ÁRSSKÝRSLA 2019
BÓKASAFN OG UPPLÝSINGAÞJÓNUSTA HÁSKÓLANS Á AKUREYRI Bókasafn og upplýsingaþjónusta rekur bókasafn háskólans og annast sérsöfn eins og lista- og steinasöfn. Bókasafnið sinnir einnig bókasafnsþjónustu við Háskólann á Hólum, ígildi 25% stöðugildis, sem meðal annars felur í sér upplýsingaþjónustu, millisafnalán og kennslu í upplýsingalæsi, UL. Fastráðnir starfsmenn í árslok 2019 voru fimm talsins í fimm stöðugildum. Forstöðumaður er Astrid Margrét Magnúsdóttir. Starfsfólk bókasafnsins veitir ráðgjöf og aðstoð við upplýsinga- og heimildaleit og leggur áherslu á að veita nemendum, starfsfólki háskólans og öðrum lánþegum faglega og persónulega þjónustu. Bókasafnið leggur áherslu á að bjóða aðgang að vönduðu úrvali gagnasafna og hefur reynt að byggja safnkostinn upp jafnt og þétt þannig að hann endurspegli fræðasvið skólans. Rafrænn safnkostur bókasafnsins er aðgengilegur ýmist í opnum aðgangi, landsaðgangi , eða í séráskriftum á staðarneti háskólans. Hlutverk bókasafns og upplýsingaþjónustu er að annast kennslu og þjálfun í UL, en það er sú færni sem gerir mönnum kleift að leita upp-
lýsinga, leggja mat á gæði þeirra og hagnýta þær í námi, kennslu og rannsóknum. Fræðsla í UL fer meðal annars fram í völdum námskeiðum í samráði við kennara og í gegnum þjónustuna Bókaðu bókasafnsfræðing. Bæði stúdentar og kennarar geta bókað slíkan tíma og fengið aðstoð bókasafnsfræðings. Fjarnemar geta bókað tíma í gegnum fjarfundabúnaðinn Zoom. Samtals fór kennsla og þjálfun í UL fram í 141 kennslustund á árinu og náði til 1.343 manns. Starfsmenn bókasafnsins taka þátt í ýmsum samráðshópum, til að mynda: • Skemman , þar sem varðveitt eru lokaverkefni nemenda í grunnog framhaldsnámi. • Opin vísindi fræðimanna.
• Samráðshópur um ritstuldarvarnir sem innleiddi hugbúnaðinn Turnitin . Bókasafnið sér um námskeið, kynningar og daglega aðstoð á Turnitin fyrir stúdenta og kennara. • Alþjóðadagur læsis. Frá árinu 1965 hafa Sameinuðu þjóðirnar helgað 8. september málefnum læsis. Miðstöð skólaþróunar við
Eftirfarandi mynd er af kynningu á „Segðu bless við stressið!“ sem Bókasafn HA stóð fyrir í prófatíð ásamt Miðstöð náms- og starfsráðgjafar og Kennslumiðstöðvar.
60
, þar sem vistaðar eru ritrýndar vísindagreinar