Ársskýrsla 2019

Page 63

ÁRSSKÝRSLA 2019

KENNSLUMIÐSTÖÐ HA – KHA KHA – Kennslumiðstöð Háskólans á Akureyri veitir kennurum faglega aðstoð við þróun kennsluhátta í sveigjanlegu námi. Slíkt er gert í formi almennrar ráðgjafar og námskeiða ásamt þróunarstarfi með áherslu á upplýsingatækni og kennslufræði. KHA ber ábyrgð á prófahaldi og námsmati. KHA ber einnig ábyrgð á öllum tölvu-, stýri- og netkerfum skólans. Allar ákvarðanir sem teknar eru í tengslum við kerfi skólans eru teknar í teymi þar sem þekking á kennslufræði og notendaaðstoð er til staðar. Þverfaglegt samstarf kennslufræðinga og tæknimanna er mikilvægt fyrir háskóla sem leggur áherslu á sveigjanlegt nám. Dagleg störf KHA í dag felast í því að veita nemendum og starfsfólki háskólans ýmiss konar tækni-, kennslu- og prófaráðgjöf, ásamt daglegum rekstri á tölvu-, stýri-, og netkerfum skólans. Fastráðnir starfsmenn í árslok 2019 voru tíu í níu og hálfu stöðugildi. A árinu bættist við hálft stöðugildi með sameiginlegu starfi verkefnastjóra Símenntunar HA og KHA. Forstöðumaður KHA er Auðbjörg Björnsdóttir. KHA hefur boðið kennurum að taka þátt í þróunarnámskeiðum þar sem þeir fá aðstoð við að breyta námskeiðum sínum með tilliti til kennslufræði og tækni. Á hverju misseri taka nokkrir kennarar þátt í slíkri þróunarvinnu. Haldnar voru fimm menntabúðir á árinu 2019, en menntabúðir er samkoma þar sem fólk kemur saman til þess að miðla af eigin reynslu og þekkingu og afla sér fróðleiks frá öðrum þátttakendum. Boðið var upp á opnar Microsoft- vinnustofur á hvoru misseri, þrjár á vormisseri og fjórar á haustmisseri. Á þessum vinnustofum var starfsfólki boðið upp á fræðslu og þjónustu í tengslum við þær Microsoft-lausnir sem Háskólinn á Akureyri býður upp á. Fyrstu vikuna á haustmisseri voru opnir dagar eða hamingjustund hjá KHA, þar sem kennarar gátu komið og leitað tækni- og/eða kennslufræðilegra lausna í tengslum við námskeið sín. Á þessu tímabili voru haldin fjölmörg námskeið sem komu að kennslufræði og tækni. Á haustmisseri var í annað sinn boðið upp á kennslufræðinámskeið fyrir fastráðna starfsmenn HA. Námskeiðið er 10 einingar á meistarastigi og heitir Háskólakennsla og háskólanám. Í námskeiðinu er farið í kennslufræði á háskólastigi, kenningar og aðferðir. Námskeiðið er í senn fræðilegt og hagnýtt og þeir kennarar sem taka það vinna meðfram

því að breytingum í eigin námskeiðum við HA. Námskeiðinu lýkur á vormisseri 2020 þar sem kennarar flytja erindi um kennsluþróun sína á árlegri kennsluráðstefnu KHA. Í þetta sinn tóku 13 kennarar frá öllum þremur fræðasviðum HA námskeiðið. Þeir fengu allir spjaldtölvu til afnota í námskeiðinu og svo við áframhaldandi kennsluþróun. Námskeiðið var vel heppnað en það er í umsjón KHA. Boðið verður upp á námskeiðið aftur haustið 2020. Vorið 2019 var Kennsluráðstefna KHA haldin í fjórða sinn með sömu yfirskriftinni: Hvað er góð háskólakennsla? Kennarar og starfsfólk Háskólans á Akureyri flutti þar 14 hringborðserindi er tengdust háskólakennslu. Gestafyrirlestrar voru þau Guðrún Geirsdóttir, dósent við Háskóla Íslands, og Larry K. Michaelsen, prófessor emeritus við Oklahoma-háskóla og upphafsmaður Team-based learning aðferðarinnar. Eins og seinustu ár kom starfsfólk KHA að skipulagningu og kynningu stoðþjónustu á nýnemadögum HA. KHA tók einnig þátt í Vísindaskóla unga fólksins, með því að veita tækniaðstoð og aðgang að búnaði og kennslu. Að auki kom hluti starfsfólks KHA að stundakennslu í grunnnámi í fjölmiðlafræði og í grunn- og framhaldsnámi hjá kennaradeild. Starfsfólk KHA hefur líka seinustu ár tekið þátt í #Eymennt menntabúðum. Kennslumiðstöð hefur tekið þátt í nokkrum alþjóðlegum samstarfsverkefnum seinustu ár. Árið 2019 tóku fjórir starfmenn KHA þátt í verkefni sem ber heitið Mocat (Modern competences of academic teachers – the key to modern HEI). Verkefnið byggist á því að þróa nútímalegar lausnir, verkfæri og efnivið til að auka gæði í kennslu á háskolastigi. Eins voru starfsmenn KHA með erindi á nokkrum innlendum ráðstefnum, m.a. Menntakviku hjá Háskóla Íslands, Kennsluráðstefnu KHA og UTís2019, árlegu tækniráðstefnunni á Sauðárkróki. Á haustmisseri hófst formleg innleiðing Canvas kennslukerfisins, en byrjað var á fyrsta árs námskeiðum innan Heilbrigðisvísinda- og Viðskipta- og raunvísindasviðs. Markmiðið er að öll námskeið við skólann verði komin í Canvas árið 2023.

63


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.