Ársskýrsla 2019

Page 35

ÁRSSKÝRSLA 2019

VIÐSKIPTA- OG RAUNVÍSINDASVIÐ Hlutverk Viðskipta- og raunvísindasviðs er að mennta stúdenta til starfa á sviði góðrar auðlindanýtingar í anda sjálfbærni, sem og að veita stúdentum þekkingu og þjálfun í viðskiptafræði til ábyrgðarstarfa við rekstur fyrirtækja, stofnana og samtaka. Viðskipta- og raunvísindasvið hefur námsframboð sem ekki er að finna við aðra háskóla hér á landi, þ.e. sérhæft nám í líftækni og sjávarútvegsfræðum á BS-stigi og nám til MS-gráðu í auðlindafræðum á sömu sviðum. Enn fremur nám til MRM-gráðu í haf- og strandsvæðastjórnun í samstarfi við Háskólasetur Vestfjarða. Fjöldi doktorsnemenda hefur í gegnum tíðina unnið að doktorsverkefnum sínum undir leiðsögn sérfræðinga sviðsins, þó að þeir hafi stundað námið við aðra háskóla. Frá og með haustinu 2018 er í boði doktorsnám við Viðskipta- og raunvísindasvið á sviðum líftækni, sjávarútvegs- og fiskeldisfræði og viðskiptafræði. Gert er ráð fyrir að doktorsverkefni við sviðið verði að jafnaði þverfræðileg og unnin í nánu samstarfi deilda innan sviðsins sem og í samstarfi við önnur fræðasvið HA og innlenda jafnt sem erlenda háskóla, stofnanir og fyrirtæki.

um námskeið sem fara fram árlega við HA. Sérfræðingar sviðsins og skólans hafa einnig leiðbeint árlega 3–6 stúdentum í lokaverkefnum þeirra. Alls brautskráðust 102 stúdentar frá sviðinu á árinu. Þar af 13 með B.S. próf í sjávarútvegsfræði, 8 með B.S. próf í líftækni, 58 með B.S og próf í viðskiptafræði. 2 brautskráðust með meistarapróf í viðskiptafræði og 21 með MRM próf í haf- og strandveiðastjórnun. Eitt af stefnumálum sviðsins er að byggja upp öflugt, þverfaglegt meistaranám þar sem áhersla er lögð á nám sem sniðið er að þörfum hvers og eins. Í því augnamiði var á árinu 2018 og í byrjun árs 2019 boðið upp á ný námskeið í alþjóðaviðskiptum með áherslu á lítil og meðalstór fyrirtæki í alþjóðlegu umhverfi, samtals 15 ECTS-einingar. Áherslur ganga þvert á fræðasviðið og gagnast námskeiðin því stúdentum beggja deilda. Á árinu 2019 var unnið áfram á þessari braut með skipulagningu nýrra námskeiða á meistarastigi um sveitarstjórnir og rekstur sveitarfélaga og fimm námskeiða á sviði sjávarútvegsfræði, m.a. um íslenskan og alþjóðlegan sjávarútveg, alþjóðlega veiðitækni, sjálfbæra stjórnun fiskveiða og vinnslutæki. Á árinu 2020 verður unnið áfram að skipulagi nýrra námskeiða á sviði stjórnunar, framleiðslutækni og líftækni.

Eitt af stefnumálum sviðsins er að byggja upp öflugt, þverfaglegt meistaranám þar sem áhersla er lögð á nám sem sniðið er að þörfum hvers og eins

Skipting í deildir Viðskipta- og raunvísindasvið skiptist í tvær deildir, Auðlindadeild og Viðskiptadeild. Nám í tölvunarfræði fer einnig fram á Viðskipta- og raunvísindasviði í samstarfi við Háskólann í Reykjavík og frá sviðinu brautskrást enn fremur stúdentar með meistaragráðu í haf- og strandsvæðastjórnun sem stunda alfarið sitt nám við Háskólasetur Vestfjarða. Undir sviðið heyrir einnig Sjávarútvegsmiðstöð Háskólans á Akureyri, sem er sjálfseignarstofnun. Viðskipta- og raunvísindasvið tekur enn fremur þátt í samstarfi um Sjávarútvegsskóla Sameinuðu þjóðanna (UNESCO Fisheries Training Promgram) með því að skipuleggja og sjá

Á árinu var fylgt eftir ítarlegri stefnumótun fyrir sviðið og deildir þess sem unnin var á árinu 2017 sem hluti undirbúnings fyrir Stefnu Háskólans á Akureyri 2018–2023.

Á árinu var einnig í fyrsta skipti boðið upp á nýtt námskeið í nýju námsframboði á meistarastigi um sjálfbæra nýtingu sjávarauðlinda, MarBio. Námskeiðið er samstarf Háskólans á Akureyri, Háskólans á Hólum, Gautaborgarháskóla í Svíþjóð, Nord universitet í Bodö í Noregi og Háskólans í New England í Bandaríkjunum. Gott samstarf er um rannsóknir og kennslu við fyrirtæki í íslensku atvinnulífi og gefur það námi á sviðinu hagnýta vídd. Kennarar stunda öflugar rannsóknir í alþjóðlegu samhengi og í samstarfi við innlendar og erlendar rannsóknarstofnanir og fyrirtæki. Það styrkir verulega grundvöll rannsóknartengds meistaranáms og doktorsnáms við fræðasviðið.

35


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.