkefnastjóra Nemendaskrár HA í 50% starfi. Katrín Árnadóttir, forstöðumaður þjónustuborðs Nemendaskrár, einbeitti sér þá frekar að Markaðs- og kynningarmálum skólans. Ásdís Sigríður Þorsteinsdóttir hóf störf á Kennslumiðstöð HA og Símenntun HA og var Hanna Björg Guðmundsdóttir ráðin þjónustufulltrúi í hennar stað. Í lok árs hóf Herdís Hulda Guðmannsdóttir störf á Viðskipta- og raunvísindasviði og var Hafdís Guðfinna Vigfúsdóttir ráðin þjónustufulltrúi í hennar stað. Auk framantaldra starfsmanna var Sigrún Harðardóttir áfram afgreiðslustjóri Nemendaskrár.
