ÁRSSKÝRSLA 2019
MARKAÐS- OG KYNNINGARMÁL Markaðs- og kynningarstarf og þjónustuborð nemendaskrár (MKÞN) fóru í eina sæng undir forystu forstöðumanns Markaðs- og kynningarmála 1. september 2018. Tveir starfsmenn sinntu verkefnum Markaðs- og kynningarmála: Katrín Árnadóttir forstöðumaður og Kristjana Hákonardóttir, verkefnastjóri og vefstjóri. Kynningarfulltrúi fyrir hönd Stúdentafélags HA var Birna Heiðarsdóttir og tók hún virkan þátt í undirbúningi og framkvæmd opinna daga og Háskóladagsins og sinnti fleiri tilfallandi verkefnum. Fulltrúi fjarnema háskólans tók einnig virkan þátt í kynningarstarfi. Á vormánuðum tók Karen Jónasdóttir við kefli Birnu og var ekki síður öflug. Kynningar í framhaldsskólum voru áfram í höndum verktaka – fyrrverandi stúdents – á höfuðborgarsvæðinu til áramóta. Hafist var handa við hönnun kynningarefnis strax á haustmánuðum 2018 enda vinna við gerð kynningarbæklings mikil. Huga þarf að ljósmyndum, réttum texta svo og uppsetningu og prentun í tíma fyrir Háskóladaginn. Ákveðið var að gefa ekki út sérstakan bækling fyrir framhaldsnám. Auglýsingar í fjölmiðlum voru að venju vandaðar fyrir innritun 2019– 2020 en megináhersla var lögð á auglýsingar og kynningar á samfélagsmiðlum.
Frá vinstri: Einar Hannesson, stúdent í sjávarútvegsfræði, Katrín Árnadóttir, for stöðumaður Markaðs- og kynningarmála, Sigríður Arna Lund, stúdent í iðjuþjálfunarfræði, og Birna Heiðarsdóttir, kynningarfulltrúi og stúdent í fjölmiðlafræði.
banda sem fóru í spilun á samfélagsmiðlum . Kynning Háskólans á Akureyri fór fram á neðri hæð á Háskólatorgi HÍ. Rúmlega 40 manns frá HA kynntu þar námið og útdeildu um 1.000 bæklingum.
Birtingaáætlun var unnin í samstarfi við ABS birtingarhús en grafísk hönnun auglýsinga var í höndum Margrétar Káradóttur. Mikið var notast við kynningarmyndband um sveigjanlegt nám sem fór víða. Eins og árin á undan var byggt á hönnun Íslensku auglýsingastofunnar við gerð bæklings, vefborða og auglýsinga fyrir ljósvakamiðla.
Í kjölfar Háskóladagsins voru haldnar sameiginlegar kynningar á völdum stöðum á landinu: Reykjanesbæ, Fjölbrautaskóla Suðurlands, Fjölbrautarskóla Vesturlands, Menntaskólanum á Egilsstöðum og í Verkmennta- og Menntaskólanum á Akureyri. Kynningunni í Vestmannaeyjum var frestað vegna veðurs. Í þessum kynningum stóð kynningarteymi stúdenta vaktina og fékk til liðs við sig stúdenta af svæðinu.
Háskóladagurinn var haldinn í Reykjavík í samstarfi allra háskóla landsins laugardaginn 2. mars. Allir sjö háskólar landsins kynntu þar námsframboð sitt. Í aðdragandanum var lagt í gerð kynningarmynd-
Öllum framhaldsskólum landsins var boðið að sækja Opna daga í HA sem fóru fram 3. og 4. október. Útskriftarárgangar á Norðurlandi þáðu boðið og fengu sumir hverjir rútuferðir til Akureyrar til að vera
Svipmyndir frá Háskóladeginum.
46