ÁRSSKÝRSLA 2020
RANNSÓKNAMIÐSTÖÐ HÁSKÓLANS Á AKUREYRI – RHA Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri er fjárhagslega sjálfstæð eining innan háskólans. RHA nýtur ekki fastra fjárframlaga heldur aflar sér tekna með rannsóknarverkefnum og ráðgjöf fyrir fyrirtæki, stofnanir, ráðuneyti og félagasamtök og með innlendum og erlendum rannsóknarstyrkjum. Enn fremur veitir RHA starfsmönnum HA ráðgjöf og aðstoð á sviði rannsókna. Í skipuriti Háskólans á Akureyri tilheyrir RHA Háskólaskrifstofu.
Markmið og hlutverk Markmiðið með rekstri RHA er í meginatriðum fjórþætt: • Að vera tengiliður Háskólans á Akureyri við atvinnulífið með því að sinna verkefnum fyrir það og stuðla að þekkingaryfir færslu milli HA og atvinnulífsins. • Að veita stuðning og þjónustu við rannsóknir innan HA og stuðla þannig að auknum rannsóknum og fjármagni til rannsókna úr samkeppnissjóðum. • Að vinna að þróunar- og sérverkefnum á vegum HA á skilvirkan og markvissan hátt. • Að vera tengiliður við setur og stofnanir sem starfa innan eða í tengslum við HA og skapa umgjörð til að hægt sé að hýsa litlar einingar og setur á sem skilvirkastan og hagkvæmastan hátt.
Þjónusta við Háskólann á Akureyri RHA vinnur eftir rammasamningi við HA um kaup háskólans á þjónustu frá miðstöðinni. Samningurinn er í tveimur liðum: A: Almenn rannsóknarþjónusta við sérfræðinga HA og uppbygging tengslanets vegna umsókna í samkeppnissjóði B: Þátttaka í verkefnum fyrir hönd HA, þar með talin er umsýsla fyrir bæði vísindaráð og vísindasjóð HA Jafnréttisráð HA fékk í fyrsta sinn starfsmann í hlutastarfi (25%) árið 2018 og gerði samning við RHA um þá vinnu. Fyrirkomulagið hefur gengið vel og var haldið áfram á árinu 2020. RHA hefur undanfarin ár verið þátttakandi í ESPON byggðarannsóknarverkefnum og annast einnig umsýslu fyrir íslenska ESPON – ECP tengiliðinn, sem er staðsettur í Háskólanum á Akureyri, í umboði háskólans.
RANNSÓKNAMIÐSTÖÐ HÁSKÓLANS Á AKUREYRI
RHA heldur úti Ritveri Háskólans á Akureyri samkvæmt samningi þar um, í samstarfi við Bókasafn og upplýsingaþjónustu. Ritverið var opnað í mars 2019 og er þar hægt að fá aðstoð við fræðileg skrif, heimildanotkun og tæknileg atriði. Bæði stúdentar og kennarar háskólans geta bókað tíma hjá ritverinu.
Þátttaka í nefndum og ráðum Leitað er til sérfræðinga RHA sem fulltrúa í ýmsum verkefnum í samfélaginu, svo sem Hagsmunaráði Landsnets, sem stofnað var til 2018, stýrihóp Sjálfbærniverkefnis Alcoa og Landsvirkjunar á Austurlandi, stýrihóp Sjálfbærniverkefnis á Norðausturlandi, samráðshóp um landsskipulagsstefnu, Faghóp 3 um samfélagsáhrif í Rammaáætlun IV og fleira. Þá hafa starfsmenn RHA tekið virkan þátt í ýmsu nefndastarfi innan Háskólans á Akureyri, svo sem í doktorsnámsráði og umhverfisráði.
Kennsla og námskeið RHA hefur um árabil starfað náið með Sjávarútvegsmiðstöð HA er varðar þjónustu og kennslu við Sjávarútvegsskóla Þróunarsamvinnumiðstöðvar UNESCO á Íslandi (áður Sjávarútvegsskóla Sameinuðu Þjóðanna). Vegna heimsfaraldursins var engin kennsla haustið 2020. Starfsfólk RHA hannaði og þróaði námskeiðið Gagnagreining: SPSS. Markmið þess er að veita hagnýta kennslu í gagnagreiningu í SPSS. Farið er yfir gagnagreiningarferlið frá upphafi til enda. Lögð er áhersla á að þátttakendur öðlist færni í gagnagreiningu í SPSS með verkefnavinnu. Námskeiðið var kennt sumarið 2020 í fjarkennslu og var það markaðssett og kynnt í samstarfi við Símenntun HA. Það tókst vel og er fyrirhugað að bjóða það reglulega. Eins og undanfarin ár komu nokkrir starfsmenn RHA að kennslu í fjölbreyttum námskeiðum innan HA á árinu.
Önnur umsýsla og þjónusta RHA hefur séð um umsýslu Sprotasjóðs fyrir mennta- og menningarmálaráðuneytið síðan árið 2009. Núverandi samningur gildir út árið 2021.
65