2 minute read

Símenntun Háskólans á Akureyri

Meginhlutverk Símenntunar Háskólans á Akureyri er að bjóða upp á alhliða sí- og endurmenntun á háskólastigi með þarfir viðskiptavina og hagkvæmni í rekstri að leiðarljósi. Umsýsla þjónustu er lýtur að kennsluhúsnæði og fjárhagslegum rekstri heyrir undir viðkomandi einingar háskólaskrifstofu. Símenntun nýtur ekki opinberra fjárveitinga og þarf starfsemin því að standa undir útlögðum kostnaði og taka tillit til samkeppnislaga.

Við Símenntun eru tvö og hálft stöðugildi.

Advertisement

Frá 2017 hefur Símenntun fyrir hönd háskólans annast rekstur stjórnendanáms sem þróað er af Starfsmenntasjóði Samtaka atvinnulífsins og Samband stjórnendafélaga. Námið er á þriðja og fjórða hæfniþrepi íslenska hæfnirammans um menntun og námslok og er metið til 30 ECTS eininga. Námið, sem er 100% fjarnám, er fimm lotur sem nemendur stunda þar sem þeir kjósa en öll kennsla og námsefni er á vefsvæðum. Á árinu voru kenndar níu lotur og um 100 manns stunduðu námið. Í ágúst var fyrsti hópurinn útskrifaður, 14 manns, og var það í fyrsta skipti sem nemendur og kennarar hittust.

Starfsárið byrjar jafnan í ágúst með aðfaranámskeiðum fyrir nýja háskólanemendur. Námskeiðsframboð er fjölbreytt svo það höfði til fólks á breiðu aldursbili og á mismunandi sviðum. Því miður þurfum við alltaf að fella niður nokkurn fjölda námskeiða vegna þess að þau standa ekki undir útlögðum kostnaði sem veldur okkur tekjutapi vegna tilfallins undirbúningskostnaðar. Þá vinnur Símenntun að auknu samstarfi við deildir skólans til að auka möguleika einstaklinga með til þess bæran grunn að taka stök námskeið við skólann.

Sú nýbreytni var að námskeið voru haldin þar sem fólk tók þátt með aðstoð róbóta. Það tókst vel og mun Símenntun áfram leitast við að auka framboð námskeiða/náms óháð staðsetningu og nýta þannig tækni, eins og Zoom, sem er í takt við þá þróun sem hefur orðið í kennslu án staðsetningar innan háskólans.

Samstarf var við Blaðamannafélag Íslands um málþing í mars þar sem fjallað var um stöðu einkarekinna fjölmiðla og frumvarp til stuðnings rekstri þeirra. Mennta- og menningarmálaráðherra, Lilja Alfreðsdóttir, kom á málþingið og kynnti sýn sína á framtíð fjölmiðla. Mæltist þingið vel fyrir og ýmsum sjónarmiðum var komið á framfæri við ráðherra. Verkefnastjórnun – leiðtogaþjálfun (Vogl) var kennt áttunda veturinn í röð í samstarfi við Nordica ráðgjöf ehf. og lauk 21 nemandi náminu. Í þessu vinsæla námi, sem metið er sem ígildi 24 ECTS eininga, er lögð áhersla á að samtvinna stjórnun og samskiptafærni og koma nemendur í fjórar lotur í skólann til verkefnavinnu en sinna náminu að öðru leyti í fjarnámi. Níundi hópurinn hóf svo námið haustið 2019.

Hópur 18 leiðsögumanna var útskrifaður í maí eftir krefjandi vetrarlangt nám með starfi en staðarkennsla var tvö til þrjú síðdegi í viku og farið í nokkrar æfingaferðir í leiðsögn í rútu um helgar. Náminu lauk svo með sex daga hringferð um landið. Mikil ánægja var meðal nemenda með námið sem þótti bæði fróðlegt og skemmtilegt.

Elín Margrét Hallgrímsdóttir Forstöðumaður Símenntunar

This article is from: