1 minute read

Starfsfólk

Next Article
Lokaverkefni

Lokaverkefni

Rektor Háskólans á Akureyri veitti framgang samkvæmt reglum nr. 1010/2016 um framgang og ótímabundna ráðningu akademísks starfsfólks við HA.

Framgangur er veittur 1. júlí ár hvert og einnig er veittur framgangur við nýráðningu.

Advertisement

Eftirtalið starfsfólk fékk framgang 1. júlí 2019:

Brynhildur Bjarnadóttir, framgangur í stöðu dósents við Hug- og félagsvísindasvið.

Hermína Gunnþórsdóttir, framgangur í stöðu prófessors við Hug- og félagsvísindasvið.

Sigrún Sigurðardóttir, framgangur í stöðu dósents við Heilbrigðisvísindasvið.

Eftirtalið starfsfólk lauk doktorsprófi:

Valgerður S. Bjarnadóttir

Valgerður S. Bjarnadóttir varði doktorsritgerð sína á menntavísindasviði Háskóla Íslands þann 4. júní.

Ritgerðin heitir The Complexities of Student Influence in Upper Secondary Schools in Iceland: Pedagogic Practice and Subject Hierarchies.

Andmælendur við doktorsvörnina voru Lynn Davies, prófessor emeritus við University of Birmingham, og Michele Schweisfurth, prófessor við University of Glasgow. Leiðbeinandi var Ingólfur Ásgeir jóhannesson, prófessor á Menntavísindasviði HÍ, og meðleiðbeinandi var Elisabet Öhrn, prófessor við Göteborgs universitet. Valgerður er nýdoktor í verkefninu Háskólar og lýðræði við Háskólann á Akureyri. Eftirtalið starfsfólk var í rannsóknarmisseri 2019:

Birna María B. Svanbjörnsdóttir lektor, vormisseri Kristinn P. Magnússon prófessor, vormisseri Margrét Hrönn Svavarsdóttir dósent, vormisseri Sara Stefánsdóttir lektor, vormisseri Elísabet Hjörleifsdóttir dósent, vormisseri Gísli Kort Kristófersson dósent, haustmisseri Guðmundur Kr. Óskarsson dósent, haustmisseri Guðmundur Heiðar Frímannsson prófessor, haustmisseri Kjartan Ólafsson lektor, haustmisseri Markus Meckl prófessor, haustmisseri Oddur Þór Vilhjálmsson prófessor, haustmisseri Ragnheiður Harpa Arnardóttir dósent, haustmisseri Þorlákur Axel Jónsson aðjúnkt, haustmisseri

Sean Michael Scully

Sean Michael Scully varði doktorsritgerð sína í líffræði við Háskóla Íslands þann 31. maí.

Ritgerðin heitir Efnaskipti amínósýra og skyldra efna hjá Thermoanaerobactertegundum (e. Amino Acid and Related Catabolism of Thermoanaerobacter Species).

Andmælendur við doktorsvörnina voru Jessica Adams, vísindamaður við Aberystwyth University í Wales, og Pauline Vannier, sérfræðingur hjá Matís ohf. Umsjónarkennari var Guðmundur Óli Hreggviðsson, prófessor við Líf- og umhverfisvísindadeild HÍ og faglegur leiðtogi hjá Matís ohf. Leiðbeinandi var Jóhann Örlygsson, prófessor við Háskólann á Akureyri. Sean Michael er aðjúnkt við Viðskipta- og raunvísindasvið HA.

This article is from: