1 minute read

Miðstöð doktorsnáms

Next Article
Lokaverkefni

Lokaverkefni

Hlutverk Miðstöðvar doktorsnáms er að fara með málefni doktorsnáms við háskólann og efla rannsóknir við skólann. Í umsjón með doktorsnámi felst allur ferill doktorsnema frá umsóknarferli til mats á doktorsverkefni og doktorsvarnar. Miðstöð doktorsnáms heldur utan um námsferilsskrá fyrir hvern doktorsnema, framvinduskýrslur og niðurstöður áfangamats.

Doktorsnámsráð, sem er stjórn Miðstöðvar doktorsnáms, ber akademíska ábyrgð á doktosnámi við háskólann enda tekur ráðið allar helstu ákvarðanir sem varða námsferil doktorsnema.

Advertisement

Það er á ábyrgð Miðstöðvar doktorsnáms að gæði námsins séu samkvæmt viðmiðum um æðri menntun og prófgráður og að doktorsnámið falli að heildarhlutverki háskólans sem fræðastofnunar í þágu samfélagsins. Til þess að efla þekkingu og færni leiðbeinenda doktorsnema stóð Miðstöð doktorsnáms fyrir tveimur sérhönnuðum námskeiðum á árinu.

Við lok árs 2019 voru samtals fimm doktorsnemar skráðir við háskólann, þrír í félagsvísindum og tveir í heilbrigðisvísindum. Fyrirhugað er að fyrstu doktorsnemarnir brautskráist 2023.

Miðstöð doktorsnáms gegnir einnig hlutverki miðlægrar stjórnsýslu rannsókna við háskólann. Það felur í sér grunnmat vegna umsókna um framgang akademískra starfsmanna háskólans, samskipti við dómnefnd háskólans og umsækjendur um akademískar stöður, og umsjón með rannsóknarmisserum akademískra starfsmanna. Einnig umsjón með rannsóknarstigum og samskipti við akademíska starfsmenn vegna mats á stigum og úrvinnslu. Enn fremur samskipti vegna úthlutunar úr vinnumatssjóði. Fulltrúar í doktorsnámsráði við lok ársins 2019:

Dr. Lars Gunnar Lundsten, forstöðumaður Miðstöðvar doktorsnáms, formaður (varafulltrúi dr. Stefán B. Sigurðsson, prófessor emeritus) Dr. Sigríður Halldórsdóttir prófessor, fulltrúi Heilbrigðisvísindasviðs (varafulltrúi dr. Árún K. Sigurðardóttir prófessor) Dr. Guðmundur Heiðar Frímannsson prófessor, fulltrúi Hug- og félagsvísindasviðs (varafulltrúi dr. Anna Ólafsdóttir dósent) Dr. Grétar Þór Eyþórsson prófessor, fulltrúi Viðskipta- og raunvísindasviðs (varafulltrúi dr. Steingrímur Jónsson prófessor) Dr. Guðrún Rósa Þorsteinsdóttir, forstöðumaður RHA, fulltrúi háskólaskrifstofu (varafulltrúi dr. Hilmar Janusson, forstjóri Genís).

Við árslok 2019 skipaði rektor einnig fulltrúa doktorsnema í ráðið sem tók sæti frá ársbyrjun 2020:

Karen Birna Þorvaldsdóttir, doktorsnemi (varafulltrúi Hulda Sædís Bryngeirsdóttir doktorsnemi)

Eitt stöðugildi er við Miðstöð doktorsnáms við HA fyrir utan forstöðumann. Starfsmenn Miðstöðvar doktorsnáms við árslok 2019 voru Lars Gunnar Lundsten forstöðumaður og Sif Jónsdóttir, verkefnastjóri doktorsnáms og stjórnsýslu rannsókna.

Stefán B. Sigurðsson, prófessor emeritus, starfar sem ráðgjafi Miðstöðvar doktorsnáms.

Miðstöð doktorsnáms heyrir undir skrifstofu rektors.

This article is from: