
2 minute read
Miðstöð alþjóðasamskipta
Í lok árs 2018 var Miðstöð alþjóðasamskipta við HA stofnuð og heyrir hún undir Rektorsskrifstofu. Þá færðist staða verkefnastjóra alþjóðamála frá Markaðs- og kynningarsviði til miðstöðvarinnar. Rúnar Gunnarsson gegnir þar áfram stöðu verkefnastjóra alþjóðamála og Gunnar Már Gunnarsson er í hálfu starfi sem verkefnastjóri í málefnum norðurslóða (NRF).
Verkefnastjóri alþjóðamála hefur umsjón með stúdenta-, kennara- og starfsmannaskiptum, ásamt öðrum verkefnum sem tengjast alþjóðlegu samstarfi.
Advertisement
Á árinu 2019 voru alls 70 erlendir skiptinemar skráðir í HA, bæði í venjulegt skiptinám og í verknám, en það er fækkun um rúmlega þrjátíu nemendur milli ára. Nemendurnir komu frá eftirtöldum löndum: Austurríki, Bandaríkjunum, Danmörku, Finnlandi, Frakklandi, Frönsku Gíneu, Ítalíu, Kanada, Kína, Portúgal, Póllandi, Spáni, Svíþjóð, Tékklandi, Ungverjalandi og Þýskalandi.
Alls stunduðu 25 stúdentar frá HA skiptinám eða verknám erlendis í eftirtöldum löndum: Austurríki, Bandaríkjunum, Færeyjum, Danmörku, Japan, Kanada, Noregi, Portúgal, Spáni, Suður-Kóreu, Svíþjóð, Tékklandi og Þýskalandi.
Auk þess tóku stúdentar og kennarar þátt í samstarfsverkefnum í formi örnámskeiða innan Nordplus sem yfirleitt vara í um það bil viku. Fimmtán kennarar og starfsmenn stoðþjónustu HA fóru utan í kennara- eða starfsmannaskiptum í gegnum Erasmus eða Nordplus, og HA tók á móti 20 erlendum kennurum og öðrum starfsmönnum í skiptum.
Alþjóðaskrifstofa HA sá um móttöku og skipulagði kynningar á háskólanum fyrir fjölmargt starfsfólk frá erlendum gestaskólum og sendiráðum. Einnig var tekið á móti ýmsum öðrum erlendum gestum sem komu í óformlegar heimsóknir. Samstarfsskólar HA í gegnum samninga og samstarfsnet fyrir stúdenta- og kennaraskipti eru um 200 talsins. Samstarf þetta er unnið í gegnum eftirfarandi skiptiáætlanir: Erasmus+, Nordplus, North2North og tvíhliða samninga. HA fékk tvö Erasmus+ samstarfsverkefni samþykkt árið 2019. Annað verkefnið (EPaCur) er hýst af Heilbrigðisvísindasviði með það að markmiði að þróa námsefni og námskrá fyrir sjúkraflutninganám á Norðurlöndunum. Hitt verkefnið (APELE) er hýst í Félagsvísindadeild og fjallar um aðgengi að háskólanámi fyrir þá sem hafa óhefðbundinn bakgrunn, t.d. flóttafólk og innflytjendur.
Unnið er að því auka fjölda skiptinema frá HA og hafa verið haldnir sértækir fundir og kynningar fyrir stúdenta sem hafa áhuga á að fara í skiptinám eða framhaldsnám. Sem dæmi má nefna kynningar Fulbright-stofnunarinnar á Íslandi (Fulbright-styrkir), kynningar frá erlendum sendiráðum á Íslandi og kynningar á sumarnámskeiðum og möguleikum til skiptináms.
Vert er að benda á að þátttaka stúdenta og kennara í ráðstefnunni Arctic Circle, sem haldin var í október, var framúrskarandi góð. Um 30 stúdentar frá HA tóku þar þátt í ráðstefnu um norðurslóðamál og unnu sem sjálfboðaliðar á ráðstefnunni. Margir kennarar og rannsakendur frá HA voru með erindi á ráðstefnunni. Einnig var HA með sameiginlega málstofu fyrir Arctic Circle í samstarfi við háskólann í Tromsö, University of Southern Maine, HÍ og HR. Frekar er fjallað um málefni norðurslóða í kaflanum um NRF.