ÁRSSKÝRSLA 2020
STARFSFÓLK Framgangur Rektor Háskólans á Akureyri veitti framgang samkvæmt reglum nr. 1010/2016 um framgang og ótímabundna ráðningu akademísks starfsfólks við HA, með síðari breytingum. Framgangur er veittur frá og með 1. júlí ár hvert og einnig er veittur framgangur við nýráðningu. Framgangur við nýráðningu:
Eftirtalið starfsfólk fékk framgang 1. júlí 2020:
Guðrún Pálmadóttir, prófessor emerita við Heilbrigðisvísindasvið
Elísabet Hjörleifsdóttir, prófessor emerita við Heilbrigðisvísindasvið
Árni Gunnar Ásgeirsson, Yvonne Höller, prófessor dósent við Hug- og félagsvísindasvið
við Hug- og félagsvísindasvið
Helga Kristjánsdóttir, prófessor við Viðskiptaog raunvísindasvið, frá og með 1. ágúst 2020
Tveir starfsmenn luku doktorsprófi:
Margrét Valdimarsdóttir, lektor í lögreglufræði, varði doktorsritgerð sína í afbrotafræði við The City University of New York þann 28. apríl. Ritgerðin heitir Examining the contextual effects of racial profiling, and the long-term consequences of punitive interventions: Testing labeling theory with the National longitudinal study of adolescent to adult health data. Leiðbeinandi var dr. Amy Adamczyk, prófessor við The City University of New York. Einnig voru í nefnd dr. Joshua Freilich prófessor og dr. Jeremy Porter prófessor, báðir við sama skóla. Enn fremur dr. Jón Gunnar Bernburg, prófessor við Háskóla Íslands, og dr. Chongmin Na, lektor við John Jay College of Criminal Justice.
Richard E. Taehtinen, aðjúnkt við sálfræðideild, varði doktorsritgerð sína í íþróttasálfræði við Liverpool John Moores University þann 15. desember. Ritgerðin heitir The Killing of a Sacred Veneer: Depressive Symptoms in Athletes. Andmælendur við doktorsvörnina voru dr. Mark Uphill, dósent við Canterbury Christ Church University í Bretlandi, og dr. Joanne Butt, prófessor við Liverpool John Moores University í Bretlandi. Leiðbeinandi var dr. Robert Morris, lektor við University of Stirling í Skotlandi. Meðleiðbeinendur voru dr. Martin Eubank og dr. Gillian Cook við Liverpool John Moores University.
11