
5 minute read
BÚNAÐARLISTAR
Í gönguferðum um fjöll og firnindi er ýmist gengið með léttan dagpoka með nauðsynjum hvers dags eða stóran bakpoka sem geymir mat, svefnpoka og tilheyrandi fyrir alla daga ferðarinnar.
Margs konar búnaður er alltaf í bakpokanum, hvort sem farið er í stuttar eða langar ferðir. Göngumenn ættu til dæmis aldrei að fara til fjalla öðruvísi en að taka með sér tæki til rötunar og vatns- og vindheldan klæðnað, enda er allra veðra von á Íslandi. Annar búnaður fer eftir eðli ferðarinnar, lengd og persónulegum þörfum göngumannsins.
Advertisement
DAGSFERÐIR
Það er sitt hvað að rölta upp að Steini í Esjunni eða upp á Botnssúlur en að mörgu leyti þarf búnaðurinn í dagpokanum að vera sá sami. Hér er búnaðarlisti fyrir dagsferðir.
Trússferðir / Bækistöðvarferðir
Bækistöðvarferðir nefnast þær ferðir þar sem gist er á sama stað í einhverjar nætur og gengið með léttan dagpoka út frá náttstað. Ýmist er gist í tjaldi eða skálum í svona ferðum.
Búnaðarlisti fyrir Trússferð / bækistöðvarferðir Bakpokaferðir
Bakpokaferðir nefnast þær ferðir þar sem gengið er á milli náttstaða með allan farangur á bakinu. Stundum er gengið á milli skála en oft er tjald borið á bakinu líka og þá er göngumaðurinn ekki bundinn af neinum náttstað og ferðast frjáls eins og fuglinn - með þungan bakpoka þó!
Hér er búnaðarlisti fyrir bakpokaferðir . Gengið og skíðað á jökli
Þegar ferðast er um jökla þarf að pakka aðeins öðruvísi en fyrir hefðbundnar fjallgöngur þar sem margs konar jöklabúnaður bætist við farangurinn.
BÚNAÐARLISTI FYRIR JÖKLAFERÐIR Dagsferðir Pakkað fyrir dagsferð
Dagsferðir eru mismunandi og geta tekið frá örfáum klukkustundum upp í hálfan sólarhring. Listinn hér að neðan er því ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar, veðri og árstíma.
Göngufatnaður
• Góðir gönguskór og mjúkir göngusokkar • Nærföt, ull eða flís, eftir veðri • Peysa úr ull eða flís • Göngubuxur / stuttbuxur
Í dagpokanum
• Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum • Áttaviti, landakort og GPS tæki • Smurt nesti fyrir daginn • Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur • Vatnsbrúsi • Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi • Göngustafir • Myndavél og kíkir • Sólgleraugu / skíðagleraugu • Sólarvörn og varasalvi • Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf • Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír • Húfa, vettlingar og buff um hálsinn • Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður • Legghlífar, vaðskór og broddar, ef þurfa þykir
TRÚSSFERÐ / BÆKISTÖÐVAFERÐIR Pakkað fyrir trússferð eða bækistöðvarferð
Í trússaðri ferð er farangur fluttur á milli náttstaða svo aðeins þarf að bera nauðsynlegan búnað fyrir einn dag í einu í léttum dagpoka. Mat, svefnpoka og tilheyrandi er pakkað ofan í trússtösku og flutt í náttstað, sem getur ýmist verið tjaldstæði eða skáli.
Þó að ekki þurfi í trússferðum að skera allan útbúnað niður eins og þegar gengið er með allt á bakinu þá er nauðsynlegt að pakka naumt. Oftast er takmarkað pláss í trússbílum og bátum og pökkun þarf að taka mið af því.
Bækistöðvaferð er svipuð trússferðum en þá er gengið með dagpoka út frá sama náttstað allan tímann, tjaldi eða skála. Í bækistöðvaferðum er farangur ekki trússaður á milli náttstaða og hægt að vera enn frjálslegri í pökkun en í trússferðunum.
Athugið að listinn hér að neðan er ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar og hvort sofið er í skála eða tjaldi. Ef gengið er á milli skála eða dvalið í skála, þá má þar oftast finna eldunaraðstöðu og matarílát auk salernis eða kamars með klósettpappír.
Göngufatnaður
• Góðir gönguskór og mjúkir göngusokkar • Nærföt, ull eða flís, eftir veðri • Peysa úr ull eða flís • Göngubuxur / stuttbuxur
Í dagpokanum
• Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum • Áttaviti, landakort og GPS tæki • Smurt nesti fyrir daginn • Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur • Vatnsbrúsi • Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi • Göngustafir • Myndavél og kíkir • Sólgleraugu • Sólarvörn og varasalvi • Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf • Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír • Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
• Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður • Legghlífar, vaðskór og broddar, ef þurfa þykir
Í trússtöskunni
• Svefnpoki og lítill koddi • Bolur til skiptana og til að sofa í • Auka nærbuxur og sokkar • Höfuðljós • Tannbursti og tannkrem • Sápa / sjampó • Lítið handklæði • Eyrnatappar • Skálaskór • Peningar • Núðlur eða pasta í pokum • Pulsur eða foreldaðar kjúklingabringur • Eitthvað gott á grillið • Kol og uppkveikilögur • Haframjöl • Brauð og flatkökur • Smjör og álegg, svo sem ostur, kæfa, hangikjöt • Hrökkbrauð og kex • Þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur • Kakó, te og/eða kaffi • Súpur • Krydd, t.d. salt og pipar
Ef sofið er í tjaldi þarf að auki í trússtöskuna
• Tjald og tjalddýna • Prímus og eldsneyti • Eldspýtur • Pottur • Hitabrúsi og drykkjarbrúsi • Diskur og drykkjarmál • Hnífapör • Vasahnífur / skæri • Viðgerðasett, nál og tvinni, snæri og klemmur
BAKPOKAFERÐIR Pakkað fyrir bakpokaferð
Þegar gengið er með allt á bakinu er nauðsynlegt að skera útbúnað niður eins og hægt er, án þess að sleppa nauðsynjum. Hafið bakpokann ekki þyngri en þið treystið ykkur til að bera. Hæfileg þyngd fer eftir líkamsástandi hvers og eins en oft er miðað við að bakpoki skuli ekki vera þyngri en 15-20% af líkamsþynd þess sem ber hann.
Athugið að listinn hér að neðan er ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar og hvort sofið er í skála eða tjaldi. Ef gengið er á milli skála, þá má í flestum skálum Ferðafélags Íslands finna eldunaraðstöðu og matarílát auk salernis/kamars með klósettpappír.
Ýmislegt
• Bakpoki, ekki of stór • Svefnpoki, léttur og hlýr • Bakpokahlíf / plastpokar inn í bakpokann • Tjald og tjalddýna • Göngustafir • Áttaviti, landakort og GPS tæki • Höfuðljós • Viðgerðasett, nál og tvinni, snæri og klemmur • Myndavél og kíkir • Sólgleraugu / skíðagleraugu • Broddar, ef þurfa þykir • Peningar
Snyrtivörur / sjúkravörur
• Hælsærisplástur, plástur og teygjubindi • Verkjalyf • Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír • Tannbursti og tannkrem • Sápa / sjampó • Lítið handklæði / þvottapoki • Sólvarnarkrem og varasalvi • Eyrnatappar
Mataráhöld / eldunartæki
• Prímus, eldsneyti og pottur • Eldspýtur • Diskur og drykkjarmál • Hnífapör • Hitabrúsi og drykkjarbrúsi • Vasahnífur / skæri
Fatnaður
• Góðir gönguskór • Vaðskór / skálaskór • Tvö pör mjúkir göngusokkar • Húfa, vettlingar og buff um hálsinn • Nærbuxur til skiptana • Nærföt, ull eða flís • Flís- eða ullarpeysa • Millilag úr ull eða flís • Göngubuxur • Stuttbuxur • Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður • Legghlífar
Matur
• Frostþurrkaður matur • Núðlur eða pasta í pokum • Haframjöl • Smurt brauð og flatkökur • Hrökkbrauð og kex • Þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur • Kakó, te og/eða kaffi • Súpur • Krydd, t.d. salt og pipar