ÁRSSKÝRSLA 2019
RANNSÓKNAÞING NORÐURSINS, NORTHERN RESEARCH FORUM – NRF HÁSKÓLANS Á AKUREYRI Markmið NRF er að skapa vettvang fyrir umræður um málefni norðurslóða og auka samvinnu vísindamanna og hagsmunaaðila á norðurslóðum. Helstu verkefni NRF eru meðal annars að: • Styðja vísindafélaga NRF í sínum verkefnum • Hafa umsjón með tví- og marghliða samningum HA sem snúa að samstarfi um norðurslóðamálefni, þar með talin Nansen-prófessorstaða við Háskólann á Akureyri • Veita þeim vísindafélögum NRF stuðning sem ekki taka þátt í starfi vinnuhópa Norðurskautsráðsins • Undirbúa styrkumsóknir • Styðja við þátttöku HA í Hringborði Norðurslóða (Arctic Circle Assembly) • Styðja þátttöku HA í Háskóla Norðurslóða (University of the Arctic) NRF og formennska Íslands í Norðurskautsráðinu NRF og Norðurslóðanet Íslands héldu utan um fyrsta formennskuviðburð Íslands hér á landi þegar utanríkisráðherrar Finnlands og Íslands heimsóttu háskólann. Af því tilefni var haldinn opinn fundur í Háskólanum á Akureyri undir yfirskriftinni Samvinna og samræða um sjálfbærni: Formennska í Norðurskautsráðinu. Verkefnastjóri NRF, Gunnar Már Gunnarsson, tók á árinu þátt í reglulegum fundum sérfræðinga sem boðaðir voru af mennta- og menningarmálaráðuneytinu til að styðja við undirbúning Íslands á ráðherrafundi um vísindi norðurslóða haustið 2020 (e. Arctic Science Ministerial 3 – AMS3) þar sem um er að ræða samstarf Íslands og Japan. Að lokum má nefna undirbúning á vinnustofunni Model Arctic Council 2020, sem halda átti fyrir háskólastúdenta frá norðurslóðaríkjunum átta. NRF hélt utan um þá vinnu í samstarfi við sérstakan vinnuhóp innan Háskóla norðurslóða og með aðkomu utanríkisráðuneytis Íslands. Hringborð Norðurslóða, Arctic Circle Háskólinn á Akureyri hélt sérstakan forviðburð í Hofi, í samstarfi við sendiskrifstofu Grænlands á Íslandi, sem var kynntur í dagskrá alþjóðaráðstefnunnar Arctic Circle Assembly. Þar tóku til máls, auk annarra, ráðherrar frá báðum löndum, fulltrúar íslenskra og grænlenskra sveitarfélaga og stjórnendur leiðandi fyrirtækja. Viðburðurinn var vel sóttur og fékk talsverða umfjöllun. Sem endranær stóð NRF fyrir málstofu ungra fræðimanna á Arctic Circle í samstarfi við Rannsóknarmiðstöð Íslands og bandaríska sendiráðið á Íslandi. Þá studdi NRF við málstofu Heilbrigðisvísindasviðs HA. NRF er jafnframt hluti af hópi sem kallast Arctic Akureyri. Um er að ræða
aðila sem vinna að norðurslóðamálum á Akureyri. Voru þessir aðilar með sameiginlegan kynningarbás á norðurslóðamálum. HA og Háskóli Norðurslóða, University of the Arctic – UArctic Háskólinn á Akureyri og Háskóli Íslands leiddu samstarf íslenskra háskóla og hófu undirbúning á vísinda- og framkvæmdaþingi Háskóla Norðurslóða (UArctic Congress 2020) á Íslandi. Til stóð að halda þingið í aðdraganda og nánu samstarfi við Arctic Circle Assembly í Reykjavík árið 2020. Því hefur verið frestað til ársins 2021 vegna faraldurs kórónuveiru, Covid-19. Nansen-prófessorstaða við Háskólann á Akureyri Síða árs var Dr. Gunnar Rekvig ráðinn í stöðu Nansen-prófessors, sem er gestaprófessorsstaða í heimskautafræðum við Háskólann á Akureyri. Gunnar Rekvig lauk doktorsprófi í alþjóðafræðum frá TUFS-háskóla (Tokyo University of Foreign Studies) í Tokyo árið 2017. Gunnar Rekvig starfar jafnframt við Háskólann í Tromsö sem dósent í alþjóðastjórnmálum með áherslu á norðurslóðir og Rússland. Gunnar Rekvig flutti opið erindi í HA í tilefni af ráðningu í starf Nansen-prófessors. Annað samstarf og samstarfssamningar Bæði rektor og framkvæmdastjóri Háskóla Grænlands, Ilisimatusarfik, heimsóttu HA. Samstarfssamningur milli skólanna var undirritaður við það tilefni en hann tekur meðal annars til samstarfs um fjarkennslu og uppbyggingu fjarnáms við Ilisimatusarfik. Háskólinn á Akureyri og Shanghai Ocean University (SHOU) skrifuðu undir almennan samstarfssamning og skipulögðu fræðimannaskipti í gegnum CNARC (China China-Nordic Arctic Research Center). Þá tók Steingrímur Jónsson, prófessor við HA, þátt í sjöundu Norrænu-kínversku norðurslóðaráðstefnunni sem haldin var í Shanghai og var SHOU í hlutverki gestgjafa. NRF hélt áfram samstarfi sínu við sendiráð bandaríkjanna á Íslandi og hélt utan um heimsóknir bandarískra sérfræðinga til HA en ferðir þeirra voru greiddar af sendiráðinu. Önnur verkefni Skrifstofa NRF hélt ýmiss konar kynningarfundi á árinu og tók á móti gestum og sendinefndum. Árið var annasamt að því leyti, ekki síst vegna formennsku Íslands í Norðurskautsráðinu. NRF tók þátt í útgáfu á Arctic Yearbook 2019 ásamt Háskóla Norðurslóða og Arctic Portal á Akureyri. Ritstjóri Arctic Yearbook er Lassi Heininen. Bókin er aðgengileg hér
49