ÁRSSKÝRSLA 2020
GÆÐAMÁL Til þess að tryggja að Háskólinn á Akureyri standist alltaf þær gæðakröfur sem gerðar eru til hans er starfrækt gæðaráð við skólann. Meginhlutverk ráðsins er að bera ábyrgð á framkvæmd gæðakerfis háskólans. Gæðaráðsfundir eru haldnir einu sinni í mánuði yfir vetrartímann. Alls voru fundirnir átta árið 2020. Háskólaráð samþykkti þann 20 júní breytingar á reglum um gæðaráð sem lúta að samsetningu ráðsins. Eftir breytingarnar hljóðar 1. málsgrein 2. gr. reglna um gæðaráð þannig: „Í gæðaráði sitja gæðastjóri í forsæti, fulltrúar fræðasviða, tveir fulltrúar háskólaskrifstofu auk tveggja fulltrúa nemenda sem Stúdentafélag Háskólans á Akureyri tilnefnir.“ Í gæðaráði áttu sæti fyrir breytingar: Vaka Óttarsdóttir, gæða- og mannauðsstjóri, í forsæti Kristín Margrét Jóhannsdóttir lektor, fulltrúi Hug- og félagsvísindasviðs Sean M. Scully aðjúnkt, fulltrúi Viðskipta- og raunvísindasviðs Bergljót Borg aðjúnkt, fulltrúi Heilbrigðisvísindasviðs Sigríður Sía Jónsdóttir lektor, fulltrúi akademísks starfsfólks, til vara Margrét Elísabet Ólafsdóttir lektor Helena Sigurðardóttir kennsluráðgjafi, fulltrúi annars starfsfólks, til vara Sigrún Lóa Kristjánsdóttir, verkefnastjóri gagnagreiningar og fjárhags Daníel Gunnarsson, fulltrúi stúdenta Leifur Guðni Grétarsson, fulltrúi stúdenta í upphafi árs, Eva María Matthíasdóttir frá og með febrúar Sólveig María Árnadóttir, varafulltrúi stúdenta Auðbjörg Björnsdóttir, forstöðumaður Kennslumiðstöðvar HA Katrín Árnadóttir, forstöðumaður Nemendaskrár. Eftir breytingar er litið svo á að fulltrúar fræðasviða séu fulltrúar akademísks starfsfólks og fulltrúar Háskólaskrifstofu séu fulltrúar starfsfólks í stoðþjónustu og stjórnsýslu. Á haustmisseri sátu í gæðaráði: Vaka Óttarsdóttir, gæða- og mannauðsstjóri, í forsæti Bergljót Borg aðjúnkt, fulltrúi Heilbrigðisvísindasviðs, til vara Eva Halapi lektor Kjartan Ólafsson lektor, fulltrúi Hug- og félagsvísindasviðs, til vara Páll Björnsson prófessor Kristinn Pétur Magnússon prófessor, fulltrúi Viðskipta- og raunvísindasviðs, til vara Helga Kristjánsdóttir dósent
14
Stefán Jóhannsson, sérfræðingur gagnagreiningar, fulltrúi Háskólaskrifstofu, til vara Sigrún Lóa Kristjánsdóttir, verkefnastjóri gagnagreiningar og fjárhags Auðbjörg Björnsdóttir, forstöðumaður Kennslumiðstöðvar, fulltrúi Háskólaskrifstofu, til vara Óskar Þór Vilhjálmsson tæknimaður Daníel Gunnarsson, fulltrúi stúdenta Eva María Matthíasdóttir, fulltrúi stúdenta Sólveig María Árnadóttir, varafulltrúi stúdenta. Guðlaug Þóra Stefánsdóttir, verkefnastjóri mannauðs- og gæðamála, var ritari gæðaráðs. Vinna ársins einkenndist af áframhaldandi umbótastarfi eftir síðustu stofnanaúttekt (ytri úttekt á starfi háskólans) og markvissum undirbúningi fyrir gæðastarf samkvæmt rammaáætlun Quality Enhancement Handbook for Icelandic Higher Education, 2. útgáfu (QEF2). Stýrihópur fyrir næstu stofnanaúttekt var skipaður í upphafi árs og í honum áttu sæti: Sigrún Magnúsdóttir, sérfræðingur Rektorsskrifstofu, í forsæti Vaka Óttarsdóttir, gæða- og mannauðsstjóri Stefán B. Sigurðsson, prófessor emeritus, skipaður af rektor Yvonne Höller prófessor, skipuð af rektor Auðbjörg Björnsdóttir forstöðumaður, skipuð af rektor Daníel Gunnarsson, fulltrúi stúdenta Steinunn Alda Gunnarsdóttir, fulltrúi stúdenta Bragi Guðmundsson prófessor, fulltrúi Hug- og félagsvísindasviðs Elísabet Hjörleifsdóttir dósent, prófessor emerita frá 1. júlí, fulltrúi Heilbrigðisvísindasviðs Steingrímur Jónsson prófessor, fulltrúi Viðskiptaog raunvísindasviðs Sigrún Lóa Kristjánsdóttir, verkefnastjóri gagnagreiningar og fjárhags, fulltrúi Háskólaskrifstofu. Að sjálfsögðu hefur heimsfaraldurinn valdið margs konar erfiðleikum og áskorunum. Hvað varðar samskipti var starfsfólk háskólans mjög vel í stakk búið að færa þau í rafrænt form með skömmum fyrirvara.