Ársskýrsla 2019

Page 68

ÁRSSKÝRSLA 2019

SJÁVARÚTVEGSMIÐSTÖÐ HÁSKÓLANS Á AKUREYRI Árið 2019 var einn starfsmaður, forstöðumaður, í fullu starfi við Sjávarútvegsmiðstöðina við Háskólann á Akureyri. Fjölbreyttum verkefnum var sinnt á vegum miðstöðvarinnar á árinu 2019 og tóku stúdentar í sjávarútvegsfræði við Háskólann á Akureyri virkan þátt í starfseminni. Starfsemin var með hefðbundnum hætti þar sem áhersla var lögð á Sjávarútvegsskóla unga fólksins á Norður- og Austurlandi, Sjávarútvegsskóla Fjallabyggðar og Sjávarútvegsskóla Sameinuðu þjóðanna. Samtals sóttu 159 nemendur Sjávarútvegsskóla unga fólksins sumarið 2019. Einnig var unnið árlegt verkefni fyrir atvinnu- og nýsköpunarráðuneytið sem á árinu 2019 var úttekt á námi í fiskeldi á Íslandi og í ítarlegri skýrslu um verkefnið voru m.a. lagðar fram tillögur um fyrirkomulag menntunar á þessu sviði á Íslandi til framtíðar. Forstöðumaður miðstöðvarinnar hefur einnig tekið að sér bókhald fyrir félagið „Konur í sjávarútvegi“ og er sú vinna og aðstaða vegna hennar stuðningur við félagið.

og þrjár vikur á Akureyri. Eins og Sjávarútvegsskóli Austurlands er þetta framtíðarverkefni sem skilar tekjum í Sjávarútvegsmiðstöðina. Þau tvö fyrirtæki sem tóku þátt í Sjávarútvegsskólanum á Norðurlandi greiddu rúmlega 2.3 milljónir króna en kostnaðurinn fólst aðallega í launum kennara og forstöðumanns auk ýmiss annars rekstrarkostnaðar. Einnig komu styrkir frá fyrirtækjum og stofnunum að upphæð 1,3 milljónir króna. Heildarkostnaður vegna Sjávarútvegsskóla Norðurlands var því 3,6 milljónir króna á árinu 2019. Tveir stúdentar í sjávarútvegsfræði og nýútskrifaðir sjávarútvegsfræðingar frá HA sinntu kennslu við skólann í sumarstörfum. Verkefnið var unnið í nánu samstarfi við Vinnuskóla sveitarfélaga á hverjum stað og héldu nemendur vinnuskólans launum sínum meðan á kennslu stóð. • SJÁVARÚTVEGSSKÓLI FJALLABYGGÐAR

Árið 2019 var ákveðið að kenna Sjávarútvegsskólann í Fjallabyggð og sá forstöðumaður alfarið um skipulag og utanumhald hans. Sumarið 2019 sóttu samtals 16 nemendur skólann og stóð kennsla yfir í eina viku. Fjögur fyrirtæki tóku þátt í að að greiða kostnað skólans, sem var í heildina rúmlega 800 þúsund kr. Helstu kostnaðarliðir voru laun kennara auk annars rekstrarkostnaðar. Til frádráttar kom beinn styrkur að upphæð kr. 100.000 áður en áföllnum kostnaði var skipt á milli fyrirtækjanna fjögurra. Tveir nemendur í sjávarútvegsfræði og nýútskrifaðir sjávarútvegsfræðingar frá HA sinntu kennslu við skólann í sumarstörfum. Verkefnið var unnið í nánu samstarfi við Vinnuskóla sveitarfélagsins og héldu nemendur launum sínum meðan á kennslu stóð.

Á meðal helstu verkefna Sjávarútvegsmiðstöðvar HA á árinu 2019: • SJÁVARÚTVEGSSKÓLI AUSTURLANDS

Forstöðumaður Sjávarútvegsmiðstöðvar HA sá um skipulag og utanumhald Sjávarútvegsskóla Austurlands en miðstöðin tók við því verkefni sumarið 2016 eftir að verkefnið hafði verið á höndum fyrirtækja og sveitarfélaga á Austurlandi til nokkurra ára. Sumarið 2019 sóttu samtals 67 nemendur skólann og kennt var á fimm þéttbýlisstöðum. Kennsla stóð yfir í eina viku á hverjum stað. Þetta er framtíðarverkefni sem skilar tekjum í Sjávarútvegsmiðstöðina, en þau fimm sjávarútvegsfyrirtæki á Austurlandi sem tóku þátt í skólanum 2019 greiddu um 3,6 milljónir króna til miðstöðvarinnar. Aðalkostnaðarliðurinn voru laun kennara og forstöðumanns auk ýmiss annars rekstrarkostnaðar. Auk þess komu styrkir frá fyrirtækjum og stofnunum eða 1,2 milljónir króna. Heildarkostnaður skólans var því 4,8 milljónir króna. Tveir nemendur í sjávarútvegsfræði og nýútskrifaðir sjávarútvegsfræðingar frá HA sinntu kennslu við skólann í sumarstörfum. Verkefnið var unnið í nánu samstarfi við Vinnuskóla sveitarfélaga á hverjum stað og héldu nemendur vinnuskólans launum sínum meðan á kennslu stóð.

• SJÁVARÚTVEGSSKÓLI NORÐURLANDS

68

Forstöðumaður miðstöðvarinnar stofnaði Sjávarútvegsskóla Norðurlands. Skólinn var rekinn í fyrsta skipti sumarið 2017 og sá forstöðumaður alfarið um skipulag og utanumhald hans. Sumarið 2019 sóttu samtals 76 nemendur skólann og kennt var á þremur þéttbýlisstöðum. Kennsla stóð yfir í eina viku á Dalvík og Grenivík

• SJÁVARÚTVEGSSKÓLI SAMEINUÐU ÞJÓÐANNA – UNU – FTP Sjávarútvegsmiðstöðin hafði almenna umsjón með nemendum UNU-FTP (Fisheries Training Program) á meðan dvöl þeirra á Akureyri stóð en hópurinn allur (~30 nemendur) kom fyrst í nokkurra daga heimsókn seint á haustmisseri árið 2018 og sat fyrirlestra auk þess að heimsækja fyrirtæki. Forstöðumaður tók að sér einn tvöfaldan fyrirlestur auk þess að skipuleggja heimsóknir í fyrirtæki á Norðurlandi. Í framhaldi af þessari heimsókn unnu nemendur að verkefnum sínum við HA yfir rúmlega þriggja mánaða tímabil á vormisseri árið 2019. Skólárið 2019–2020 unnu 3 nemendur verkefni sín við Háskólann á Akureyri. • SÉRVERKEFNI UNNIÐ FYRIR ATVINNU- OG NÝSKÖPUNARRÁÐUNEYTIÐ (ANR)

Í sérverkefni sem miðstöðin var fengin til að vinna fyrir ANR á


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.
Ársskýrsla 2019 by Háskólinn á Akureyri // University of Akureyri - Issuu