3 minute read

BÍLSTJÓRI Í TRÚSSFERÐUM

Next Article
TRÚSSFERÐ

TRÚSSFERÐ

• Kenna gestum á neyðarfjarskipti þannig að þeir geti náð sambandi við viðbragðsaðila ef leiðsögumaður slasast. • Geta sett upp neyðarskýli (Bothy - bag) ef aðstæður krefjast þess. • Ræða um salernismál; staðsetningar og minna fólk á að brenna pappír. • Hvetja gesti til að drekka og nærast eins og þarf • Fjarlægja allt rusl sem til fellur á göngunni – líka lífrænt • Gefa ráðleggingar um fatnað – fylgjast með að gestir séu ekki of- eða vanklæddir • Fá upplýsingar um veður ef þarf, veðurstofan s.: +354 522 6000 – biðja um vakthafandi veðurfræðing • Hafa samskipti við skálavörð þegar komið er í skála, tryggja að hann fái greiðsluseðil (voucher) fyrir gistingunni. • Kynna umgengnisreglur skála fyrir farþegum sem og WC og sturtur. • Elda mat eða hafa umsjón með eldun. • Stýra verkaskiptingu gesta í frágangi og undirbúningi við matseld og önnur sameiginleg verkefni.

Eftir ferð

Advertisement

• Safna saman öllum úthlutuðum búnaði. • Kveðja gesti • Fylla út atvikaskýrslu ef þörf þykir og skila: atvikaskýrsla

Verklagsregla þessi nær til bílstjóra sem sinna farangursflutningi milli gististaða í gönguferðum á vegum FÍ.

Hæfniskröfur

Bílstjóri þarf að hafa gild ökuréttindi til þess að aka því ökutæki sem á að nota í ferðinni. Hann þarf að hafa staðgóða þekkingu á þeim leiðum sem á að fara í ferðinni, hafa reynslu og þekkingu í þverun straumvatna á bifreið, með kerru og þekkja lög og reglur um utanvegaakstur.

Skyldur

Trússara bera skylda til að sjá til þess að ökutækið og kerra sé í fullnægjandi ástandi hverju sinni – með sérstaklega áherslu á öryggisbúnað. Hann á að sjá til þess að bíll og kerra séu snyrtileg í upphafi ferðar og á meðan ferð stendur eins og kostur er. Bílstjóri skal í einu og öllu fara eftir þeim lögum og reglum sem ná yfir atvinnuakstur og eiga við hverju sinni og gæta fyllsta öryggis í akstri. Ávallt skal ekið á merktum slóðum eða vegum. Sé þess ekki kostur s.s. að vetrarlagi eða þegar snjór er enn á jörðu skal forðast að aka um viðkvæm svæði. Þegar ekið er yfir vatnsföll skal leitast við að valda sem minnstum skemmdum á bökkum.

Búnaður ferðar:

Viðeigandi ökutæki með næga flutningsgetu fyrir farangur og búnað. Lokuð, ryk- og vatnsheld farangurskerra með nægjanlegt rými fyrir farangur og búnað. Persónulegur fatnaður og búnaður eins og þarf og í samræmi við leiðarlýsingu. Búnaður frá lager FÍ í samræmi við búnaðarlista ferðar. Ferðalýsing frá skrifstofu FÍ.

Starfslýsing

Fyrir ferð

• Gera ráðstafanir um að nálgast bíl og kerru sé þess þörf. • Athuga á hjólabúnaður sé í samræmi við færð hverju sinni. • Kynna sér ferðaáætlun í ferðalýsingu. • Fylgjast með færð og ástandi þeirra vega sem áætlunin er að keyra. • Gæta að hvíldartíma milli ferða. • Gæta að lyfja og áfengisneyslu og tryggja að hún hafi ekki áhrif á akstur í ferð. • Kynna sér allar verklagsreglur sem ná yfir viðkomandi ferð.

Í ferð

• Hlaða farangri í bíl og kerru þannig að vel fari um búnað og hann skemmist ekki. Gæta þess að hafa það aðgengilegt sem þörf er á yfir daginn. • Skipta löngum akstri niður þannig að þannig að trússari fái reglulega hvíld – til lágmarks í samræmi við reglur um hvíldartíma. • Gæta þess að fylla á eldsneytisbirgðir eins og þarf. • Haga akstri þannig að fyllsta öryggis sé gætt, vel fari um farangur og að eldsneytiseyðsla og álag á bifreið sé eins lítið og hægt er. • Viðhafa almenna þjónustulund og aðstoða gesti og leiðsögumann eins og hægt er. • Endurmeta aðstæður ef veður og færð breytast og gera breytingar á ferðaáætlun sé ástæða til – í samvinnu við skrifstofu eftir atvikum. • Snyrtilegur og viðeigandi klæðnaður áskilinn.

Eftir ferð

• Þrífa bíl & kerru. • Skila farangri til farþega á gististað og búnaði á lager FÍ. • Fylla út atvikaskýrslu ef þörf þykir og skila: atvikaskýrsla

This article is from: