
2 minute read
GÆÐAKERFI FÍ VÖKTUN ÞESS OG RÝNI
Gæðakerfi og gæðaskjöl þess eru vöktuð og rýnd árleg
• Gerð áhættumats er venjulega ekki einstakur atburður, heldur hluti af reglulegri starfsemi. Til þess að ferlið virki sem skyldi er nauðsynlegt að fylgja því eftir, það endurtekið eftir þörfum og árangur vaktaður.
Advertisement
• Mikilvægt er að fylgjast með hvort forsendur breytast. Dæmi um breyttar forsendur sem gefa tilefni til endurskoðunar á áhættumati eru nýjar eða breyttar vörur, breytingar á félaginu, breytingar hjá birgjum og samstarfsaðilum eða öðrum ytri aðstæðum. Hér þarf að beita heilbrigðri skynsemi í að meta hversu umfangsmiklar breytingar þarf. Íslensk veðrátta gerir það til dæmis að verkum að nýjar hættur skapast yfir vetrartímann. Breytt tímasetning á ferð er þá dæmi um breytingu sem gæti kallað á endurskoðun.
• Fyrir þá sem kaupa þjónustu annara aðila í ferðaþjónustu er mikilvægt að kalla eftir öryggisáætlunum þeirra sem veita þjónustuna, fylgjast með hvort þjónusta þeirra breytist og kalla þá eftir uppfærslum.
• Atvik eru alltaf tilefni til endurskoðunar á áhættumati. Atvik gefa mikilvægar upplýsingar um mögulegar áhættur og innsýn í mögulegar afleiðingar. Við gerð áhættumats skal hafa til hliðsjónar nýlegar atvikaskýrslur.
• Fylgja ber eftir aðgerðum sem settar eru á áætlun; að þær klárist og skili tilætluðum árangri.
• Öll áhættumöt eru endurskoðuð árlega, í það minnsta til að staðfesta að engar breytingar hafi orðið á því hvernig þjónustan er afhent.
• Í slíkri reglulegri endurskoðun er rétt að leggja mat á hvort þeirri aðferð við gerð áhættumats sem hér er lýst sé fylgt.
• Framkvæmdastjóri er ábyrgur fyrir gerð áhættumats og eftirfylgni.
VAKINN SIÐAREGLUR
Ferðafélagið skuldbindur sig til að fara eftir siðareglum Vakans sem eru þessar:
• Ferðafélagið veitir viðskiptavinum sínum kurteislega og áreiðanlega þjónustu. • Ferðafélagið virðir og viðheldur trúnaði og þagmælsku gagnvart viðskiptavinum. • Ferðafélagið hefur að leiðarljósi fagmennsku, heiðarleika og sanngirni í öllum samskiptum og viðskiptum. • Ferðafélagið sýnir öllum viðskiptavinum sömu virðingu og tillitssemi óháð t.d. kyni, uppruna, menningu, kynhneigð, trú, aldri, þjóðfélagsstöðu og líkamlegu atgervi. • Ferðafélagið tryggir að allar upplýsingar til viðskiptavina séu réttar og að auglýsingar þess gefi sanna og trúverðuga mynd af þjónustu og aðstöðu. • Ferðafélagið verðleggur vörur og þjónustu með skýrum hætti í samræmi við gildandi lög. • Ferðafélagið leitast við að svara öllum fyrirspurnum og óskum á faglegan og skilvirkan hátt. • Ferðafélagið tryggir sanngjörn og skjót viðbrögð við kvörtunum. • Ferðafélagið hefur í heiðri öll lög og reglur varðandi reksturinn og fylgir þeim eftir. • Ferðafélagið tryggir að faglega sé staðið að bókhaldi og reikningsskilum. • Ferðafélagið uppfyllir allar skyldur við starfsmenn með því að fara að lögum og gildandi kjarasamningum. • Ferðafélagið sér til þess að starfsfólk fái viðeigandi þjálfun og fræðslu og að vinnuskilyrði séu við hæfi. • Ferðafélagið tryggir öryggi starfsmanna og viðskiptavina með faglegum starfsháttum, góðri aðstöðu og viðurkenndum búnaði. • Ferðafélagið sýnir í verki ábyrgð gagnvart íslenskri náttúru, umhverfi og samfélagi. • Ferðafélagið hefur í heiðri hagsmuni og orðstír Íslands sem hágæða dvalarstaðar, þar sem fagmennska, gestrisni, góð þjónusta og sjálfbærni eru í fyrirrúmi.
