Ársskýrsla 2019

Page 19

ÁRSSKÝRSLA 2019

HEILBRIGÐISVÍSINDASVIÐ Meginmarkmið Heilbrigðisvísindasviðs Háskólans á Akureyri er að bjóða upp á háskólanám og standa fyrir rannsóknum í heilbrigðisvísindum, þar með talið hjúkrunarfræði, iðjuþjálfunarfræði og öðrum greinum heilbrigðisvísinda Á Heilbrigðisvísindasviði er boðið grunnnám í hjúkrunarfræði og iðjuþjálfunarfræði. Einnig þverfaglegt framhaldsnám í heilbrigðisvísindum og ennfremur doktorsnám í hjúkrunarfræði/heilbrigðisvísindum.

Doktorsnám við HA hófst árið 2017 en fyrstu doktorsnemarnir við Heilbrigðisvísindasvið voru formlega innritaðir árið 2019, þær Hulda Sædís Bryngeirsdóttir og Karen Birna Þorvaldsdóttir. Doktorsverkefni Huldu Sædísar snýr að reynslu kvenna af eflingu í kjölfar ofbeldis í nánum samböndum (e. The Experience of Post-Traumatic Growth Following Gender-Based Violence). Hulda Sædís er jafnframt í hálfri stöðu doktorsnema við Heilbrigðisvísindasvið. Doktorsverkefni Karenar Birnu snýr að því að greina það sem hindrar konur á Íslandi við að leita sér hjálpar eftir ofbeldi í nánu sambandi (e. Help-seeking for Trauma Recovery: Sociocultural Barriers among Intimate Partner Violence Survivors in Iceland). Aðalleiðbeinandi beggja doktorsnema er dr. Sigríður Halldórsdóttir prófessor. Bæði eru þau unnin í samvinnu við Jafnréttisstofu.

Meginmarkmið Heilbrigðisvísindasviðs Háskólans á Akureyri er að bjóða upp á háskólanám og standa fyrir rannsóknum í heilbrigðisvísindum, þar með talið hjúkrunarfræði, iðjuþjálfunarfræði og öðrum greinum heilbrigðisvísinda Heilbrigðisvísindasvið stendur fyrir rannsóknum í þverfaglegum heilbrigðisvísindum, meðal annars í samstarfi við Sjúkrahúsið á Akureyri í tegnslum við Heilbrigðisvísindastofnun Háskólana á Akureyri – HHA. Gerðir hafa verið samstarfssamningar við helstu heilbrigðisstofnanir landsins. Flestar þeirra hafa jafnframt áhuga á rannsóknarsamstarfi við Heilbrigðisvísindasvið, sem er ánægjuleg þróun. Á Heilbrigðisvísindasviði er boðið sveigjanlegt nám í iðjuþjálfunarfræði en Háskólinn á Akureyri er eini íslenski háskólinn sem býður upp á slíkt nám. Hjúkrunarfræði er einnig í boði með sveigjanlegu námsformi sem er sérstakt fyrir Háskólann á Akureyri. Auk þess er boðið sveigjanlegt nám í þverfaglegu meistaranámi til gráðu í heilbrigðisvísindum, sem hefur verið ein sérstaða fræðasviðsins til margra ára. Heilbrigðisvísindasvið er í ágætu samstarfi við háskóla á hinum Norðurlöndunum, í Bandaríkjunum, Kanada og víðar. Þá eru erlendir sérfræðingar gjarnan ráðnir til kennslu og rannsókna, m.a. í tengslum við Fulbright-samstarf. Árið 2019 hófst formennska Íslands í Norðurskautsráðinu 2019–2021. Háskólinn á Akureyri ásamt norðurslóðastofnunum á Borgum eru virkir þátttakendur í verkefnum formennskunnar. Sviðsforseti Heilbrigðisvísindasviðs veitir formennsku í sérfræðingahópi um heilbrigði á Norðurslóðum (AHHEG: Arctic Human Health Expert Group) en sá hópur starfar í vinnuhóp Norðurskautsráðsins um sjálfbæra þróun (SDWG: Sustainable Development Working Group).

Skipting í deildir Heilbrigðisvísindasvið skiptist í þrjár deildir: Hjúkrunarfræðideild, Iðjuþjálfunarfræðideild og Framhaldsnámsdeild.

Innan Heilbrigðisvísindasviðs eru einnig Heilbrigðisvísindastofnun Háskólans á Akureyri – og Rannsóknarmiðstöð gegn ofbeldi, sem er þverfræðileg rannsóknarmiðstöð. Vegna fjöldatakmarkana í hjúkrunarfræði komast árlega 55 stúdentar áfram á vormisseri fyrsta námsárs. Í janúar 2019 komust þó 56 stúdentar áfram vegna þess að þrír stúdentar í sætum 54, 55 og 56 voru með sömu meðaleinkunn. Athygli vekur að öll þau sem stóðust samkeppnisprófin náðu öllum fögunum sem lágu þar til grundvallar auk þess sem nær allir stúdentar voru með fyrstu einkunn. Samkvæmt viðtölum við stúdenta í hjúkrunarfræði sækjast þeir eftir sveigjanlegu námsformi auk þess sem orðspor Hjúkrunarfræðideildar HA er gott. Aðsókn að hjúkrunarfræði er langt umfram það sem skólinn getur annað. Af 160 stúdentum þreyttu um 150 samkeppnispróf. Frá hausti 2018 hefur verið unnið að því að fjölga námsplássum í samvinnu við Hjúkrunarfræðideild HÍ og mennta- og menningarmálaráðuneytið. Til að það takist þarf að koma aukin fjárveiting sérstaklega til þess, enda er Hjúkrunarfræðideild á þolmörkum hvað varðar álag á kennara og starfsfólk. Ný námskrá var samþykkt í Hjúkrunarfræðideild í febrúar 2016 og frá haustmisseri 2019 var kennt eftir nýrri námskrá öll fjögur árin til BS- prófs í hjúkrunarfræði.

19


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.
Ársskýrsla 2019 by Háskólinn á Akureyri // University of Akureyri - Issuu