1 minute read

Félagsstofnun stúdenta á Akureyri – FÉSTA

Next Article
Lokaverkefni

Lokaverkefni

Félagsstofnun stúdenta á Akureyri (FÉSTA) er sjálfseignarstofnun sem Háskólinn á Akureyri, skráðir stúdentar við HA og Akureyrarbær eiga aðild að. Tilgangur FÉSTA er að eiga og reka stúdentaíbúðir og annast aðra þjónustu við stúdenta. Sérstakar reglur gilda um úthlutun stúdentahúsnæðis. Umsóknarfrestur um sumarvist er til 1. mars og fyrir vetrarvist til 20. júní.

Félagsstofnun rekur stúdentagarða við:

Advertisement

Skarðshlíð 46, með 14 herbergjum og 10 íbúðum sem teknar voru í notkun 1989, Klettastíg, með 12 herbergjum og 18 íbúðum sem teknar voru í notkun 1993–1994, Drekagil, þar sem 29 íbúðir voru teknar í notkun 2000, Tröllagil, með 36 tveggja og þriggja herbergja íbúðum sem teknar voru í notkun í september 2004, Kjalarsíðu, með 40 íbúðum sem teknar voru í notkun í ágúst 2008. Framkvæmdastjóri Félagsstofnunar stúdenta er Jóhannes Baldur Guðmundsson.

Stjórn FÉSTA skipuðu:

Halla Margrét Tryggvadóttir, fulltrúi Akureyrarbæjar Hólmar Svansson, fulltrúi háskólaráðs Háskólans á Akureyri Harpa Halldórsdóttir, fulltrúi háskólaráðs Háskólans á Akureyri Steinunn Alda Gunnarsdóttir stúdent, skipuð af Stúdentafélagi Háskólans á Akureyri – SHA Fríða Freydís Þrastardóttir stúdent, skipuð af Stúdentafélagi Háskólans á Akureyri – SHA.

Til vara:

Sigrún Lóa Kristjánsdóttir, fulltrúi háskólaráðs HA Elfa Björk Víðisdóttir stúdent, skipaður af Stúdentafélagi Háskólans á Akureyri – SHA Orri Kristjánsson stúdent, skipaður af Stúdentafélagi Háskólans á Akureyri – SHA

Vefsíða FÉSTA

This article is from: