Ársskýrsla 2019

Page 16

ÁRSSKÝRSLA 2019

GÓÐVINIR HÁSKÓLANS Á AKUREYRI

Frá vinstri: Einar Brynjólfsson, formaður Góðvina, Birna Heiðarsdóttir, handhafi viðurkenningar Góðvina á Hug- og félagsvísindasviði, Helga Margrét Jóhannesdóttir, handhafi viðurkenningar Góðvina á Heilbrigðisvísindasviði, Andrés Tryggvi Jakobsson, handhafi viðurkenningar Góðvina á Viðskipta- og raunvísindasviði, og Eyjólfur Guðmundsson rektor.

Góðvinir eru samtök brautskráðra stúdenta frá Háskólanum á Akureyri og annarra velunnara skólans. Markmið samtakanna er að auka tengsl háskólans við fyrrum stúdenta sína og styðja við uppbyggingu skólans eftir fremsta megni, fjárhagslega og á annan hátt. Þetta gera Góðvinir meðal annars með því að heiðra stúdenta við brautskráningu, innheimta félagsgjöld og styðja við háskólann með gjöfum. Á árinu var haldið áfram að efla félagið og styrkja tengslin og þá sér í lagi við fyrrverandi nemendur eftir stofnun Alumni-deildarinnar (fyrrverandi nemendur háskólans). Þetta var gert með því að hóa í þá sem eiga 1, 5, 10, 20 og 30 ára brautskráningarafmæli. Ekki hefur enn tekist að koma á laggirnar stofnfjársjóði. Sjóðurinn sem slíkur á sér fyrirmyndir í Bandaríkjunum en þar nefnast slík fyrirbæri endowment fonds. Stefnt var að því að stofna sjóðinn með einni milljón króna framlagi frá Góðvinum um leið og lagaatriði væru frágengin. Nú eru hvorki lagaatriði né framlag frá Góðvinum tryggð. Með sjóði þessum fá velunnarar tækifæri til að styrkja háskólann með peningagjöfum. Stofnskrá sjóðsins mun tryggja að fjármunirnir komi skólanum vel. Stefnt er að því að sjóðurinn vaxi og dafni en einungis verður hægt að nota vextina til verkefna.

16

Frá vinstri: Einar Brynjólfsson, formaður Góðvina, Ólöf María Brynjarsdóttir, handhafi viðurkenningar Góðvina í framhaldsnámi, og Eyjólfur Guðmundsson rektor.


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.