Skip to main content

Framhaldsnám 2018-2019

Page 1

Framhaldsnám 2018 – 2019

Fræði til framtíðar unak.is


Efnisyfirlit Ávarp rektors...................................................................................... 5 Doktorsnám....................................................................................... 7 Aðstaða til rannsókna......................................................................... 9 Auðlindafræði - rannsóknartengt meistaranám MS............................... 11 Félagsvísindi - rannsóknartengt meistaranám MA................................. 13 Fjölmiðla- og boðskiptafræði MA/diplóma........................................... 15 Heilbrigðisvísindi - framhaldsnám á meistarastigi MS........................... 17 Heimskautaréttur LLM/MA/diplóma.................................................... 19 Iðjuþjálfun á meistarastigi diplóma...................................................... 21 Lögfræði ML....................................................................................... 23 Menntavísindi MA og viðbótarnám til diplómu á meistarastigi.............. 25 Menntunarfræði MEd - kennsluréttindi................................................. 27 Menntunarfræði diplóma - kennsluréttindi........................................... 29 Viðskiptafræði - rannsóknartengt meistaranám MS.............................. 31 Þjónusta við framhaldsnemendur........................................................ 33 Upplýsingar fyrir umsækjendur............................................................ 35

5


6


Hver og einn hefur mikið fram að færa – Háskólinn á Akureyri er samfélag sem hlustar Háskólinn á Akureyri er ekki aðeins hús, ekki aðeins upplýsingar og fræðsla. Háskólinn á Akureyri er samfélag. Hér er öflugt samfélag fræðimanna og nemenda sem hefur sett mikinn svip á höfuðstað Norðurlands og haft áhrif um land allt með miðlun námsefnis í gegnum netið. Stærð þessa samfélags gerir það svo að verkum að vægi hvers og eins er meira en við þekkjum í stærri háskólum. Nemendur, kennarar og samfélagið á Akureyri hafa saman skapað metnaðarfullt háskólasamfélag sem hefur sérstöðu, ekki aðeins á Íslandi heldur víðar. Háskólinn á Akureyri býður upp á nám og rannsóknir á sviðum sem aðrir háskólar bjóða ekki upp á og keppir að auki við aðra háskóla á hefðbundnari fræðasviðum. Við ætlum okkur að vera í forystu á okkar sérsviðum sem og í að bjóða upp á áhugavert námsumhverfi fyrir alla nemendur. Í þessu samspili sérhæfingar og fjölbreytni sem myndar öflugt háskólasamfélag liggur styrkur Háskólans á Akureyri. Til að ná árangri og auka þekkingu og færni í háskólanámi er mikilvægt að tilheyra metnaðarfullu háskólasamfélagi. Taktu fyrsta skrefið í þá átt með okkur. Við hlökkum til að taka á móti þér og sjá þig vaxa sem einstakling í Háskólanum á Akureyri. Eyjólfur Guðmundsson rektor

7


8


Doktorsnám Allt frá því að Háskólinn á Akureyri var stofnaður, árið 1987, hefur hann markvisst unnið að eflingu rannsókna og þá ætíð með tenginu kennslu og rannsókna í huga. Eftir því sem skólinn efldi meistaranám á öllum sínum fræðasviðum fjölgaði rannsóknarverkefnum og rannsóknasamstarf jókst við utanaðkomandi stofnanir og samfélagið. Eitt af stefnumálum HA undanfarin ár hefur verið að efla rannsóknarnámið enn frekar og koma á doktorsnámi. Í október 2017 fékk skólinn heimild mennta- og menningarmálaráðuneytisins til að bjóða upp á doktorsnám, að undangenginni úttekt erlendra fagaðila. Þessir aðilar unnu umfangsmikið gæðamat þar sem fræðileg og stjórnsýsluleg geta háskólans til þess að bjóða upp á doktorsnám var ítarlega skoðuð. Niðurstaða þeirra var að skólinn væri vel hæfur til að sinna þessu hlutverki hvað varðaði alla þessa þætti. Markvisst er unnið að því að fyrstu doktorsnemarnir hefji nám haustið 2018. Áætlað er að í upphafi verði þeir 3-5 en fjölgi smám saman og verði orðnir 12-15 eftir þrjú til fimm ár. Námið verður undir umsjón og stjórn Miðstöðvar doktorsnáms HA (Graduate School) í nánu samstarfi við viðkomandi svið og deildir. Miklar kröfur eru gerðar til doktorsnámsins varðandi uppbyggingu þess, um aðstæður og umhverfi fyrir nemann til rannsókna og að áætlaður leiðbeinandi hans sé viðurkenndur fræðimaður með mikla reynslu á viðkomandi fræðasviði ásamt því að uppfylla önnur skilyrði Miðstöðvar doktorsnáms HA. Doktorsverkefnið þarf að hafa vel skilgreinda fjármögnun áður en það er samþykkt. Doktorsneminn skal hafa lokið meistaraprófi með góðum árangri (fyrstu einkunn) og hann þarf að leggja fram vel útfærða rannsókna- og námsáætlun með umsókn. Gerður er sérstakur samningur milli doktorsnemans og Miðstöðvar doktorsnáms í samráði við viðkomandi deild/svið um verkefnið. Mikil og stöðug eftirfylgni er með framgangi námsins og fer fram stöðumat bæði um miðbik námsins og í lokin til að meta hvort framkvæmd og niðurstaða verkefnisins sé fullnægjandi fyrir opinbera vörn. Víðtæk krafa er um erlent samstarf bæði hvað varðar verkefnið sjálft og þjálfun doktorsnemans í aðferðafræði og framkvæmd verkefnisins. Krafa er gerð til viðkomandi deildar/sviðs um að doktorsnemanum sé tryggð viðunandi aðstaða og þjónusta og að það komi fram í þeim samningi sem gerður er við doktorsnemann. Eitt af markmiðunum með doktorsnámi við Háskólann á Akureyri er að skapa umhverfi sem veitir doktorsnemum nauðsynlega þekkingu og færni til að þeir séu færir um að stunda sjálfstæð vísindastörf, afla sér nýrrar þekkingar og beita krefjandi vísindalegum aðferðum í alþjóðlegu vísindasamstarfi. Doktorsnámið er undirstaða þess að Háskólinn á Akureyri geti ræktað áfram hlutverk sitt sem rannsóknarháskóli og verið aðdráttarafl fyrir afburða innlenda og erlenda nemendur og fræðimenn. Þeir sem áhuga hafa á doktorsnámi við skólann þurfa að kynna sér þau rannsóknarverkefni sem eru í gangi við skólann og sækja um þær doktorsnámsstöður sem þar eru auglýstar á hverjum tíma. Listi yfir þær er á vef skólans undir liðnum Laus störf.

9


10


Aðstaða til rannsókna Rannsóknir eru einn af hornsteinunum í starfsemi Háskólans á Akureyri. Rannsóknastarfið er fyrst og fremst í höndum akademískra starfsmanna og stjórnsýsla rannsókna er í höndum RHA - Rannsóknamiðstöðvar Háskólans á Akureyri, sem hefur það hlutverk að efla rannsóknastarfsemi og styrkja tengsl háskólans við atvinnulífið. Framhaldsnám er að miklu leyti rannsóknatengt og stefna háskólans er að efla það bæði sem sjálfstætt nám og sem undanfara doktorsnáms. Áhersla er lögð á að rannsóknir standist alþjóðleg viðmið sem og á viðfangsefni sem tengjast íslensku samfélagi og atvinnulífi auk þeirrar sérstöðu sem HA hefur á fræðasviðum tengdum norðurslóðum. Tengsl náms og rannsókna eru mikilvæg og virk, sérstaklega varðandi framhaldsnám. Einkennandi fyrir rannsóknir í Háskólanum á Akureyri er að þær eru flestar unnar í þverfaglegum teymum. Rannsóknarhóparnir eru fjölmargir og eru mannaðir sérfræðingum á ólíkum sviðum úr öllum heimshornum. Háskólinn á Akureyri leggur áherslu á að afrakstri rannsóknastarfsins sé fylgt eftir og að árangur rannsakenda sé metinn í samræmi við matskerfi opinberu háskólanna. Ennfremur er haldið saman yfirliti yfir árangurinn, afrakstur, birtingar og önnur atriði sem eru mælikvarðar á gæði og virkni í rannsóknum. Árangri og niðurstöðum rannsókna er miðlað til samfélagsins. Þær eru kynntar á vef háskólans, með opnum málstofum og í fjölmiðlum, og þeim er miðlað til vísindasamfélagsins með hefðbundnum birtingum. Háskólinn safnar tölfræðiupplýsingum um rannsóknastarfið. Upplýsingar um rannsóknastarf eru rýndar og ræddar reglulega í gæðaráði.

Hlutverk Háskólinn á Akureyri veitir nemendum tækifæri til að öðlast menntun í metnaðarfullu og alþjóðlegu náms-og rannsóknarumhverfi. Háskólinn skapar fræðimönnum sínum umhverfi og aðstöðu til rannsókna og nýsköpunar sem stuðlar að vexti og framþróun íslensks samfélags í alþjóðlegu umhverfi. Háskólinn veitir nýjum straumum til landsins alls í gagnvirkum tengslum milli samfélagsins og háskólans.

11


Hver nemandi fylgir eigin námskrá sem er sérsniðin að þörfum hans.

12


Viðskipta- og raunvísindasvið

Auðlindadeild

Auðlindafræði MS 2 ára nám 120 ECTS einingar

Auðlindafræði - rannsóknartengt meistaranám MS Í meistaranámi í líftækni við Háskólann á Akureyri er lögð höfuðáhersla á rannsóknir og sjálfstæða verklega vinnu nemenda. Sú þekking og víðtæka reynsla sem ég öðlaðist af vinnu á rannsóknarstofum í meistaranámi mínu reyndist mér afar dýrmæt. Jan Eric Jessen, sérfræðingur hjá Algalíf Iceland

Rannsóknartengt meistaranám í auðlindafræðum eflir þekkingu þína og hæfni í vísindalegum vinnubrögðum. Þú öðlast leikni til að takast á við flókin verkefni. Hvernig getum við nýtt auðlindir sem mest og best? Hvar liggja tækifærin? Hvernig getum við stuðlað að sjálfbærri nýtingu auðlinda? Hvernig skilum við landinu til næstu kynslóða? Auðlindafræðin leitar að mikilvægum svörum fyrir framtíðina.

Er námið fyrir þig? • Býrð þú yfir sjálfsaga, þolinmæði og forvitni? • Hefur þú áhuga á sjálfbærri þróun?

Ráðgefandi sérfræðingar tryggja, auk aðalleiðbeinanda, að verkefnið standist alþjóðlegar gæðakröfur. Nemendur eru hvattir til þess að taka hluta námsins við erlenda háskóla.

Möguleikar að námi loknu Námið veitir þér tækifæri til þess að vinna hjá áhugaverðum sprotafyrirtækjum eða að stofna þitt eigið fyrirtæki. Rannsóknarverkefnin sem nemandi velur að vinna opna leiðir inn í ýmiss konar sérfræðistörf: rannsóknastörf hjá líftæknifyrirtækjum, rannsóknastofnunum og verkfræðistofum, og við kennslu og rannsóknir í háskólum. Meistaragráða opnar aðgang að doktorsnámi bæði við innlenda og erlenda háskóla.

Inntökuskilyrði Almenn krafa er að nemendur hafi lokið BS-gráðu í náttúrueða raunvísindum við viðurkennda háskóla.

• Hefur þú þor til að fara nýjar og óþekktar leiðir? • Býrð þú yfir getu til að skilja aðalatriði frá aukaatriðum? • Hefur þú áhuga á að þróa ný viðskiptatækifæri?

Áherslur námsins Skipulag meistaranáms í auðlindafræðum byggir á áhugasviði hvers nemanda fyrir sig. Námskráin er sérsniðin að þínum þörfum og áhugasviði á rannsóknarverkefni. Rannsóknarverkefnið er stór hluti námsins og er það unnið undir handleiðslu sérfræðinga háskólans auk utanaðkomandi sérfræðinga.

Upplýsingar um námið veita Ása Guðmundardóttir skrifstofustjóri viðskipta- og raunvísindasviðs M. Auður Sigurbjörnsdóttir aðjúknt

460 8037 460 8511

asa@unak.is mas@unak.is 13


Námið hentar sérstaklega nemendum sem vilja vinna sjálfstætt að skýrt afmörkuðu viðfangsefni. 14


Hug- og félagsvísindasvið

Félagsvísinda- og lagadeild

Félagsvísindi MA 2 ára nám 120 ECTS einingar

Félagsvísindi - rannsóknartengt meistaranám MA Meistaranámið í félagsvísindum veitti mér tækifæri til þess að vinna að minni eigin rannsókn út frá hugmynd sem ég fékk í lok BA-námsins í félagsvísindum. Rannveig Gústafsdóttir, kandídat framhaldsnáms í félagsvísindum

Námið veitir þér þekkingu á afmörkuðu sviði félagsvísindanna. Námið er rannsóknartengt og því sniðið að þínu áhugasviði. Langar þig til þess að kafa ofan í byggðaþróun á Íslandi? Viltu fylgjast með þróun ferðamála á Norðurlandi? Viltu skoða stöðuna á norðurslóðum eða rannsaka netnotkun unga fólksins? Allt eru þetta brennandi viðfangsefni, en aðeins brot af því sem þú getur valið um.

Er námið fyrir þig? • Hefur þú áhuga á íslensku samfélagi? • Býrð þú yfir þolinmæði og aga? • Hefur þú getu til að skilja aðalatriði frá aukaatriðum? • Býrð þú yfir vilja til að verða mótandi þátttakandi í þróun samfélagsins?

Hver nemandi nýtur stuðnings meistaranefndar sem skipuð er viðurkenndum sérfræðingum á viðkomandi sviði.

Möguleikar að námi loknu Þetta nám opnar þér greiða leið til fjölbreyttra starfa á ýmsum sviðum þjóðfélagsins. Námið veitir auk þess færni í vísindalegum vinnubrögðum. Meistaranámið skapar jafnframt traustan grunn fyrir doktorsnám í félagsvísindum. Námið veitir góðan undirbúning fyrir sérfræði- og rannsóknastörf á ýmsum sviðum félagsvísindanna. Meistaragráða opnar möguleika á doktorsnámi við innlenda og erlenda háskóla. Nemendur sem hafa lokið þessu námi hafa haslað sér völl á sviði byggðaþróunar, ferðamála og jafnréttismála, svo eitthvað sé nefnt.

Inntökuskilyrði Námið er opið nemendum sem hafa lokið BA- eða BS-gráðu við viðurkenndan háskóla með fyrstu einkunn og fengið samþykki væntanlegs leiðbeinanda fyrir rannsóknarspurningu sinni.

• Hefur þú vilja til að hafa áhrif með auknum rannsóknum?

Áherslur námsins Meistaranemar taka ákveðinn fjölda námskeiða við HA eða aðra innlenda eða erlenda háskóla. Námsáætlun er sniðin að þínum þörfum og áhugasviði í samráði við leiðbeinanda. Meginverkefnið er rannsóknartengt meistaraverkefni. Það getur verið ein lengri ritgerð eða fleiri styttri sem tengjast saman með skýrum hætti. Upplýsingar um námið veita Heiða Kristín Jónsdóttir skrifstofustjóri hug- og félagsvísindasviðs Þóroddur Bjarnason prófessor

460 8039 460 8562

heida@unak.is thorodd@unak.is 15


Fjölmiðla- og boðskiptafræði verður stöðugt mikilvægari námsgrein og vettvangur fræða og rannsókna. 16


Hug- og félagsvísindasvið

Félagsvísinda- og lagadeild

Fjölmiðlafræði og boðskiptafræði MA/diplóma 1 árs diplómanám 30 ECTS einingar

2 ára MA nám 120 ECTS einingar

Fjölmiðla- og boðskiptafræði MA/diplóma Fjölmiðlavæðing samtímans teygir sig inn í alla kima mannlegra samskipta og þekking og skilningur á boðskiptum í öllum sínum myndum hefur aldrei verið mikilvægari en einmitt núna. Sigrún Stefánsdóttir, fjölmiðlakona

sérfræðingar á sínu sviði frá Háskóla Íslands, Háskólanum á Akureyri og úr atvinnulífinu. Meistaranámið skiptist í fræðilegan grunn með skyldunámskeiðum, bundið og opið val, og meistararitgerð.

Framhaldsnám í fjölmiðla- og boðskiptafræði er samstarfsverkefni Háskólans á Akureyri og Háskóla Íslands.

Möguleikar að námi loknu Að námi loknu bíða tækifæri til rannsókna, greininga eða kennslu á vegum stofnana eða fyrirtækja.

Hvor háskóli býður upp á það besta sem hann hefur fram að færa í faginu. Þér gefst kostur á að móta námið talsvert að eigin vild og vinna sjálfstætt undir leiðsögn sérfræðinga, norðan heiða jafnt sem sunnan.

Stjórnunarstörf á fjölmiðlum eða tengdum stofnunum eru möguleiki. Einnig störf hjá alþjóðastofnunum, stjórnmálaflokkum, samtökum og fyrirtækjum sem eiga mikið undir samstarfi við fjölmiðla.

Diplómanám hentar vel með vinnu.

Það er líka hægt að velja störf við greiningu og miðlun upplýsinga svo sem á auglýsinga- og markaðsstofum.

Er námið fyrir þig? • Hefur þú áhuga á samfélagsmálum? • Býrð þú yfir hæfni til að stunda rannsóknir? • Hefur þú skilning á fjölmiðlum sem fjórða valdi? • Blundar í þér löngun til að starfa innan háskólasamfélagsins? • Vilt þú starfa á alþjóðavettvangi? • Hefur þú löngun til að fara út í stjórnmál?

Inntökuskilyrði Námið er opið nemendum sem hafa lokið grunnnámi við viðurkenndan háskóla. Fyrstu einkunnar er krafist í meistaranámið. Nemendur með lægri einkunn geta skráð sig í diplómanámið. Nái þeir fyrstu einkunn í diplómanáminu geta þeir haldið áfram í meistaranámið. Námskeið í diplómanámi eru metin inn í meistaranámið náist tilskilinn árangur (fyrsta einkunn).

Áherslur námsins Fjölmiðlar, áhrif þeirra og notkun eru meðal mikilvægustu viðfangsefna félagsvísinda í dag. Í þessu námi er tekist á við þetta viðfangsefni. Markmiðið er að nemendur læri að vinna sjálfstætt að rannsóknum og greiningu. Að kennslunni koma helstu

Upplýsingar um námið veita Heiða Kristín Jónsdóttir skrifstofustjóri hug- og félagsvísindasviðs Birgir Guðmundsson dósent

460 8039 460 8658

heida@unak.is birgirg@unak.is 17


Framhaldsnám í heilbrigðisvísindum við HA miðar að því að fólk geti stundað námið með vinnu. 18


Heilbrigðisvísindasvið

Framhaldsnámsdeild

Heilbrigðisvísindi MS 1 árs diplómanám 40 ECTS einingar

2 ára nám 120 ECTS einingar

Heilbrigðisvísindi - framhaldsnám á meistarastigi MS leiðarljósi. Þetta eru rauðu þræðirnir í uppbyggingu og inniÍ framhaldsnáminu fékk ég einstakt tækifæri til að vinna með þverfaglegum hætti undir leiðsögn fram- haldi námskeiða, og í kennsluháttum og námsmati. úrskarandi kennara að verkefnum á sviði geðheilsu Kennt er í lotum. Námið er skipulagt þannig að mögulegt er og vellíðunar innan heilbrigðis- og menntavísinda. Gunnar Árnason, ráðgjafi hjá Starfsendurhæfingu Norðurlands

Námið er krefjandi, skemmtilegt og þverfaglegt. Áhersla er lögð á aukna sérþekkingu í heilbrigðisvísindum. Allt að 30 ECTS einingar eru metnar inn í meistaranámið úr fjögurra ára bakkalárnámi (240 ECTS einingar) við HA eða sambærilegu námi við aðra háskóla. Metnar ECTS einingar koma í stað valnámskeiða.

að stunda vinnu samhliða því. Oftast vinna nemendur verkefni í stað prófa. Þú getur tekið meistaranámskeið við Háskólann á Akureyri eða aðra háskóla, innanlands eða utan.

Möguleikar að námi loknu Með meistaragráðu í heilbrigðisvísindum getur þú starfað á ýmsum sviðum en þó oftast á því sérsviði sem þú velur.

Námið veitir prófgráðuna meistaragráða í heilbrigðisvísindum.

Margir fara í stjórnunarstörf innan heilbrigðiskerfisins, starfa sjálfstætt eða eru í stöðum sérfræðinga.

Einnig er í boði 40 eininga diplómagráða á meistarastigi.

Námið er undirbúningur fyrir þá sem hyggja á doktorsnám.

Er námið fyrir þig? • Býrð þú yfir sjálfsaga, þolinmæði og samkennd?

Inntökuskilyrði Umsækjendur um meistaranám þurfa að hafa lokið BS-námi á sviði heilbrigðisvísinda eða skyldra greina með fyrstu einkunn (7,25 eða hærra) frá viðurkenndum háskóla.

• Vilt þú dýpka þekkingu þína í heilbrigðisvísindum? • Hefur þú áhuga á rannsóknum? • Vilt þú auka víðsýni þína? • Hefur þú áhuga á að þróa ný viðmið byggð á rannsóknum?

Áherslur námsins Námið byggist upp á nokkrum skyldunámskeiðum, en að öðru leyti skipuleggur þú námið í samráði við leiðbeinanda. Boðið er upp á mörg sérfræðisvið. Markmiðið er að brautskráðir nemendur úr heilbrigðisvísindum verði gagnrýnir greinendur og skapandi fagmenn. Þeir verði óhræddir við breytingar til framfara með víðsýni að

Umsækjendur um diplómanám skulu hafa lokið BS-gráðu á sviði heilbrigðisvísinda eða skyldra greina með 7,0 í meðaleinkunn að lágmarki.

Áherslusvið Fötlun og endurhæfing, Geðheilbrigðisfræði, Heilsugæsla í héraði - fræðileg, Heilsugæsla í héraði - klínísk, Krabbamein og líknarmeðferð, Langvinn veikindi og lífsglíman, Ljósmæður heilbrigði kvenna, Sálræn áföll og ofbeldi, Starfsendurhæfing, Stjórnun í heilbrigðisþjónustu, Öldrun og heilbrigði, Almenn heilbrigðisvísindi, Verkir og verkjameðferð, Sár og sárameðferð.

Upplýsingar um námið veita Ingibjörg Smáradóttir skrifstofustjóri heilbrigðisvísindasviðs Sigrún Sigurðardóttir deildarformaður framhaldsnámsdeildar

460 8036 460 8473

ingibjorgs@unak.is sigrunsig@unak.is 19


Meistaranám í heimskautarétti við HA er það fyrsta og eina sinnar tegundar og er námsbrautin einstök á heimsvísu. 20


Hug- og félagsvísindasvið

Félagsvísinda- og lagadeild

Heimskautaréttur LLM/MA/diplóma 2 ára nám 120 ECTS einingar

1 ½ árs LLM-nám 90 ECTS einingar

1 árs diplómanám 60 ECTS einingar

Heimskautaréttur LLM/MA/diplóma Every course was relevant and helped me study the Polar Regions comprehensively and thoroughly and they all were highly relevant regarding contemporary Arctic and Antarctic legal issues. Romain Francois R. Chuffart, Doctoral candidate at University of Lapland

Nám í heimskautarétti tekur á fjölmörgum lögfræðilegum álitaefnum sem tengjast norður- og suðurskautinu. Námið snýr fyrst og fremst að fólkinu sem býr á svæðunum, hvað það vill og hver réttindi þess eru. Viðfangsefni námsins eru því á breiðu sviði alþjóðastjórnmála, öryggismála, stjórnskipunar, leitar- og björgunarstarfa, auðlinda, líffræðilegs fjölbreytileika og annarra þátta stjórnmálaþróunar. Námið fer alfarið fram á ensku.

Er námið fyrir þig? • Hefur þú áhuga á þróun norðurslóða? • Hefur þú áhuga á réttindum frumbyggja og annarra íbúa á norðurslóðum? • Finnst þér alþjóðastjórnmál spennandi? • Langar þig að vita meira um stjórnunarhætti á suðurskautinu? • Býrð þú yfir færni í ensku?

Áherslur námsins Nám í heimskautarétti snýst um lagaumhverfi og stjórnunarhætti norður- og suðurskautsins, jafnt á sviði alþjóðalaga, landsréttar og svæðisbundins réttar. Álitamálin eru mörg og snúast meðal annars um fullveldi og deilur um markalínur á sjó og landi, mannréttindi frumbyggja í norðri, sjálfstjórn, stjórnfestu og landa- og auðlindakröfur. Mikið er lagt upp úr alþjóðlegu samstarfi við aðra háskóla. Heimskautaréttarnámið er meðal annars hluti af West Nordic Studies Masters Programme, sem er alþjóðlegt samstarf háskóla um þverfaglegt meistaranám í vestnorrænum fræðum.

Möguleikar að námi loknu Námið undirbýr nemendur fyrir störf meðal annars hjá opinberum stofnunum eða einkafyrirtækjum, alþjóðasamtökum, frjálsum félagasamtökum, frumbyggjaþjóðum á norðurskautssvæðinu, í háskólum eða rannsóknastofnunum. Meistaranámið er líka góður undirbúningur fyrir doktorsnám eða frekari rannsóknir á málefnum heimskautanna og þjóðaréttar.

Inntökuskilyrði Almenn krafa er að nemendur hafi lokið BA-/BS-gráðu eða sambærilegu námi við viðurkennda háskóla.

• Langar þig að starfa í alþjóðlegu umhverfi? • Langar þig að læra að standa fyrir máli þínu?

Upplýsingar um námið veita Heiða Kristín Jónsdóttir skrifstofustjóri hug- og félagsvísindasviðs Rachael Lorna Johnstone prófessor

460 8039 460 8666

heida@unak.is rlj@unak.is 21


Framhaldsnám í iðjuþjálfun á meistarastigi er forsenda starfsréttinda í faginu. 22


Heilbrigðisvísindasvið

Iðjuþjálfunarfræðideild

Iðjuþálfun diplóma 1 árs diplómanám 60 ECTS einingar

Iðjuþjálfun á meistarastigi - diplóma Námið í iðjuþjálfun var ótrúlega gagnlegt og undirbjó mig á fjölbreytta vegu fyrir atvinnulífið en var ekki síður mótandi persónulega. Alda Pálsdóttir iðjuþjálfi, verkefnastjóri í endurhæfingarbúsetu Reykjavíkurborgar

Námið er framhald af BS-námi í iðjuþjálfunarfræði og ætlað þeim sem stefna á að starfa sem iðjuþjálfar.

Er nám í iðjuþjálfun fyrir þig? • Vilt þú starfa sem iðjuþjálfi? • Hefur þú áhuga á fólki? • Getur þú sett þig í spor annarra? • Vilt þú vinna með allskonar fólki á öllum aldri? • Langar þig að efla heilsu og lífsgæði fólks?

Möguleikar að námi loknu Diplómapróf í iðjuþjálfun veitir starfsréttindi sem iðjuþjálfi sem veitt eru af embætti landlæknis. Iðjuþjálfar starfa meðal annars innan heilbrigðis- og félagsþjónustu, í skólakerfinu, hjá félagasamtökum og á almennum markaði. Störf iðjuþjálfa eru mjög fjölbreytt, t.d. ýmiskonar endurhæfing, vinnuvernd, aðlögun umhverfis, geðvernd, heilsuefling og forvarnarstarf sem stuðlar að auknum lífsgæðum fólks. Alþjóðleg viðurkenning námsins opnar möguleika á frekara námi og störfum erlendis.

Inntökuskilyrði Inntökuskilyrði í diplómanám í iðjuþjálfun á meistarastigi er BS-gráða í iðjuþjálfunarfræði frá HA með einkunn að lágmarki 7,0.

• Vilt þú hafa áhrif á viðhorf til fatlaðs fólks? • Vilt þú stuðla að því að fólk blómstri í umhverfi sínu?

Áherslur námsins Stór hluti námsins fer fram á vettvangi í fjölbreytilegu starfsumhverfi iðjuþjálfa, samtals 20 vikur. Þar tekst þú á við raunveruleg viðfangsefni með fólki á öllum aldri sem undirbúa þig fyrir störf iðjuþjálfa. Áhersla er lögð á störf iðjuþjálfa í raunverulegum aðstæðum fólks. Allir hefðbundnir fyrirlestrar eru teknir upp og settir á kennsluvef. Fjölbreytileg tækni er notuð til að búa til gott námsumhverfi og stuðla að gagnvirkum samskiptum.

Upplýsingar um námið veita Ingibjörg Smáradóttir skrifstofustjóri heilbrigðisvísindasviðs Olga Ásrún Stefánsdóttir deildarformaður iðjuþjálfunarfræðideildar

460 8036 460 8453

ingibjorgs@unak.is olgastef@unak.is 23


Laganemar HA eiga möguleika á starfsnámi hjá dómstólum, sýslumanni og bæjarlögmanni, og einnig innan ráðuneyta og lögmannsstofa meðan á námi stendur. 24


Hug- og félagsvísindasvið

Félagsvísinda- og lagadeild

Lögfræði ML 2 ára nám 120 ECTS einingar

Lögfræði ML Nám við lagadeild Háskólans á Akureyri hefur einstaka nálgun á lögfræði og áherslan á alþjóðlegt nám með góðum tækifærum til skiptináms erlendis var ein af ástæðum þess að ég valdi að læra við HA. Hjördís Olga Guðbrandsdóttir, starfsnemi á lögfræðisviði hjá EFTA í Brussel

Margir hafa ákveðna hugmynd um hverjir velja að læra lögfræði og hvaða störfum lögfræðingar sinna. HA hefur lagt áherslu á að námið opni nemendum dyr, að það stuðli að víðsýni og leggi góðan grunn að námi og starfi.

Er námið fyrir þig? • Vilt þú kryfja málin til mergjar og færa rök fyrir máli þínu?

Lögfræðingar sem brautskrást frá Háskólanum á Akureyri starfa meðal annars sem lögmenn og fulltrúar á stærri lög­ manns­stof­um, sem fulltrúar hjá sýslumönnum, í stjórnsýslunni, hjá fyrirtækjum, sem fasteignasalar, í tryggingafélögum og sem gæðastjórar, svo eitthvað sé nefnt. Lögfræði við Háskólann á Akureyri er hagnýtt nám og býður upp á mikla möguleika.

Inntökuskilyrði Almenn krafa er að nemendur hafi lokið BA-gráðu við Háskólann á Akureyri eða annarri sambærilegri gráðu og fengið að minnsta kosti 7 í meðaleinkunn (eða sambærilega einkunn í öðru einkunnakerfi).

• Vilt þú hafa áhrif á samfélagið? • Hefurðu áhuga á að starfa í alþjóðlegu umhverfi? • Hefur þú ríka réttlætiskennd?

Áherslur námsins Laganám nýtist víða í atvinnulífinu. Í meistaranámi í lögfræði við Háskólann á Akureyri öðlast nemendur góða þekkingu á meginsviðum íslensks réttar, svo sem réttarfars, stjórnsýsluréttar, refsiréttar og kröfuréttar. Ennfremur leggur námið góðan grunn að framhaldsnámi erlendis.

Möguleikar að námi loknu Námið býður upp á fjölbreytta starfsmöguleika að því loknu. Það er góður grunnur fyrir hefðbundin störf lögfræðinga og frekara framhaldsnám.

Upplýsingar um námið veita Heiða Kristín Jónsdóttir skrifstofustjóri hug- og félagsvísindasviðs Ragnheiður Elfa Þorsteindóttir brautarstjóri

460 8039 460 8662

heida@unak.is ret@unak.is 25


Meistaranám til MA-prófs er ætlað þeim sem vilja efla starfshæni sína og sérþekkingu á sviði menntavísinda.

26


Hug- og félagsvísindasvið

Kennaradeild

Menntavísindi MA/diplóma 1 árs viðbótarnám 60 ECTS einingar

2 ára nám 120 ECTS einingar

Menntavísindi MA og viðbótarnám til diplómu á meistarastigi Meistaranám í sérkennslu við HA veitir aðgang að krefjandi og skemmtilegum starfsvettvangi innan grunnskólakerfisins. Námið eflir fagþekkingu og styrkir starfshæfni. Sigrún Helga Snæbjörnsdóttir, sérkennari í Síðuskóla

Nám í menntavísindum er ætlað þeim sem vilja auka sérþekkingu sína og starfshæfni á sviði menntamála. Einnig er í boði 60 ECTS eininga viðbótarnám á meistarastigi.

Er námið fyrir þig? • Hefur þú áhuga á að bæta við þekkingu þína á sviði menntamála? • Vilt þú þjálfa hæfni þína til að takast á við mismunandi verkefni? • Finnst þér þurfa að efla ákveðna þætti í skólastarfinu? • Vilt þú verða hæfari í að mæta þörfum ólíkra nemenda? • Hefur þú áhuga á að sérhæfa þig í stjórnun menntastofnana? • Vilt þú auka hæfni þína í notkun upplýsingatækni í skólastarfi?

Áherslur námsins Námsleiðin hentar nemendum sem vilja dýpka þekkingu, færni og auka hæfni á þeim áherslusviðum sem í boði eru.. Þú getur skoðað skipulag námsins hér á síðunni og á Uglu, kennsluvef háskólans.

Möguleikar að námi loknu Nám í menntavísindum hentar sérstaklega vel þeim sem hafa reynslu af fræðslustörfum og vilja dýpka þekkingu sína og efla sig í starfi eða stunda rannsóknir á sviðinu. Námið er undirbúningur fyrir þá sem hyggja á doktorsnám í menntavísindum.

Viðbótarnámi í menntavísindum er ætlað að styrkja nemendur til þess að takast á við störf í menntakerfinu sem krefjast framhaldsmenntunar á sviði menntavísinda. Jafnframt eykur það hæfni til að stunda frekara nám.

Inntökuskilyrði Almenn krafa er að nemendur hafi lokið grunnnámi á háskólastigi og fengið að minnsta kosti 6 í meðaleinkunn. Fyrirkomulag námsins Brautarstjóri námslínunnar er Anna Elísa Hreiðarsdóttir. Hún aðstoðar þig við að setja þér markmið innan námslínunnar og velja saman þau námskeið sem undirbúa meistararitgerðina. Þú hefur val um að skrifa 40 eða 60 ECTS eininga meistararitgerð. Námið er samtals 120 ECTS einingar: Skyldunámskeið 40 ECTS einingar, áherslusvið 30 ECTS einingar, val 10 ECTS einingar og ritgerð 40 ECTS einingar. Skyldunámskeið 40 ECTS einingar, áherslusvið 20 ECTS einingar og ritgerð 60 ECTS einingar. Kennsla fer fram í staðbundnum námslotum í Háskólanum á Akureyri og er skyldumæting í þær. Jafnframt eru margvíslegir möguleikar notaðir við miðlun efnis og til gagnvirkra samskipta. Nemendur geta sótt námskeið á meistarastigi við aðrar deildir HA og í gesta- eða skiptinámi.

Áherslusvið Nám og læsi - lestrarfræði, Nám og margbreytileiki - sérkennslufræði, Stjórnun og forysta í lærdómssamfélagi, Upplýsingatækni í námi og kennslu, Almennt svið.

Upplýsingar um námið veita Heiða Kristín Jónsdóttir skrifstofustjóri hug- og félagsvísindasviðs Anna Elísa Hreiðarsdóttir brautarstjóri

460 8039 460 8555

heida@unak.is annaelisa@unak.is 27


Í meistaranámi til MEd-prófs er fólk menntað til starfa í menntakerfinu jafnframt því sem hæfni þess til að stunda frekara nám er aukin.

28


Hug- og félagsvísindasvið

Kennaradeild

Menntunarfræði MEd 2 ára nám 120 ECTS einingar Lotunám

Menntunarfræði MEd - kennsluréttindi MEd-námið við Háskólann á Akureyri veitti mér sterk­an faglegan grunn til að takast á við fjölbreytt, krefj­andi og jafnframt gefandi starf grunnskólakennara.

Markmiðið með viðbótarnámi í menntunarfræði er að mennta fólk til starfsréttinda. Jafnframt eykur það hæfni til að stunda frekara nám.

Ruth Margrét Friðriksdóttir, umsjónarkennari í Barnaskóla Hjallastefnunnar í Hafnarfirði

Inntökuskilyrði Almenn krafa er að nemendur hafi lokið grunnnámi á háskólastigi og fengið að minnsta kosti 6 í meðaleinkunn.

Nám til MEd-prófs í menntunarfræðum veitir réttindi til kennslu í leik-, grunn- og framhaldsskólum.

Er námið fyrir þig? • Hefur þú áhuga á að verða kennari? • Hefur þú lokið grunnnámi á háskólastigi og vilt afla þér kennsluréttinda? • Hefur þú lokið meistara- eða doktorsprófi á einhverju námssviði framhaldsskólans og vilt afla þér kennsluréttinda á því sviði?

Við upphaf náms skráir þú þig á eitt þriggja kjörsviða og aflar þér kennsluréttinda á því sviði: • Leikskólastig • Grunnskólastig • Framhaldsskólastig Áhersla er á verklega þjálfun með vettvangsnámi og æfingakennslu sem spannar heilt námsmisseri hjá verðandi leik- og grunnskólakennurum. Náminu lýkur með meistaraprófsritgerð.

• Hefur þú áhuga á uppeldis- og skólamálum? • Hefur þú gaman af ólíkum viðfangsefnum? • Finnst þér gaman að miðla af þekkingu þinni? • Vilt þú hafa góð áhrif?

Áherslur námsins Áhersla er á verklega þjálfun með vettvangsnámi og æfingakennslu sem spannar heilt námsmisseri hjá verðandi leik- og grunnskólakennurum. Náminu lýkur með meistaraprófsritgerð. Möguleikar að námi loknu Að loknu MEd-prófi getur nemandi sótt um leyfisbréf til kennslu á því skólastigi sem hann hefur sérhæft sig til. Jafnframt opnar námið á margvísleg störf í menntakerfinu. Upplýsingar um námið veita Heiða Kristín Jónsdóttir skrifstofustjóri hug- og félagsvísindasviðs Finnur Friðriksson brautarstjóri

460 8039 460 8575

heida@unak.is finnurf@unak.is 29


Áhersla á verklega þjálfun, vettvangsnám og æfingakennslu, undirbýr nemendur fyrir dagleg störf framhaldsskólakennara.

30


Hug- og félagsvísindasvið

Kennaradeild

Menntunarfræði diplóma 1 árs viðbótarnám 60 ECTS einingar Lotunám

Menntunarfræði diplóma - kennsluréttindi Kennsluréttindin eru einkar góð viðbót fyrir sjálfInntökuskilyrði stætt starfandi listamann eins og mig, enda opna Almenn krafa er að nemendur hafi lokið grunnnámi á háskólaþau á möguleika til þess að miðla, sem maður hefði stigi og fengið að minnsta kosti 6 í meðaleinkunn. annars ekki. Vilhjálmur B. Bragason, skáld og skemmtikraftur

Viðbótarnám í menntunarfræði er ætlað þeim sem hafa lokið meistaraprófi og vilja afla sér kennsluréttinda á framhaldsskólastigi

Er námið fyrir þig? • Hefur þú áhuga á að verða kennari? • Hefur þú áhuga á uppeldis- og skólamálum?

Fyrirkomulag námsins Námið er samtals 60 ECTS einingar. Gert er ráð fyrir vettvangsnámi og æfingakennslu að vori en nemendur mega taka það að hausti ef þeir kjósa það frekar. Val er um námskeið upp að 10 ECTS einingum. Kennsla fer fram í staðbundnum námslotum á Akureyri og er skyldumæting í þær. Jafnframt eru margvíslegir möguleikar notaðir við miðlun efnis og til gagnvirkra samskipta. Mætingarskylda er í allt vettvangsnám og æfingakennslu.

• Hefur þú gaman af ólíkum viðfangsefnum? • Finnst þér gaman að miðla af þekkingu þinni? • Vilt þú gefa af þér? • Hefur þú lokið meistara- eða doktorsprófi á einhverju námssviði framhaldsskólans og vilt afla þér kennsluréttinda á því sviði?

Áherslur námsins Markmið námsins er að mennta fólk til starfa í menntakerfinu ásamt því að auka hæfni þess til að stunda frekara nám. Áhersla er á verklega þjálfun með vettvangsnámi og æfingakennslu. Möguleikar að námi loknu Sækja má um leyfisbréf í samræmi við lög um menntun og ráðningu kennara nr. 87/2008 og reglugerðir nr. 241/2009 og 872/2009. Upplýsingar um námið veita Heiða Kristín Jónsdóttir skrifstofustjóri hug- og félagsvísindasviðs Finnur Friðriksson brautarstjóri

460 8039 460 8575

heida@unak.is finnurf@unak.is 31


Meistaranám í viðskiptafræði gerir nemendum kleift að velja úr fjölbreyttum stjórnunarstöðum hjá fyrirtækjum, stofnunum og félagasamtökum.

32


Viðskipta- og raunvísindasvið

Viðskiptafræðideild

Viðskiptafræði MS 1,5 ára nám 90 ECTS einingar

2 ára nám 120 ECTS einingar

Viðskiptafræði - rannsóknartengt meistaranám MS þér góðan skilning og færni við rannsóknir og hagnýtingu Námið við Háskólann á Akureyri er metnaðarfullt og einstaklingsmiðað en stærð skólans og skipulag fræðanna. námsins skapar möguleika á persónulegri samskiptum og aðstoð frá kennurum en gengur og gerist. Kristín Helgadóttir, einstaklings- og fyrirtækjaráðgjafi hjá Sparisjóði Höfðhverfinga

Nemendur í rannsóknartengdu meistaranámi í viðskiptafræði öðlast dýpri skilning og yfirgripsmeiri þekkingu á sínu áhugasviði í náminu. Þeir vinna undir leiðsögn kennara að rannsóknum á sínu sviði.

Möguleikar að námi loknu Meistaranám í viðskiptafræði gerir nemendum kleift að velja úr fjölbreyttum stjórnunar- og sérfræðingsstöðum hjá fyrirtækjum, stofnunum og félagasamtökum, bæði innanlands og utan. Þín bíða tækifæri í rannsóknum og nýsköpun. Meistaragráða gefur tækifæri til doktorsnáms.

Gildi ábyrgra viðskiptahátta er rauður þráður í náminu.

Inntökuskilyrði

Er námið fyrir þig? • Vilt þú dýpka þekkingu þína á sérsviðum viðskipta?

Almenn krafa er að umsækjendur hafi lokið BS-námi í viðskiptafræðum við viðurkennda háskóla, að jafnaði með fyrstu einkunn.

• Vilt þú öðlast öguð og sjálfstæð vinnubrögð? • Vilt þú læra að greina aðalatriði frá aukaatriðum? • Hefur þú vilja til að bæta viðskiptalífið? • Hefur þú áhuga á rannsóknum?

Áherslur námsins Rannsóknartengt meistaranám í viðskiptafræði er skipulagt af þér í samráði við leiðbeinanda. Þú fylgir eigin námskrá sem er sérsniðin að þínum þörfum og áhugasviði. Þú þarft að ljúka námskeiðum sem samsvara 60 ECTS einingum og þar af hið minnsta 10 ECTS einingum í rannsóknaraðferðum. Rannsóknarverkefnið er viðamesti hluti námsins. Hann er ýmist 30 eða 60 ECTS einingar en markmiðið er að þú tileinkir

Upplýsingar um námið veita Ása Guðmundardóttir skrifstofustjóri viðskipta- og raunvísindasviðs Guðmundur Kristján Óskarsson dósent

460 8037 460 8616

asa@unak.is gko@unak.is 33


34


Þjónusta við framhaldsnemendur Bókasafn og upplýsingaþjónusta Á bókasafni hafa nemendur aðgang að fræðibókum og á vef safnsins eru opin margvísleg rafræn gagnasöfn og tímarit sem tengjast fræðasviðum háskólans. Starfsfólk safnsins leggur áherslu á að veita nemendum faglega og persónulega þjónustu. Það veitir ráðgjöf og aðstoð við upplýsingaleit og annast einnig kennslu og þjálfun nemenda í upplýsingalæsi, þ.e. í að finna, hagnýta og meta áreiðanleika upplýsinga með ábyrgum hætti. Lesaðstaða Sérstök rými sem ætluð eru til lesturs og vinnu eru á bókasafni og í Miðborg. Með aðgangskortum að húsnæðinu hafa nemendur aðgang að lesrýmum á bókasafni allan sólarhringinn. Tölvuumhverfi Hægt er að tengjast þráðlausu neti á öllu háskólasvæðinu og með því móti geta nemendur unnið á eigin tölvur á staðnum. Á bókasafni skólans eru einnig tölvur sem nemendur hafa aðgang að. Kennslumiðstöð Háskólinn á Akureyri er í fremsta flokki hvað varðar notkun tækninnar í miðlun náms. Kennslumiðstöð (KHA) heldur öllum á tánum með því að veita kennurum faglega aðstoð við þróun kennsluhátta, hvort sem er í staðar- eða fjarnámi, í formi almennrar ráðgjafar og námskeiða og þróunarstarfs með áherslu á svið upplýsingatækni og kennslufræði. Auk þess stuðlar KHA að aukinni notkun tölvu- og upplýsingatækni í háskólanum og veitir nemendum og starfsfólki aðstoð og ráðgjöf á því sviði. Kennslumiðstöð veitir aðstoð ef nemandi óskar eftir að sækja tíma í fjærveru (vélmenni) eða í gegnum Kubi-spjaldtölvu. Með hjálp þessara tækja verða fjarnemar enn frekar hluti af háskólasamfélaginu og missa ekki einu sinni af umræðum utan tíma.

35


36


Upplýsingar fyrir umsækjendur Inntökuskilyrði Nemendur sem hefja framhaldsnám skulu kynna sér inntökuskilyrði námsleiðarinnar skilmerkilega. Að jafnaði er farið fram á BS- eða BA-gráðu frá viðurkenndum háskóla, stundum fyrstu einkunn eða gráðu af skilgreindu sviði. Umsóknarfrestur er til og með 5. júní Rafrænar umsóknir Sótt er rafrænt um nám á vef háskólans, www.unak.is. Þegar rafrænni umsókn er lokið fær umsækjandi veflykil og getur fylgst með framgangi umsóknarinnar. Athugið að svar við umsókn er einungis rafrænt. Fylgigögn með umsókn Skila þarf staðfestu ljósriti úr grunnnámi eða öðrum sambærilegum prófskírteinum. Skrásetningargjald – eindagi 10. júlí Skrásetningargjald er 75.000 kr. sem greiðist með greiðsluseðli í netbanka fyrir 10. júlí. Eftir þann tíma reiknast 15% álag á skrásetningargjaldið og sé það ekki greitt fyrir 10. ágúst er litið svo á að umsækjandi hafi afþakkað boð um skólavist háskólaárið 2018-2019. Skrásetningargjald er almennt óafturkræft.

Hlökkum til að sjá þig! Nánari upplýsingar á www.unak.is eða um netfangið unak@unak.is.

37


Til minnis


Til minnis


Útgefandi: Háskólinn á Akureyri, 2018 Umsjón: Katrín Árnadóttir Prófarkalestur: Finnur Friðriksson Hönnun og umbrot: Íslenska auglýsingastofan og Margrét Káradóttir Ljósmyndir: Auðunn Níelsson, Daníel Starrason og Guðrún Þórs Prentun: Litróf


Háskólinn á Akureyri Norðurslóð 2 600 Akureyri unak@unak.is unak.is


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Framhaldsnám 2018-2019 by Háskólinn á Akureyri // University of Akureyri - Issuu