
2 minute read
Góðvinir Háskólans á Akureyri
Frá vinstri: Einar Brynjólfsson, formaður Góðvina, Birna Heiðarsdóttir, handhafi viðurkenningar Góðvina á Hug- og félagsvísindasviði, Helga Margrét Jóhannesdóttir, handhafi viðurkenningar Góðvina á Heilbrigðisvísindasviði, Andrés Tryggvi Jakobsson, handhafi viðurkenningar Góðvina á Viðskipta- og raunvísindasviði, og Eyjólfur Guðmundsson rektor.
Góðvinir eru samtök brautskráðra stúdenta frá Háskólanum á Akureyri og annarra velunnara skólans. Markmið samtakanna er að auka tengsl háskólans við fyrrum stúdenta sína og styðja við uppbyggingu skólans eftir fremsta megni, fjárhagslega og á annan hátt. Þetta gera Góðvinir meðal annars með því að heiðra stúdenta við brautskráningu, innheimta félagsgjöld og styðja við háskólann með gjöfum.
Advertisement
Á árinu var haldið áfram að efla félagið og styrkja tengslin og þá sér í lagi við fyrrverandi nemendur eftir stofnun Alumni-deildarinnar (fyrrverandi nemendur háskólans). Þetta var gert með því að hóa í þá sem eiga 1, 5, 10, 20 og 30 ára brautskráningarafmæli.
Ekki hefur enn tekist að koma á laggirnar stofnfjársjóði. Sjóðurinn sem slíkur á sér fyrirmyndir í Bandaríkjunum en þar nefnast slík fyrirbæri endowment fonds. Stefnt var að því að stofna sjóðinn með einni milljón króna framlagi frá Góðvinum um leið og lagaatriði væru frágengin. Nú eru hvorki lagaatriði né framlag frá Góðvinum tryggð. Með sjóði þessum fá velunnarar tækifæri til að styrkja háskólann með peningagjöfum. Stofnskrá sjóðsins mun tryggja að fjármunirnir komi skólanum vel. Stefnt er að því að sjóðurinn vaxi og dafni en einungis verður hægt að nota vextina til verkefna.

Frá vinstri: Einar Brynjólfsson, formaður Góðvina, Ólöf María Brynjarsdóttir, handhafi viðurkenningar Góðvina í framhaldsnámi, og Eyjólfur Guðmundsson rektor.
GÓÐVINIR HÁSKÓLANS Á AKUREYRI

Almumni – fyrrverandi stúdentar frá HA hittast á Háskólahátíð.

Vegna bágrar fjárhagsstöðu félagsins var ekki unnt að veita Vísindaskóla unga fólksins styrk að upphæð krl. 150.000 eins og undanfarin ár. Engar aðrar umsóknir um styrki bárust Góðvinum að þessu sinni.
Að vanda heiðruðu Góðvinir kandídata fyrir óeigingjarnt starf í þágu háskólans við brautskráningu á Háskólahátíð í júní. Eftir tilnefningar frá fræðasviðum, Markaðs- og kynningarmálum og Stúdentafélagi HA var ákveðið að eftirtaldir kandídatar fengju viðurkenningu:
Hug- og félagsvísindasvið: Birna Heiðarsdóttir og Ólöf María Brynjarsdóttir (framhaldsnám)
Heilbrigðisvísindasvið: Helga Margrét Jóhannesdóttir
Viðskipta- og raunvísindasvið: Andrés Tryggvi Jakobsson
Viðurkenningin er gullnæla sem Kristín Petra Guðmundsdóttir gullsmiður hannaði og smíðar sérstaklega fyrir Góðvini.
Á Háskólahátíð var efnt til endurfunda fyrir útskriftarárgangana 1989, 1994, 1999, 2004, 2009, 2014 og 2018. Haldið var kokteilboð í matsal 14. júní þar sem fulltrúi fyrsta útskriftarhóps HA hélt tölu.
Aðalfundur fyrir árið 2018 var haldinn 26. nóvember. Hann var auglýstur eins og lög mæla fyrir um. Stjórnina skipa áfram eftirtaldir: Einar Brynjólfsson, formaður stjórnar Berglind Ósk Guðmundsdóttir Elva Gunnlaugsdóttir Kristín Sigurðardóttir, gjaldkeri Sólveig María Árnadóttir, fulltrúi Stúdentafélags Háskólans á Akureyri Katrín Árnadóttir forstöðumaður, starfsmaður Góðvina
Varastjórn: Andrés Tryggvi Jakobsson, varafulltrúi SHA Árni V. Friðriksson Kristjana Hákonardóttir Þorsteinn Gunnarsson Eyrún Elva Marinósdóttir
Fundargerð aðalfundar
Vefsíða Góðvina
Hópar bautskráðra eru á Facebook: Útskriftarárgangur HA 1989, 1999, 2000, 2004, 2005, 2006, 2007, 2008, 2009, 2010, 2011, 2012, 2013, 2014, 2015, 2016, 2017, 2018, 2019, 2020
