3 minute read

Bókasafn og upplýsingaþjónusta

Next Article
Lokaverkefni

Lokaverkefni

BÓKASAFN OG UPPLÝSINGAÞJÓNUSTA HÁSKÓLANS Á AKUREYRI

Bókasafn og upplýsingaþjónusta rekur bókasafn háskólans og annast sérsöfn eins og lista- og steinasöfn. Bókasafnið sinnir einnig bókasafnsþjónustu við Háskólann á Hólum, ígildi 25% stöðugildis, sem meðal annars felur í sér upplýsingaþjónustu, millisafnalán og kennslu í upplýsingalæsi, UL.

Advertisement

Fastráðnir starfsmenn í árslok 2019 voru fimm talsins í fimm stöðugildum.

Forstöðumaður er Astrid Margrét Magnúsdóttir.

Starfsfólk bókasafnsins veitir ráðgjöf og aðstoð við upplýsinga- og heimildaleit og leggur áherslu á að veita nemendum, starfsfólki háskólans og öðrum lánþegum faglega og persónulega þjónustu. Bókasafnið leggur áherslu á að bjóða aðgang að vönduðu úrvali gagnasafna og hefur reynt að byggja safnkostinn upp jafnt og þétt þannig að hann endurspegli fræðasvið skólans. Rafrænn safnkostur bókasafnsins er aðgengilegur ýmist í opnum aðgangi, landsaðgangi , eða í séráskriftum á staðarneti háskólans.

Hlutverk bókasafns og upplýsingaþjónustu er að annast kennslu og þjálfun í UL, en það er sú færni sem gerir mönnum kleift að leita upplýsinga, leggja mat á gæði þeirra og hagnýta þær í námi, kennslu og rannsóknum. Fræðsla í UL fer meðal annars fram í völdum námskeiðum í samráði við kennara og í gegnum þjónustuna Bókaðu bókasafnsfræðing. Bæði stúdentar og kennarar geta bókað slíkan tíma og fengið aðstoð bókasafnsfræðings. Fjarnemar geta bókað tíma í gegnum fjarfundabúnaðinn Zoom. Samtals fór kennsla og þjálfun í UL fram í 141 kennslustund á árinu og náði til 1.343 manns.

Starfsmenn bókasafnsins taka þátt í ýmsum samráðshópum, til að mynda:

• Skemman , þar sem varðveitt eru lokaverkefni nemenda í grunn- og framhaldsnámi.

• Opin vísindi , þar sem vistaðar eru ritrýndar vísindagreinar fræðimanna.

• Samráðshópur um ritstuldarvarnir sem innleiddi hugbúnaðinn

Turnitin . Bókasafnið sér um námskeið, kynningar og daglega aðstoð á Turnitin fyrir stúdenta og kennara.

• Alþjóðadagur læsis. Frá árinu 1965 hafa Sameinuðu þjóðirnar helgað 8. september málefnum læsis. Miðstöð skólaþróunar við

Eftirfarandi mynd er af kynningu á „Segðu bless við stressið!“ sem Bókasafn HA stóð fyrir í prófatíð ásamt Miðstöð náms- og starfsráðgjafar og Kennslumiðstöðvar.

BÓKASAFN OG UPPLÝSINGAÞJÓNUSTA HÁSKÓLANS Á AKUREYRI

HA, Bókasafn HA, Amtsbókasafnið, Barnabókasetur og fræðslusvið Akureyrar hafa starfað saman að undirbúningi ýmissa læsisviðburða í tilefni dagsins.

• Skólabókaverðir á Akureyri hittast reglulega til að bera saman bækur sínar, Bókasafn HA á fulltrúa þar.

• Vísindaskóli unga fólksins veitir námfúsum börnum innsýn í vísindi líðandi stundar. Skólinn veitir börnum tækifæri til að víkka sjóndeildarhringinn og kynnast Háskólanum á Akureyri.

• Innleiðing Pure, sem er upplýsingakerfi um rannsóknir, hófst síðla árs 2019. Fyrsti fundur stýrinefndar var haldinn 1. nóv. 2019. Bókasafnið á fulltrúa í nefndinni.

• Einnig er samvinna við Ritver HA. Ritverið er staðsett á bókasafni og hefur það meginmarkmið að efla fræðileg skrif við stofnunina.

Eftirfarandi sýningar voru á bókasafninu á árinu:

Í mars var samsýning á verkum hóps sem kallar sig: Gellur sem mála í bílskúr. Sýningin nefndist Bland í poka

Sýningin Where we belong: aspects of migration var afrakstur umræðna og kennslu um innflytjendur í Háskólanum á Akureyri veturinn 2018–2019. Stúentar á námskeiðinu „People on the move: immigration,

Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir, framkvæmdastýra Kvenréttindafélags Íslands, Ólafur Rúnar Ólafsson, ræðismaður Frakklands, og Katrín Björg Ríkarðsdóttir, framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu, opnuðu sýninguna Oddhvassir blýantar.

mobility, and social transformation in a global world“ hönnuðu sýninguna þar sem umfjöllunarefnið var: Þar sem við eigum heima: Margar hliðar fólksflutninga.

Alþjóðleg skopmyndasýning um kvenréttindi og málfrelsi. Sýningin var í boði Kvenréttindafélags Íslands, sendiherra Frakklands á Íslandi, Jafnréttisstofu og Háskólans á Akureyri.

Velkomin á opnun alþjóðlegrar skopmyndasýningar um kvenréttindi og málfrelsi á Bókasafni Háskólans á Akureyri, 31. janúar kl. 16.

Sýningin er í boði Kvenréttindafélags Íslands, sendiherra Frakklands á Íslandi, Jafnréttisstofu og Háskólans á Akureyri.

LÉTTAR VEITINGAR Í BOÐI OG ÖLL VELKOMIN

This article is from: