
3 minute read
Markaðs- og kynningarmál
Markaðs- og kynningarstarf og þjónustuborð nemendaskrár (MKÞN) fóru í eina sæng undir forystu forstöðumanns Markaðs- og kynningarmála 1. september 2018.
Tveir starfsmenn sinntu verkefnum Markaðs- og kynningarmála: Katrín Árnadóttir forstöðumaður og Kristjana Hákonardóttir, verkefnastjóri og vefstjóri.
Advertisement
Kynningarfulltrúi fyrir hönd Stúdentafélags HA var Birna Heiðarsdóttir og tók hún virkan þátt í undirbúningi og framkvæmd opinna daga og Háskóladagsins og sinnti fleiri tilfallandi verkefnum. Fulltrúi fjarnema háskólans tók einnig virkan þátt í kynningarstarfi. Á vormánuðum tók Karen Jónasdóttir við kefli Birnu og var ekki síður öflug.
Kynningar í framhaldsskólum voru áfram í höndum verktaka – fyrrverandi stúdents – á höfuðborgarsvæðinu til áramóta.
Hafist var handa við hönnun kynningarefnis strax á haustmánuðum 2018 enda vinna við gerð kynningarbæklings mikil. Huga þarf að ljósmyndum, réttum texta svo og uppsetningu og prentun í tíma fyrir Háskóladaginn. Ákveðið var að gefa ekki út sérstakan bækling fyrir framhaldsnám.
Auglýsingar í fjölmiðlum voru að venju vandaðar fyrir innritun 2019–2020 en megináhersla var lögð á auglýsingar og kynningar á samfélagsmiðlum.
Birtingaáætlun var unnin í samstarfi við ABS birtingarhús en grafísk hönnun auglýsinga var í höndum Margrétar Káradóttur. Mikið var notast við kynningarmyndband um sveigjanlegt nám sem fór víða. Eins og árin á undan var byggt á hönnun Íslensku auglýsingastofunnar við gerð bæklings, vefborða og auglýsinga fyrir ljósvakamiðla.
Háskóladagurinn var haldinn í Reykjavík í samstarfi allra háskóla landsins laugardaginn 2. mars. Allir sjö háskólar landsins kynntu þar námsframboð sitt. Í aðdragandanum var lagt í gerð kynningarmynd-
Svipmyndir frá Háskóladeginum. Frá vinstri: Einar Hannesson, stúdent í sjávarútvegsfræði, Katrín Árnadóttir, forstöðumaður Markaðs- og kynningarmála, Sigríður Arna Lund, stúdent í iðjuþjálfunarfræði, og Birna Heiðarsdóttir, kynningarfulltrúi og stúdent í fjölmiðlafræði.

banda sem fóru í spilun á samfélagsmiðlum . Kynning Háskólans á Akureyri fór fram á neðri hæð á Háskólatorgi HÍ. Rúmlega 40 manns frá HA kynntu þar námið og útdeildu um 1.000 bæklingum.
Í kjölfar Háskóladagsins voru haldnar sameiginlegar kynningar á völdum stöðum á landinu: Reykjanesbæ, Fjölbrautaskóla Suðurlands, Fjölbrautarskóla Vesturlands, Menntaskólanum á Egilsstöðum og í Verkmennta- og Menntaskólanum á Akureyri. Kynningunni í Vestmannaeyjum var frestað vegna veðurs. Í þessum kynningum stóð kynningarteymi stúdenta vaktina og fékk til liðs við sig stúdenta af svæðinu.
Öllum framhaldsskólum landsins var boðið að sækja Opna daga í HA sem fóru fram 3. og 4. október. Útskriftarárgangar á Norðurlandi þáðu boðið og fengu sumir hverjir rútuferðir til Akureyrar til að vera

MARKAÐS- OG KYNNINGARMÁL

Glæsilegur hópur kynnir allt nám við HA.
viðstaddir kynninguna. Eftir strangar æfingar kynntu fulltrúar námsleiðana nám sitt og kynningarnefnd stúdenta kom að allri skipulagningu ásamt Markaðs- og kynningarmálum. Kynningin gekk vel og framhaldsskólanemendur sýndu mikinn áhuga sem lýsti sér í spurningum til fulltrúa námsleiðanna að kynningum loknum. Ekki spillti fyrir að gestirnir gátu nælt sér í pizzusneið og gos áður en yfir lauk. Að þessu sinni komu tæplega 300 manns frá Verkmenntaskólanum á Akureyri, Menntaskólanum á Akureyri, Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra, Menntaskólanum á Tröllaskaga, Framhaldsskólanum á Húsavík og Framhaldsskólanum á Laugum.
Aðrar námskynningar áttu sér stað í gegnum Starfamessu, sem skipulögð er af starfsráðgjöfum grunnskólanna og fór fram 1. Febrúar. Einnig var kynning fyrir Starfsendurhæfingu Norðurlands og kynningar á staðnum á Starfatorgi í Flensborg og á Tæknidegi fjölskyldunnar í Neskaupsstað. Stærri viðburðir undir umsjón Markaðs- og kynningarmála voru á árinu veiting heiðursdoktorsnafnbótar til Rögnvaldar Hannessonar og Vigdísar Finnbogadóttur, og umsjón með Háskólahátíð og nýnemadögum.
Starfsfólk Markaðs- og kynningarmála kom einnig að skipulagningu fjölmargra annarra viðburða innan háskólans. Nefna má Vísindaviku Rannís, Stelpur og tækni, LÝSU, Vísindasetur í Hofi, Sjávarútvegsráðstefnuna og Arctic Circle ásamt ráðstefnum og opnum fyrirlestrum.
Kristjana Hákonardóttir fór í fæðingarleyfi eftir sumarfrí 2019. Við hennar verkefnum tók Birna Heiðarsdóttir, fyrrverandi stúdent og kynningarfulltrúi stúdenta.
Þann 11. nóvember 2019 fór forstöðumaður MKÞN í veikindaleyfi og lét af störfum sem forstöðumaður þjónustuborðs nemendaskrár. Við hennar störfum í 50% stöðu verkefnastjóra nemendaskrár tók Bára Sif Sigurjónsdóttir.



Svipmyndir frá Opnum dögum.