Ársskýrsla 2020

Page 63

ÁRSSKÝRSLA 2020

NEMENDASKRÁ, ÞJÓNUSTUBORÐ NEMENDASKRÁR Á þjónustuborði Nemendaskrár er upplýsingagjöf og þjónusta fyrir stúdenta og starfsfólk. Einnig almenn símsvörun og upplýsingagjöf um háskólann. Þessi hluti Nemendaskrár tilheyrði um tíma Markaðs- og kynningarmálum en færðist á ný undir Háskólaskrifstofu 2020. Nemendaskrá tilheyra ýmis verkefni sem tengjast daglegu starfi háskólans. Fulltrúar Nemendaskrár hafa umsjón með allri nemendaskráningu og skjalavistun sem henni fylgir. Það gildir um innritun nýnema, skráningu í og úr námskeiðum og prófum, útgáfu vottorða og prentun og frágang brautskráningargagna, í nánu samstarfi við skrifstofustjóra fræðasviða. Þá sjá fulltrúar um innkaup og afgreiðslu á skrifstofuvörum fyrir starfsfólk háskólans sem og ferðabeiðnir og flugbókanir. Enn fremur bókanir og leigu á stofum og fundaherbergjum háskólans. Mikil samvinna er milli fulltrúa Nemendaskrár, skrifstofustjóra fræðasviða og Kennslumiðstöðvar HA. Þá er einnig samvinna með Markaðs- og kynningarmálum HA. Verkefni Nemendaskrár breyttust vegna heimsfaraldursins að því leyti að samskipti og þjónusta við starfsfólk og stúdenta færðist nær eingöngu á rafrænt form. Lítil þörf var fyrir ferðabókanir, brautskráning fór fram rafrænt og kandídatar fengu skírteini send í pósti. Breytingar voru gerðar á starfsrými Nemendaskrár þar sem allt var málað og húsgögn endurnýjuð. Þjónustuborð Kennslumiðstöðvar HA er nú staðsett í rými Nemendaskrár og sinnir Einar Bergur Björnsson starfi þjónustufulltrúa. Skipulag Nemendaskrár var óbreytt frá árinu áður. Þjónustufulltrúar í Nemendaskrá eru Hanna Björg Guðmundsdóttir og Hafdís Guðfinna Vigfúsdóttir. Forstöðumaður Nemendaskrár frá og með 1. júní er Bára Sif Sigurjónsdóttir. Sigrún Harðardóttir, afgreiðslustjóri Nemendaskrár, hætti störfum vegna aldurs í lok maí eftir langan starfsferil við HA.

63


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.
Ársskýrsla 2020 by Háskólinn á Akureyri // University of Akureyri - Issuu