handbok

Page 72

Búnaðarlistar Í gönguferðum um fjöll og firnindi er ýmist gengið með léttan dagpoka með nauðsynjum hvers dags eða stóran bakpoka sem geymir mat, svefnpoka og tilheyrandi fyrir alla daga ferðarinnar.

• • • •

Margs konar búnaður er alltaf í bakpokanum, hvort sem farið er í stuttar eða langar ferðir. Göngumenn ættu til dæmis aldrei að fara til fjalla öðruvísi en að taka með sér tæki til rötunar og vatns- og vindheldan klæðnað, enda er allra veðra von á Íslandi. Annar búnaður fer eftir eðli ferðarinnar, lengd og persónulegum þörfum göngumannsins.

• • • • • •

Vatnsbrúsi Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi Göngustafir Myndavél og kíkir Sólgleraugu / skíðagleraugu Sólarvörn og varasalvi Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír Húfa, vettlingar og buff um hálsinn Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður Legghlífar, vaðskór og broddar, ef þurfa þykir

DAGSFERÐIR

Það er sitt hvað að rölta upp að Steini í Esjunni eða upp á Botnssúlur en að mörgu leyti þarf búnaðurinn í dagpokanum að vera sá sami. Hér er búnaðarlisti fyrir dagsferðir.

TRÚSSFERÐ / BÆKISTÖÐVAFERÐIR

Trússferðir / Bækistöðvarferðir Bækistöðvarferðir nefnast þær ferðir þar sem gist er á sama stað í einhverjar nætur og gengið með léttan dagpoka út frá náttstað. Ýmist er gist í tjaldi eða skálum í svona ferðum.

Í trússaðri ferð er farangur fluttur á milli náttstaða svo aðeins þarf að bera nauðsynlegan búnað fyrir einn dag í einu í léttum dagpoka. Mat, svefnpoka og tilheyrandi er pakkað ofan í trússtösku og flutt í náttstað, sem getur ýmist verið tjaldstæði eða skáli.

Búnaðarlisti fyrir Trússferð / bækistöðvarferðir Bakpokaferðir Bakpokaferðir nefnast þær ferðir þar sem gengið er á milli náttstaða með allan farangur á bakinu. Stundum er gengið á milli skála en oft er tjald borið á bakinu líka og þá er göngumaðurinn ekki bundinn af neinum náttstað og ferðast frjáls eins og fuglinn - með þungan bakpoka þó!

Þó að ekki þurfi í trússferðum að skera allan útbúnað niður eins og þegar gengið er með allt á bakinu þá er nauðsynlegt að pakka naumt. Oftast er takmarkað pláss í trússbílum og bátum og pökkun þarf að taka mið af því.

Hér er búnaðarlisti fyrir bakpokaferðir. Gengið og skíðað á jökli Þegar ferðast er um jökla þarf að pakka aðeins öðruvísi en fyrir hefðbundnar fjallgöngur þar sem margs konar jöklabúnaður bætist við farangurinn. BÚNAÐARLISTI FYRIR JÖKLAFERÐIR Dagsferðir Pakkað fyrir dagsferð Dagsferðir eru mismunandi og geta tekið frá örfáum klukkustundum upp í hálfan sólarhring. Listinn hér að neðan er því ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar, veðri og árstíma.

• • • •

Göngufatnaður Góðir gönguskór og mjúkir göngusokkar Nærföt, ull eða flís, eftir veðri Peysa úr ull eða flís Göngubuxur / stuttbuxur

Pakkað fyrir trússferð eða bækistöðvarferð

Bækistöðvaferð er svipuð trússferðum en þá er gengið með dagpoka út frá sama náttstað allan tímann, tjaldi eða skála. Í bækistöðvaferðum er farangur ekki trússaður á milli náttstaða og hægt að vera enn frjálslegri í pökkun en í trússferðunum. Athugið að listinn hér að neðan er ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar og hvort sofið er í skála eða tjaldi. Ef gengið er á milli skála eða dvalið í skála, þá má þar oftast finna eldunaraðstöðu og matarílát auk salernis eða kamars með klósettpappír.

• • • •

• • • • •

• • • •

Í dagpokanum Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum Áttaviti, landakort og GPS tæki Smurt nesti fyrir daginn Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur

• • • • • • • •

72

Ferðafélag Íslands - Gæðahandbók

Göngufatnaður Góðir gönguskór og mjúkir göngusokkar Nærföt, ull eða flís, eftir veðri Peysa úr ull eða flís Göngubuxur / stuttbuxur Í dagpokanum Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum Áttaviti, landakort og GPS tæki Smurt nesti fyrir daginn Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur Vatnsbrúsi Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi Göngustafir Myndavél og kíkir Sólgleraugu Sólarvörn og varasalvi Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír Húfa, vettlingar og buff um hálsinn


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.