ÁRSSKÝRSLA 2019
EITT OG ANNAÐ Prófessor Kristín Aðalsteinsdóttir sæmd fálkaorðunni Forseti Íslands sæmdi 14 Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu 1. janúar. Þeirra á meðal var prófessor Kristín Aðalsteinsdóttir og fékk hún riddarakross fyrir störf á vettvangi menntavísinda. Kristín lauk kennaraprófi frá Kennaraháskóla Íslands 1966 og bætti við sig sérkennaraprófi 1971. Þá hélt hún til Noregs þar sem hún lauk B.A. í sérkennslufræðum við Statens Spesiallærerhögskole í Osló. Hún lauk M.Ed. í menntunarfræðum við University of Bristol í Bretlandi og einnig Ph.D. í kennslufræði við sama háskóla. Kristín hefur starfað við Háskólann á Akureyri síðan 1994. Fyrst sem stundakennari, síðan sem fastráðinn sérfræðingur sérfræðingur og loks sem deildarforseti kennaradeildar. Kristín var fyrsti kvenprófessorinn við kennaradeild HA og hún var einnig fyrst kvenna til þess að stýra deildinni úr stóli deildarforseta.
Rögnvaldur Hannesson heiðursdoktor við Háskólann á Akureyri Þann 18. janúar veitti Viðskipta- og raunvísindasvið Rögnvaldi Hannessyni, prófessor emeritus, heiðursdoktorsnafnbót við Háskólann á Akureyri. Rögnvaldur er heimskunnur auðlindahagfræðingur. Hann hefur ritað níu útgefnar bækur, ritstýrt nokkrum öðrum bókum og birt yfir 100 ritrýndar greinar og bókarkafla. Rögnvaldur var kennari við HA áður fyrr og kenndi þá fiskihagfræði við sjávarútvegsdeild. Hann hefur verið háskólanum afar mikilvægur við að efla getu og sérstöðu á sviði sjávarútvegs- og auðlindafræða almennt. Í tilefni af veitingu heiðursdoktorsnafnbótarinnar var haldin ráðstefna á sviði sjávarútvegs föstudaginn 18. janúar. Yfirskrift ráðstefnunnar var ,,Fiskveiðar og þjóðarhagur‘‘ og á henni fjallaði Rögnvaldur, ásamt fræðimönnum frá Háskólanum á Akureyri og Háskóla Íslands, um ýmsar rannsóknir á sviði sjávarútvegs svo sem um áhrif skipa og veiðarfæra á umhverfið, loftslagsbreytingar og áhrif þeirra, stærð einstakra fiskistofna, virðiskeðju í sjávarútvegi og ýmislegt fleira. Í framhaldi af ráðstefnunni var blásið til hátíðar í hátíðarsal skólans þar sem Rögnvaldi var veitt heiðursdoktorsnafnbót.
Frá vinstri: Rannveig Björnsdóttir forseti Viðskipta- og raunvísindasviðs, Rögnvaldur Hannesson og Steingrímur Jónsson
74