2 minute read

Gæðamál

Next Article
Lokaverkefni

Lokaverkefni

Í september 2019 lauk Sigrún Magnúsdóttir störfum sem gæðastjóri háskólans og Vaka Óttarsdóttir tók við en þá sem gæða- og mannauðsstjóri. Að sama skapi breyttist starfsheiti og starfslýsing verkefnastjóra mannauðsmála og starfar hann nú sem verkefnastjóri gæða- og mannauðsmála. Með þessum breytingum gefst tækifæri til teymisvinnu auk þess sem áhætta fylgir því að þekking á ákveðnum málaflokki sé einungis hjá einum starfsmanni. Sigrún Magnúsdóttir hélt áfram störfum sem sérfræðingur og stýrir undirbúningi og skýrslugerð við stofnanaúttekt háskólans ásamt því að leiðbeina deildum í sjálfsmati.

Til þess að tryggja að Háskólinn á Akureyri standist alltaf þær gæðakröfur sem gerðar eru til hans er starfrækt gæðaráð við Háskólann á Akureyri. Meginhlutverk ráðsins er að bera ábyrgð á framkvæmd gæðakerfis háskólans. Fundir ráðsins eru haldnir einu sinni í mánuði yfir vetrartímann og hélt það níu fundi árið 2019.

Advertisement

Sigrún Magnúsdóttir gæðastjóri var formaður gæðaráðs þar til í september þegar Vaka Óttarsdóttir tók við. Þrír akademískir fulltrúar fræðasviða voru Kristín Margrét Jóhannsdóttir, lektor á Hug- og félagsvísindasviði, Arnheiður Eyþórsdóttir, aðjúnkt á Viðskipta- og raunvísindasviði, og Bergljót Borg, aðjúnkt á Heilbrigðisvísindasviði. Fulltrúar starfsfólks voru þær Sigríður Sía Jónsdóttir lektor, fulltrúi akademískra starfsmanna, og Helena Sigurðardóttir kennsluráðgjafi, fulltrúi starfsmanna. Varamenn þeirra voru Sigrún Lóa Kristjánsdóttir verkefnastjóri og Margrét Elísabet Ólafsdóttir lektor. Fulltrúar stúdenta í gæðaráði voru Daníel Gunnarsson og Leifur Guðni Grétarsson. Varamaður stúdenta var Sólveig María Árnadóttir. Loks áttu sæti í ráðinu forstöðumaður Kennslumiðstöðvar, Auðbjörg Björnsdóttir, og forstöðumaður Nemendaskrár, Katrín Árnadóttir. Rannveig Gústafsdóttir, verkefnastjóri hjá RHA, var ritari gæðaráðs.

Í febrúar 2019 var þáverandi Félagsvísinda- og lagadeild skipt upp í þrjár deildir í kjölfar nokkurra mánaða breytingastarfs sem unnið var með öllu starfsfólki sviðsins. Sökum þessarar breytingavinnu var vinna deildarinnar við sjálfsmat sett á bið og hófst hún að nýju haustið 2019 en þá út frá nýrri deildaskiptingu. Haustmisserið 2019 hófu því alls fimm deildir vinnu við sjálfsmat; Auðlindadeild, Félagsvísindadeild, Lagadeild, Sálfræðideild og Viðskiptadeild, og er það skv. sjö ára áætlun háskólans um sjálfsmat starfseininga (Subject-level Review – SLR). Sjálfsmatsskýrslur eru síðan innlegg í stóru stofnanamatsskýrslu háskólans.

Í október hélt Sigurður Óli, framkvæmdastjóri gæðaráðs háskólanna, kynningu fyrir sjálfsmatsteymin þar sem hann fór yfir ferli vinnunnar og sérstaklega yfir mat á umhverfi rannsókna, en það er þáttur sem hefur ekki áður verið hluti af sjálfsmati eininga.

Bolognateymið er nefnd sem heyrir undir gæðaráð. Hlutverk þess er að veita álit og ráðgjöf varðandi nýtt námsframboð, uppsetningu lærdómsviðmiða og samspil lærdómsviðmiða námsleiða við lærdómsviðmið einstakra námskeiða. Töluvert var um umsóknir um nýtt námsframboð sem teymið las yfir og leiðbeindi um.

Vinna ársins í gæðaráði einkenndist af áframhaldandi umbótastarfi eftir síðustu stofnanaúttekt og sem fyrr markvissum undirbúningi undir gæðastarf samkvæmt rammaáætlun Quality Enhancement Handbook for Icelandic Higher Education, 2. útgáfu (QEF2).

Áhersla var lögð á þróun og innleiðingu á nýju samtalsmiðuðu námskeiðsmati sem starfshópur nemenda og starfsmanna hafði kynnt sér í Tromsö árið áður. Sú vinna hófst með kynningu gæðastjóra í öllum deildum á vormisseri 2019 og í kjölfarið var skipaður hópur til að þróa aðferðina áfram sérstaklega fyrir Háskólann á Akureyri. Í hópnum áttu sæti, auk gæðastjóra, tveir fulltrúar stúdenta, þrír akademískir fulltrúar og verkefnastjóri prófa og námsmats. Vinnan gekk vel og munu fyrstu deildirnar prófa hina nýju aðferð á vormisseri 2020.

Fundargerðir gæðaráðs eru birtar á innri vef háskólans, Uglu

This article is from: