Ársskýrsla 2019

Page 33

ÁRSSKÝRSLA 2019

MIÐSTÖÐ SKÓLAÞRÓUNAR HA – MSHA Miðstöð skólaþróunar er starfrækt innan Hug- og félagsvísindasviðs Háskólans á Akureyri. Hlutverk hennar er að efla leik-, grunn- og framhaldsskóla sem faglegar stofnanir og vera farvegur þekkingar til starfandi kennara á öllum skólastigum og frá þeim til háskóla.

• Leiðsagnarmat – þróun fjölbreyttra leiða í námi, kennslu og námsmati á öllum skólastigum.

Meginviðfangsefni sérfræðinga MSHA lúta að þróunar- og umbótastarfi á vettvangi skólastarfs og annast þeir ráðgjöf og fræðslu til starfandi kennara og skólastjórnenda. Innan MSHA hefur byggst upp margvísleg þekking á stjórnun og forystu, starfsþróun og fagmennsku, fjölbreyttum starfsháttum í skólum, námskrárgerð, mati á skólastarfi og læsi. Í samstarfi við sérfræðinga innan kennaradeildar Háskólans á Akureyri hefur miðstöðin forgöngu um að kynna kennurum nýjungar á sviði skólaþróunar. MSHA stendur auk þess fyrir rannsóknum á starfsháttum í skólum (starfendarannsóknum) og heldur ráðstefnur, námskeið og fræðslufundi. Þá sinna sérfræðingar MSHA kennslu í kennaradeild.

• Kennslufræðilegur stuðningur við kennara á grunnskólastigi, í samstarfi við fræðslusvið Akureyrarbæjar.

MSHA hefur með höndum sérfræðiþjónustu við leik- og grunnskóla Akureyrarbæjar skv. sérstökum samningi þar um. Fleiri sveitarfélög víðsvegar um landið hafa að auki gert tímabundna samninga við MSHA um ýmis áhugaverð skólaþróunarverkefni. Unnið er samkvæmt starfsog þróunaráætlunum viðkomandi sveitarfélags/skóla. Í starfi MSHA á vettvangi skólastarfs er lögð áhersla á fræðslu, ráðgjöf, samræðu, samvinnu og ígrundun. Skólaþróunarverkefnum er ætlað að leiða til starfsþróunar og eflingar skólastarfs á öllum skólastigum. Helstu verkefni hjá Miðstöð skólaþróunar á árinu 2019: • Byrjendalæsi og Læsi til náms/Læsi fyrir lífið – þróun starfshátta í læsiskennslu í leik- og grunnskólum. • Orðaleikur – málörvun leikskólabarna og barna ef erlendum uppruna, þróunarverkefni og námsefnisgerð. • Samræðufélagar – málörvun barna af erlendum uppruna – þróunarverkefni í grunnskóla. • Stærðfræðileiðtogar – þróun starfshátta í stærðfræðikennslu á miðstigi grunnskóla. • Zankov – þróunarverkefni í stærðfærði á yngsta stigi grunnskóla. • Samskipti stúlkna – þróun fyrirbyggjandi aðgerða gegn einelti, sérstaklega hjá stúlkum. • Krakkaspjall – samskiptaverkefni á yngsta og miðstigi grunnskóla. • Unglingaspjall – samskiptaverkefni á unglingastigi. • Bekkjarfundir – ráðgjöf og stuðningur við starfandi kennara á grunn- og framhaldsskólastigi. • Forvarnir gegn einelti – stuðningur og ráðgjöf við gerð forvarnaáætlana gegn einelti.

• Snjallvagninn – notkun snjalltækja í námi og kennslu í leikskólum og á yngsta stigi grunnskóla.

• Úttektir og mat á afmörkuðum þáttum skólastarfs á grunn- og framhaldsskólastigi. • Stuðningur og ráðgjöf varðandi stefnumótun og skólanámskrárgerð á leik-, grunn- og framhaldsskólastigi. • Námsefnisgerð í tengslum við málörvun og læsi. • Þýðing og staðfært efni í mannkostamenntun. • Námskeið og stutt erindi samkvæmt óskum frá skólum á öllum skólastigum. Ráðstefnur og námskeiðahald MSHA stendur árlega fyrir ráðstefnum um skólamál með þátttöku sérfræðinga úr háskólum bæði hérlendis og erlendis. Árleg vorráðstefna MSHA var haldin þann 30. mars í Háskólanum á Akureyri og bar að þessu sinni yfirskriftina Vísindi í námi og leik. Um 100 þátttakendur sóttu ráðstefnuna. Miðstöðin hefur staðið fyrir ýmiss konar viðburðum á Alþjóðadegi læsis 8. september í samstarfi við bókasafn HA og Amtsbókasafnið á Akureyri en haustráðstefna um læsi er haldin annað hvert ár. Þann 14. ágúst stóð MSHA í samstarfi við Akureyrarbæ að sameiginlegum námskeiðsdegi fyrir grunnskólakennara á Akureyri og komu um 250 grunnskólakennarar hjá Akureyrarbæ í HA og sátu áhugaverð og fjölbreytt námskeið allan daginn. Eins stóð MSHA, í samstarfi við Fræðslusvið Akureyrarbæjar, fyrir fjölbreyttum styttri námskeiðum alla haustönnina og yfirlit yfir þau má finna hér Styrkir Miðstöðinni varð vel ágengt í öflun styrkja á árinu. Styrkir fengust til þróunar á nýjum verkefnum, kennslugögnum og námsefni og m.a. fengust styrkir til þess að opna tvær heimasíður á vegum MSHA, aðra um Snjallvagninn og hina um Orðaleik. Þeir aðilar sem styrktu starfsemi MSHA á árinu voru KEA, Norðurorka, Lýðheilsusjóður, Þróunarsjóður námsgagna, Þróunarsjóður innflytjenda, Endurmenntunarsjóður grunnskóla, Sprotasjóður, Verkefnasjóður HA og Rannsóknasjóður HA. Á fyrri hluta ársins 2019 störfuðu 5 sérfræðingar hjá MSHA í 3,8 stöðugildum. Á síðari hluta ársins voru þeir sjö í 4,6 stöðugildum. Forstöðumaður til 1. september var Laufey Petrea Magnúsdóttir en þann 1. október tók Gunnar Gíslason við starfinu.

33


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.
Ársskýrsla 2019 by Háskólinn á Akureyri // University of Akureyri - Issuu