Yfirlit 24 Flokkun eftir rekstrarsviðum 26 Ferðaþjónusta 38 Saga húsanna
Heilbrigðisþjónusta
Fasteignir
Útivist og hreyfing 58 Aðrar fjárfestingar 62 Ársreikningur 2023 67 Ársreikningur móðurfélags
Skýringar 82 Hagnýtar upplýsingar
Ýmsir tenglar
HELSTU TÖLUR ÚR ÁRSREIKNINGI
Consolidated Key Figures in ISK million Íslensk fjárfesting ehf. Consolidated Accounts
Consolidated Key Figures in ISK million Íslensk fjárfesting ehf. Consolidated Accounts
& Loss Account (ISK million)
Balance Sheet (ISK million)
CONSOLIDATED KEY FIGURES IN DKK
Consolidated Key Figures in DKK
ÍSLENSK FJÁRFESTING
hefur markað sér þá stefnu
að fjárfesta á fjórum aðalsviðum: Ferðaþjónustu, heilbrigðisþjónustu, fasteignum og útivist og hreyfingu.
Helstu tölur
Helstu tölur úr ársreikningi
Árið 2023 var ágætis ár fyrir Íslenska fjárfestingu en afkoman var töluvert undir væntingum. Það sem helst hefur áhrif til lækkunar á hagnaði frá væntingum er að afkoma Kilroy kemur aðeins að litlum hluta inn í rekstrarniðurstöðu samstæðunnar þar sem fyrir var neikvætt eigið fé í Eignarhaldsfélaginu Kilroy vegna COVID-áranna. Einnig hafði mikil áhrif að gangvirðisbreyting á fasteignum í Stöfum ehf., fasteignafélagi samstæðunnar, skilaði sér ekki inn í rekstur félagsins heldur var fært á móti yfirverði hlutabréfa í dótturfélögunum. Rekstur flestra fyrirtækja samstæðunnar var sterkur og stefnir í annað gott rekstrarár árið 2024. Undirliggjandi svið Íslenskrar fjárfestingar ehf. skiluðu góðri afkomu nema svið útivistar- og hreyfingar en þar hefur verið fjárfest í miklum breytingum á rekstrinum og var afkoman þar neikvæð. Búist er við því að það breytist á árinu 2024. Rekstur allra fyrirtækja nema Útilífs skilaði rekstrarniðurstöðu í takt við væntingar. Við búumst við mjög góðu rekstrarári árið 2024 byggt á fyrstu 6 mánuðum ársins.
Fasteignasvið félagsins skilaði ágætis afkomu eftir venjulegan rekstur þrátt fyrir hátt vaxtastig. Endurmat á fasteignum félagsins að upphæð 1.061 milljón kr. skilaði sér einungis að litlu leyti
inn í rekstur samstæðunnar vegna yfirverðs í dótturfélögum.
Fasteignafélagið Stafir er í mikilli sókn og eru mörg fjárfestingaverkefni í skoðun ásamt því að kaup á nýrri fasteign fyrir um 3 milljarða kr. kemur inn í Stafi á árinu. Þar er um að ræða nýbyggingu sem er stækkun á Reykjavík Residence hótelinu og fer í leigu til Flóra hotels ehf. Íslenskar fasteignir eru með mörg verkefni í vinnslu svo sem hjúkrunarheimili, hótel, skrifstofubyggingar, íbúðir og fleira. Búist er við mjög umsvifamiklu ári hjá báðum félögunum innan fasteignasviðsins.
Heilbrigðisþjónustan átti ágætis rekstrarár og greiddu Sjúkratryggingar Öldungi til baka vanreiknað húsnæðisgjald á árinu að upphæð u.þ.b. 300 milljónir. Nokkra þætti fyrri ára gagnvart Öldungi, svo sem “Betri vinnuvika” og nokkur önnur atriði, á enn eftir að leiðrétta og munu þeir að líkindum koma til afgreiðslu á árinu. Þar er reiknað með því að um sé að ræða verulega uppbót á daggjaldi. Samningaviðræður standa yfir við ríkið um stækkun á
Sóltúni 2 en ákveðið hefur verið að stækka húsið um 67 rými sem ættu að verða tilbúin um mitt ár 2026. Sóltún heilbrigðisþjónusta flutti skrifstofu sína í nýtt húsnæði í Kópavogi á árinu.
Útilíf fór í gegnum gríðarlegar breytingar á árinu 2022-2023. Ný
yfirstjórn tók við félaginu fyrir 18 mánuðum síðan og voru á árunum 2022 og 2023 opnaðar tvær nýjar verslanir. Önnur er Útilífsbúð
í Skeifunni og hin er North Face-búð í Austurhöfn. Báðar þessar verslanir hafa náð sterkri stöðu á markaðnum á árinu 2023.
Félagið skipti einnig um bókhaldskerfi og sölukerfi á árinu ásamt
því að endurmóta vörumerki félagsins og markaðsstefnu. Á árinu
2024 verða stærstu verkefnin fólgin í því að ná sterkari tökum
á innkaupakerfi félagsins og hefja markaðssókn með áherslu á beina markaðssetningu. Útilíf kom inn í rekstur samstæðunnar í september 2021. Reikningar félagsins taka mið af því að miklar fjárfestingar hafa verið gerðar í innviðum félagsins sem munu
skila sér til lengri tíma. Búist er við því að rekstur félagsins verði orðinn jákvæður á árinu 2024 þrátt fyrir hátt vaxtastig.
Heildareignir móðurfélagsins voru um 5.491 milljónir kr. Eignir samstæðunnar eru rúmlega 23,2 milljarðar kr.
MÓÐURFÉLAG
KPMG hefur endurskoðað ársreikning móðurfélagsins í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla.
HAGNAÐUR / TAP
Hagnaður varð af rekstri móðurfélagsins árið 2023 að upphæð
499,1 milljón kr. Það er töluvert undir væntingum. Helstu ástæður þess að hagnaður var töluvert lægri en búist var við eru að mestu tæknilegar. Kilroy skilaði einungis litlum hluta af hagnaði til samstæðunnar vegna uppsafnaðs neikvæðs eigin fjár í
Eignarhaldsfélaginu Kilroy sem er tilkomið vegna COVID-áranna. Einnig gat fasteignafélagið Stafir einungis fært til tekna lítinn hluta af endurmati á fasteignum sökum þess að í dótturfélögum var yfirverð á hlutafé í bókum félaganna.
Útilíf stóð í miklum umbreytingarverkefnum og var því með tap að upphæð 358,2 milljónir kr. á sviði útivistar og hreyfingar.
Fasteignasvið var með 904,1 millj. kr hagnað, Heilbrigðissvið var með 287 millj. kr hagnað, Ferðaþjónustusvið var með 241,9 milljóna kr. hagnað (SSTS sem er dótturfélag Eignarhaldsfélagsins
Kilroy var þó með 469,4 milljón kr. hagnað en það skilaði sér aðeins að litlu leyti upp í móðurfélagið þar sem hagnaður var fyrst færður á móti neikvæðu eigin fé).
EIGIÐ FÉ
Eigið fé móðurfélagsins jókst á árinu 2023 eða frá 4.506 milljónum kr. í 4.790 milljónir kr. Eiginfjárhlutfall móðurfélagsins var 87,2% árið 2023. Eignir í Eignarhaldsfélaginu Kilroy ehf. hafa ekki verið færðar upp miðað við markaðsverð, heldur eru þær færðar á kostnaðarverði. Þar telja stjórnendur að markaðsverð sé verulega vanmetið. Eignir í Flóra hotels ehf. hafa heldur ekki verið færðar upp miðað við markaðsvirði en stjórnendur áætla að bókfært verðmæti rekstrar Flóru sé einnig verulega vanmetið.
HEILDAREIGNIR
Heildareignir móðurfélagsins eru um 5.490,1 milljón kr. Lykilstærðir eignamegin eru eignarhlutir í Stöfum ehf., Sóltúni heilbrigðisþjónustu ehf., Eignarhaldsfélaginu KILROY ehf. og Flóra hotels ehf. Eignir móðurfélagsins lækka en einnig skuldir við dótturfélög.
SKAMMTÍMASKULDIR
Skammtímaskuldir móðurfélagsins eru 95 milljónir kr. um áramót.
LANGTÍMASKULDIR
Allar langtímaskuldir móðurfélagsins voru gerðar upp á árinu 2020. Á árinu 2023 minnkuðu langtímaskuldir flestra dótturfélaga verulega fyrir utan Kilroy sem mun verða eitt til tvö ár að greiða til baka skuldir vegna COVID-19 tímabilsins.
Stjórnendur telja að á árinu 2023 hafi sókn hafist fyrir alvöru í ferðaþjónustunni að nýju. Hótelin hafa stækkað hratt og Kilroy jók tekjur sínar töluvert á árinu og enn er búist við því að tekjur aukist í ferðaþjónustunni. Heilbrigðisþjónustan er með öfluga framkvæmdastjórn og stjórnendur búast við því að góður rekstur sé framundan í heilbrigðisþjónustunni, ekki síst vegna þess að samlegðaráhrif eru að nást fram og töluverður vöxtur væntanlegur á næstu árum. Á fasteignasviði eru mörg spennandi þróunarverkefni framundan hjá Íslenskum fasteignum á sama tíma og fasteignafélagið Stafir vex hratt og örugglega en markmið okkar þar eru að tvöfalda félagið að stærð á hverjum fimm árum.
Það er mat stjórnenda að flest félög samstæðunnar séu í mjög góðum rekstri og með sterka framkvæmdastjórn. Á árinu 2023 verða stjórnir nokkurra félaga styrktar enn frekar til að styðja við þann vöxt sem er framundan á mörgum sviðum.
ÍSLENSK FJÁRFESTING var stofnuð árið 1999 í þeim tilgangi að halda utan um ýmsar fjárfestingar eigendanna og er því félagið nú, árið 2024, orðið 25 ára. Undirliggjandi fjárfestingar eru í dag komnar í nokkuð jafnan rekstur með góðum vexti.
Félagið
Um Íslenska fjárfestingu ehf.
Félagið var stofnað árið 1999 í þeim tilgangi að halda utan um ýmsar fjárfestingar eigendanna. Félagið er því orðið 25 ára.
Íslensk fjárfesting hefur markað sér þá stefnu að fjárfesta á fjórum aðalsviðum: Ferðaþjónustu, heilbrigðisþjónustu, fasteignum og í útivist og hreyfingu.
Íslensk fjárfesting leitast við að vera meirihlutaeigandi eða í
leiðandi stöðu í þeim verkefnum sem það fjárfestir í. Eigendur
félagsins leggja mikla áherslu á að styrkja grunnstoðirnar fjórar og fjárfesta því ekki í verkefnum sem heyra ekki undir þessar fjórar grunnstoðir nema í undantekningartilfellum og þá til að styðja við fjárfestingarsviðin fjögur. Íslensk fjárfesting er fjárfestingafélag í jafnri eigu Arnars Þórissonar og Þóris Kjartanssonar.
Hjá fyrirtækjum í meirihlutaeigu Íslenskrar fjárfestingar starfa 1049 starfsmenn (767 FTE). Hjá móðurfélaginu starfa sextán manns sem sinna fjárfestingum, þróun verkefna, fjármálastjórnun, mannauðsstjórnun, lögfræði, framkvæmdastjórn og utanumhaldi.
FRAMKVÆMDASTJÓRN
ÍSLENSKRAR FJÁRFESTINGAR
Framkvæmdastjórn Íslenskrar fjárfestingar skipa sex aðilar: Arnar Þórisson, stjórnarformaður félagsins, Þórir Kjartansson, framkvæmdastjóri, Björn Þór Karlsson, lögmaður, Einar Þór Steindórsson, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar, Linda Metúsalemsdóttir, fjármálastjóri og Magnús Edvardsson, framkvæmdastjóri fjárfestinga. Framkvæmdastjórn hefur það hlutverk að styðja við núverandi fyrirtæki sem Íslensk fjárfesting er fjárfestir í ásamt því að skoða nýjar fjárfestingar. Einnig heldur framkvæmdastjórn utan um fjárflæði allra dótturfyrirtækja Íslenskrar fjárfestingar ásamt því að sjá um ávöxtun á fjármagni og aðstoða dótturfélög við fjármögnun, fjármál, þróun og rekstur.
Framkvæmdastjórn
LÖGFRÆÐI
Björn Þór Karlsson er lögmaður fyrirtækisins og framkvæmdastjóri Stafa. Hann hefur áður starfað hjá Thule Investments, Lögfræðistofu Gunnars Thoroddsen, Legis lögfræðistofu og við eigin rekstur. Björn Þór er með BA-gráðu og meistaragráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands og er með réttindi til málflutnings fyrir héraðsdómi.
VIÐSKIPTAÞRÓUN
Einar Steindórsson er framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar. Einar situr í stjórnum ýmissa fyrirtækja í samstæðu Íslenskrar fjárfestingar ásamt því að vera framkvæmdastjóri og meðstofnandi
Leitar Capital Partners. Einar hefur víðtæka reynslu af störfum á fjármálamarkaði en frá árinu 2005 hefur hann starfað hjá Straumi Fjárfestingabanka, H.F. Verðbréfum, Kalan Capital Reykjavík og
Deutsche Bank. Einar er með B.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík og MBA gráðu frá IESE Business School í Barcelona. Hann hefur jafnframt lokið prófi í verðbréfaviðskiptum.
FJÁRMÁL
Linda Metúsalemsdóttir er fjármálastjóri Íslenskrar fjárfestingar ehf. Hún hefur yfir 22 ára starfsreynslu á fjármálamarkaði, einkum á sviði fjármálastjórnunar, bókhalds og uppgjörsmála. Linda var áður fjármálastjóri Thule Investments og starfaði þar áður hjá SP fjármögnun og Fjárfestingarfélagi Íslands.
FJÁRFESTINGAR
Magnús Edvardsson er framkvæmdastjóri fjárfestinga. Magnús hefur yfir 15 ára reynslu á fjármálamarkaði en hann starfaði í fyrirtækjaráðgjöf hjá Kviku banka og forverum á árunum 2009-
2023. Þar á undan starfaði Magnús hjá Kaupþingi. Magnús er með M.Sc. í fjárfestingarstjórnun frá Háskólanum í Reykjavík og
B.Sc. í viðskiptafræði frá sama skóla.
EIGENDUR
Arnar Þórisson er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og með
MBA frá viðskiptaháskólanum IESE í Barcelona. Arnar hefur starfað um langt árabil í ferðageiranum, hvort tveggja á Íslandi og erlendis.
Arnar hefur verið stjórnarformaður KILROY International frá 2007 og stjórnarformaður Íslenskrar fjárfestingar ehf. frá 1999. Hann situr einnig í stjórn Eldeyjar eignarhaldsfélag hf. sem er fjárfestingafélag í ferðaþjónustu. Áður starfaði Arnar m.a. sem framkvæmdastjóri Félagsstofnunar stúdenta, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá
KILROY, aðstoðarforstjóri og fjármálastjóri flugfélagsins Atlanta og stjórnarformaður CAOZ. Arnar er fæddur 1964.
Þórir Kjartansson er byggingarverkfræðingur að mennt frá Háskóla Íslands og með MBA frá viðskiptaháskólanum IESE í Barcelona. Þórir hefur starfað í ferðageiranum, heilbrigðisgeiranum og fasteignageiranum í meira en 25 ár. Hann sat í átta ár í stjórn
Landspítala háskólasjúkrahúss og hefur setið í opinberum nefndum
á heilbrigðissviði, svo sem í nefnd um byggingu á nýju húsnæði fyrir
Landspítala háskólasjúkrahús. Þórir hefur verið stjórnarformaður Flóra hotels ehf., og Stafa ehf. frá stofnun þess. Þórir var stjórnarformaður Sóltún Heilbrigðisþjónustu ehf og dótturfélaga frá stofnun og til ársins 2022. Þórir hefur starfað sem framkvæmdastjóri Íslenskrar fjárfestingar frá 1999. Áður en Þórir kom að stofnun Íslenskrar fjárfestingar ehf. starfaði hann hjá Icelandair, Icelandspring og Philips. Þórir er fæddur 1969.
Björn Þór Karlsson Einar Steindórsson Linda Medúsalemsdóttir Magnús Edvardsson Arnar Þórisson Þórir Kjartansson
Verkefnin 2023
Helstu verkefni 2023
Íslensk fjárfesting ehf. hélt áfram fjárfestingum og stuðningi við dótturfélög sín á árinu og einkenndist árið af góðum árangri flestra fyrirtækjanna.
KILROY
Rekstur Kilroy gekk vel á árinu. Á árinu 2023 opnaði KILROY útibú í Bristol í Bretlandi. Aðstoð við menntun hefur lengi verið sérstakt svið innan KILROY. Frá og með 2024 starfar það svið nú undir merkjum Education Abroad, powered by KILROY. Sviðið aðstoðar námsmenn sem sækjast eftir námi erlendis. Sviðið starfar í Svíþjóð og Noregi.
Í Danmörku opnaði Jysk Rejsebureau nýja söluskrifstofu í Óðinsvéum og ný söluskrifstofa verður opnuð í Vesturbrú í Kaupmannahöfn. Útibú KILROY í Árhúsum fór í stærra húsnæði. Í Noregi færðu bæði BENNS og KILROY sig yfir í stærra húsnæði í Osló.
ÍSLENSKAR FASTEIGNIR
Á árinu 2022 lauk mörgum stórum verkefnum Íslenskra fasteigna, ýmist með verklokum og afhendingu eða með sölu þeirra í kjölfar mikilla verðhækkana á fasteignum og lóðum. Félagið var því vel í stakk búið til að hefja undirbúning nýrra fasteignaþróunarverkefna á árinu 2023.
Á árinu tók félagið við byggingarstjórn Hyatt Centric hótels sem verður byggt á Laugavegi 176 í Reykjavík. Margir þekkja bygginguna betur sem gamla sjónvarpshúsið. Hótelið verður 169 herbergi með veitingastað, bari, fundarsali og líkamsræktarstöð á 11.000 m2. Eigandi fasteignarinnar er fasteignafélagið Reitir og eru verklok áætluð haustið 2025.
Að auki eru mörg stór verkefni í undirbúningi svo sem hjúkrunarheimili, hótelbyggingar og íbúðaverkefni. Undanfarnir 18 mánuðir hafa farið í undirbúning þessara verkefna sem verður spennandi að fylgjast með á næstu mánuðum og árum.
STAFIR
Mótuð var langtímastefna fyrir Stafi auk þess sem félagið fékk framangreint nafn í stað eldra nafns sem var Fasteignafélag ÍFJ.
Stafir fjárfestu í nýrri fasteign við Laugaveg 33-35. Um er að ræða húsnæði í byggingu með 38 hótelíbúðum sem afhent verður Stöfum sumarið 2024 og verður í rekstri Reykjavík Residence hótel.
Útilíf opnaði glæsilega útivistarverslun í Skeifunni 11 og stóðu
Stafir fyrir töluverðum framkvæmdum á húsnæðinu.
Á Kársnesinu í Kópavogi var atvinnuhúsnæði í eigu Stafa innréttað sem skrifstofuhúsnæði fyrir Sóltún.
Almennur rekstur fasteigna gekk vel og farið var í kostnaðarsamar viðhaldsaðgerðir, sér í lagi á hótelfasteignum í miðbænum. Ljóst er að bæði verðbólga og hátt vaxtastig hefur og mun hafa áhrif
á efnahag Stafa.
SÓLTÚN HEILBRIGÐISÞJÓNUSTA
Starfsemin árið 2023 einkenndist af innleiðingu skipulagsbreytinga sem tóku gildi í lok ársins 2022 þar sem félögin færðust undir eina stjórn. Lögð var áhersla á að efla gæði og þjónustu, hagræða í rekstri, samræma lykilþætti starfsemi tveggja hjúkrunarheimila og uppfæra tækni og ferla.
Félagið opnaði nýja vefsíðu, www.soltun.is, og uppfærði vöru- og myndmerkið Sóltún til nútímans í samstarfi við Kolibri. Vefurinn hefur unnið til fjölda verðlauna, meðal annars silfurverðlaun á Íslensku vefverðlaununum 2024. Unnið hefur verið að bættri upplýsingagjöf og ásýnd á samfélagsmiðlum.
Sóltún hélt glæsilega ráðstefnu í Hörpu, Eldri og betri – áskoranir og tækifæri í öldrunarþjónustu, með íslenskum og erlendum fyrirlesurum, sem vakti mikla athygli.
Í samstarfi við Reginn fasteignafélag var unnið að þarfagreiningu á stækkun á Sóltúni hjúkrunarheimili en Reginn er eigandi Sóltúns
2. Mikil eftirspurn er eftir hjúkrunarrýmum á Sóltúni og Sólvangi en um 100 aldraðir bíða eftir rými á hvoru heimili fyrir sig.
Unnið var að þróun nýrra þjónustuúrræða fyrir aldraða og fékk
Sóltún öldrunarþjónusta ehf. vilyrði fyrir lóð frá Hafnarfjarðarbæ undir 88 rýma hjúkrunarheimili í Hamranesi sem er nýtt hverfi í
útjarðri sveitarfélagsins. Hafist var handa við forhönnun í samstarfi við Íslenskar fasteignir ehf. Unnið er að framkvæmdaleyfi frá ríkinu og þjónustusamningi.
FLÓRA HOTELS
Á hótel- og veitingasviði samstæðunnar var á árinu stofnað móðurfélag og hlaut það nafnið Flóra hotels. Á sviðinu eru rekin
5 vörumerki: Reykjavík Residence hótel, ODDSSON hótel, Tower
Suites Reykjavík, Port9 vínbar og In-port9 víninnflutningur.
Rekstur hótelanna gekk vel á árinu þrátt fyrir að eldhræringar
undir lok árs hafi haft sín áhrif á reksturinn. Reykjavík Residence tekur í sumar í notkun nýtt hótel að Laugavegi 33-35 auk þess sem félagið tók í notkun nýtt hótel sem heitir ODDSSON Downtown í júní 2024 að Háteigsvegi 1. Sú eining er 33 íbúðir. Miklar væntingar eru til næstu ára í hótelrekstri en búist er við því að tekjur og hagnaður verði með því besta sem við höfum séð.
Áfram var fjárfest í fjárfestingarsjóðnum Vonzeo í Kanada í samstarfi við nokkra aðra fjárfesta.
Jafnframt var haldið áfram að fjárfesta í Leitar I slhf. og rekstraraðila félagsins. Leitar fjárfestir í ungum einstaklingum og styður þá við að finna, fjárfesta í og leiða vöxt á litlu til meðalstóru fyrirtæki. Fyrsta fjárfesting Leitar I slhf. var gerð á síðasta ári hjá leitarsjóði í stýringu Hlöðvers Þórs Árnasonar í fyrir tækjunum Program og Andes.
Sagan
1999 Íslensk fjárfesting er stofnuð utan um fjárfestingar Arnars Þórissonar og Þóris Kjartanssonar.
2003 Fjárfest í tölvuteiknimyndafyrir tækinu CAOZ og Arnar verður stjórnarformaður þess félags.
2005 Fyrsta salan á fasteign í eigu félagsins. Hafist handa við fjárfestingar og þróun á Grandagarðsreit í Reykjavík.
2007 Eignarhaldsfélagið KILROY er stofnað og kaupir 73,1% í SSTS A/S sem kaupir 100% hlut í ferðaþjónustufélaginu KILROY International.
2002 Íslenskar fasteignir stofnaðar.
2006 Fjárfest í Gistiheimilinu Domus í Reykjavík. ÍF selur margar af fasteignum félagsins til mismunandi aðila.
2010
Félagið Íslenska öldrunarFélagið Kársnes fasteignir ehf. er stofnað í kringum eignir sem félagið tók yfir á Kársnesi en þar er framtíðarbyggingarland.
Farið í algera endurgerð á húsnæði félagsins að Hverfisgötu 45 og Veghúsastíg 7 og mars 2011 er Reykjavík Residence hótel
opnað í endurgerðu húsnæði að Hverfisgötu 45.
KILROY International kaupir starfsemi Wasteels Rejser í Danmörku. KILROY International kaupir 40% hlut í Our world A/S Íslenska öldrunarþjónustan ehf. stofnar félagið Sólstöður ehf. sem hefur rekstur vinnumiðlunar fyrir starfsfólk á heilbrigðissviði.
2012 RR hótel stækkar og byggir við Hverfisgötu 21.
2009
Íslenska heilbrigðisþjónustan kaupir 90% hlut í Öldungi hf. sem á og rekur hjúkrunarheimilið Sóltún.
KILROY International eignast 57% hlut í Horizons A/S með sameiningu á KILROY Denmark og Jysk Rejsebureau.
2011
KILROY Group travel eignast 27,6% hlut í Skitravel Group með sameiningu
Team Benns Ski og Hojmark Rejser. Söluskrifstofa er sett upp á Íslandi. Endurskipulagður rekstur hótelfélagsins sem nú heitir RR hótel ehf. og rekur þrjú vörumerki: Reykjavík Residence, Domus Guesthouse og Hótel Garður.
2013
KILROY International A/S fjárfestir í Frank, finnsku stúdentafyrirtæki. KILROY Foundation er sett á laggirnar og lýkur fyrsta verkefni sínu við byggingu skóla í Afríku. KILROY
International A/S kaupir út minnihluta hluthafa í Horizon A/S. RR hótel stækkar og bætir við sig íbúðum.
Sagan
Saga Íslenskrar fjárfestingar
2014-2022
2014
Íslensk fjárfesting ehf. fjárfestir í 51,5% hlut í fjárfestingarfélaginu Einvala fjárfesting ehf.
Eignarhaldsfélagið Vinabyggð ehf. stofnað og ÍFJ kaupir 80% hlut. EV ehf. kaupir á sama tíma upp
76,3% hlut í félaginu Vinabyggð ehf. sem á lóðir á Kársnesi Kópavogi.
2016
KILROY Group Travel seldi á árinu 27,5% eignarhlut í Skigroup A/S. Nýtt dótturfyrir tæki var stofnað í Póllandi.
Íslensk fjárfesting jók eignarhlut sinn í Vinabyggð með kaupum á 23,7% hlut í félaginu. Einnig fjárfesti Íslensk fjárfesting í gegnum dótturfélag sitt,
Hafnarbyggð ehf., í öðrum þróunarreit á Kársnesi. Seldur var 50% hlutur í þróunarfélaginu Kársnesbyggð ehf. á Kársnesi, en hann var seldur til Kviku banka.
Íslenskar fasteignir fjárfestu, sem minnihlutaeigandi, í Ásbrú ehf., sem er félag utan um eignarhald á nokkur hundruð íbúðum og atvinnueignum á Reykjanesi.
2014 2015 2016 2017
2015
RR hótel kaupir fasteignirnar
Lindargötu 11 og Hverfisgötu
78 sem verið er að endurgera og nýttar sem hluti af hótelinu.
Íslensk fjárfesting ehf.
stofnar félagið Rekstrarfélag Íslenskrar fjárfestingar ehf. í
þeim tilgangi að halda utan um rekstur móðurfélagsins.
Íslenska heilbrigðisþjónustan
ehf. kaupir félagið Sóltún 1 ehf. Félagið mun byggja 44 íbúðir fyrir 60 ára og eldri á lóð sinni.
Íslensk fjárfesting ehf. fjárfestir í 3,3% hlut í fjárfestingarfélaginu Eldey TLH hf. Félagið var stofnað með 3 milljarða sjóð sem ætlaður er til fjárfestingar í hlutafé í ferðaþjónustufélögum í jákvæðum rekstri.
2017
Fjárfest var í félaginu Mink Campers auk þess sem fjárfest var í fjárfestingarsjóðnum Vonzeo í Kanada í samstarfi við nokkra aðra fjárfesta.
Íslenskar fasteignir tóku að sér verkumsjón með Cambridge Plaza Hotel við Austurbakka. RR hóteli var skipt upp í rekstrarfélag og fasteignafélag. RR fasteignir luku við tvær nýjar byggingar að Veghúsastíg 9a og Lindargötu 11 sem RR hóteli var afhent um sumar 2017.
2018 KILROY eignaðist sænsku ferðaskrifstofuna Winberg Travel. RR fasteignir ehf. kláraði að byggja 16 hótelíbúðir að Hverfisgötu 78 sem voru afhentar til leigu til RR hótels ehf í maí 2019.
2020 Öldungur hf seldi fasteignina Sóltún 2 til Regins fasteignafélags. Mörg félaganna glímdu við áhrif COVID-19.
2022
Lóðir á Kársnesi í Kópavogi og í Sóltúni voru seldar til Fjallasólar ehf.
2018 2019 2020 2022 2021
2019
Sóltún öldrunarþjónusta tók við rekstri Sólvangs í Hafnarfirði eftir að hafa orðið hlutskarpast í útboði.
Íslenskar fasteignir luku við framkvæmdir
á Grensásvegi 16a sem er í eigu félagsins og hófst hótelrekstur byggingunni.
2021
Stofnað var nýtt fjárfestingarsvið „Útivist og hreyfing“ með kaupum á íþrótta- og útivistar versluninni Útilífi.
Unnið var að stofnun North face verslunar og nýrrar verslunar í Skeifunni.
Yfirlit
Skipurit
Yfirlit yfir starfsemi Íslenskrar fjárfestingar ehf.
Skipuritið tekur mið af stöðunni þann 1. maí 2024
ÍSLENSK FJÁRFESTING EHF. ICELAND INVEST
FERÐAÞJÓNUSTA
EIGNARHALDSFÉLAGIÐ KILROY EHF.
SSTS A/S
KILROY International A/S
KILROY Belgium B.V.B.A. (Belgía)
Reykjavík Residence Hotel ehf.
Oddsson Downtown Hotel ehf.
Oddsson Midtown Hote ehf.
Tower Suites Reykjavík ehf.
Port9 ehf.
IN-Port9 ehf.
KILROY group travel A/S (Danmörk)
Horizons A/S (Danmörk)
JR TRAVEL A/S (Danmörk)
OUR WORLD A/S (Danmörk)
KILROY Finland OY AB (Finnland)
KILROY Iceland ehf. (Ísland)
KILROY Norway AS (Noregur)
KILROY Poland Sp. z. o. o. (Pólland)
KILROY Sweden AB (Svíþjóð)
KILROY Netherlands B.V. (Holland)
KILROY Travels UK Ltd (Bretland)
REKSTRARFÉLAG ÍSLENSKRAR FJÁRFESTINGAR EHF.
HEILBRIGÐISÞJÓNUSTA FASTEIGNIR
SÓLTÚN HEILBRIGÐISÞJÓNUSTA EHF
ÖLDUNGUR HF
SÓLTÚN fasteign EHF
SÓLTÚN
ÖLDRUNARÞJÓNUSTA EHF
SÓLSTÖÐUR EHF
SÓLTÚN 4 EHF
NOREGUR
Bergen
Osló
Þrándheimur
ÚTIVIST OG HREYFING
AÐRAR FJÁRFESTINGAR TNF ÍSLAND EHF
KOMASVO EHF
ÍSLAND
Reykjavík
Íslensk fjárfesting er minnihluta
fjárfestir í ýmsum öðrum verkefnum, þar má t.d. nefna:
STARFSEMI ÍSLENSKRAR FJÁRFESTINGAR EHF. er skipt upp í
fjögur svið: Ferðaþjónustu, heilbrigðisþjónustu, fasteignir og útivist og hreyfingu. Þessi fjögur svið eru mjög ólík í eðli sínu og einnig eru þau misstór. Ferðaþjónustan er langstærst í veltu en hin sviðin hafa þó mikil áhrif á rekstrarniðurstöðu og aðrar stærðir í efnahag samstæðunnar.
Fasteignasvið félagsins hefur stækkað mikið undanfarin ár þar sem Stafir hafa fjárfest í hótelbyggingum og verslunarhúsnæði. Íslenskar fasteignir hafa einnig styrkt fasteignaþróun og byggingarsvið sitt með öflugri verkefnaþátttöku í fasteignaþróun og byggingarstarfsemi í mörgum mismunandi verkefnum.
Eðli fasteignasviðsins er líka ólíkt hinum sviðunum að mörgu
leyti, þar sem rekstur þess er lítill en breytingarnar gerast á efnahag þegar verkefnum er lokið. Nýlega breytti þó fasteignafélagið
Stafir um endurskoðunaraðferð þegar félagið var fært árið 2022 í fasteignastaðal og þar með kemur endurmat á fasteignum inn í gegnum rekstur.
Af heildarstöðugildum (FTE) ársins voru um 435 innan ferðaþjónustunnar, 271 innan heilbrigðisþjónustunnar, 8,33 innan fasteignasviðs, 38 innan útivistar og hreyfingar og 13 á stoðsviði.
Skipting milli sviða
Ferðaþjónusta
Heilbrigðisþjónusta
Fasteignir og þróun Útivist og hreyfing
Annað
Samtals
Ferðaþjónusta
Ferðaþjónusta er stærsta
fjárfestingarsvið Íslenskrar
fjárfestingar en félagið
hefur fjárfest í ferðaþjónustu
frá árinu 2007
Ferðaþjónusta er stærsta fjárfestingarsvið Íslenskrar fjárfestingar en félagið hefur fjárfest í ferðaþjónustu frá árinu 2007
Stærsta fjárfesting félagsins á ferðaþjónustu sviði er félagið KILROY International A/S. KILROY er evrópskt ferðaþjónustufyrirtæki sem er leiðandi á þeim sviðum sem það starfar á.
Félagið starfar nú í átta löndum, með skrifstofur á 20 stöðum í Evrópu og starfar undir fjórum vörumerkjum. Hjá félaginu starfa um 440 manns í 382 stöðugildum.
Íslensk fjárfesting ehf. hefur byggt upp félagið Flóra hotels ehf. frá árinu 2010. Flóra hotels samanstendur af Reykjavík Residence hótel, ODDSSON hótel, ODDSSON Downtown hótel og Tower Suites Hotel ásamt Port 9 vínbar. Reykjavík Residence hótel sérhæfir sig í íbúðarhótelum í háum gæðaflokki. RR hótel er byggt á grunni gamalla sögufrægra húsa í Reykjavík sem hafa verið endurnýjuð og fengið nýtt hlutverk sem hágæða íbúðir. Í öllum tilfellum hefur verið lögð áhersla á að vernda húsin og miðla sögu þeirra.
KILROY International er móðurfyrirtæki nokkurra evrópskra ferðaþjónustufélaga sem eru hvert og eitt leiðandi í þeirri tegund ferðaþjónustu sem félögin hafa skilgreint sem sinn markað. KILROY rekur vörumerki á átta mörkuðum í Evrópu og hjá KILROY starfa meira en 400 manns.
KILROY hafði vaxið umtalsvert á árunum fram að COVID og tekið yfir fjölmörg minni ferðaþjónustufyrirtæki. Starfsemin varð fyrir miklu höggi í COVID en hefur náð fyrri styrk sínum og er veltan nú meiri en hún var árið 2019. Félagið varð nokkuð skuldsett í COVID en stefnt er að því að þær skuldir verði að fullu greiddar niður á næstu þremur árum.
Helstu vörumerkin eru KILROY, Benns, Jysk Rejsebureau, Winberg Travel og ISIC. Félagið leggur mesta áherslu á einstaklingsmiðaðar ferðir og vega þar þyngst svokallaðar „backpackers“-ferðir en félagið hefur lengi verið í forystu á því sviði á Norðurlöndunum. Stærsti viðskiptavinahópur fyrir tækisins er ungt fólk og stúdentar en KILROY hefur meira en 60 ára reynslu í að þjóna þeim markhópi.
KILROY leggur mikið upp úr því að byggja upp vörumerki sín og efla það traust sem viðskiptavinirnir hafa á þeim. Mikil áhersla er lögð á menntun starfsfólks og að það búi sjálft að umtalsverðri ferðareynslu sem það getur miðlað til viðskiptavina. Undanfarin ár hefur verið fjárfest markvisst í upplýsingatækni og þjónustu á netinu og mun áfram verða leitað leiða til að þjóna viðskiptavinum sem best í gegnum netið.
Starfsemi KILROY skiptist í raun í nokkra markaði. Auk einstaklingsferðanna sem að ofan er getið hefur KILROY sérhæft sig í ráðgjöf um menntun erlendis og hópferðum skólahópa.
Benns er stærsti söluaðili námsferða í Danmörku ásamt því að selja dýrari ferðir á borð við siglingar, safarí, heilsuferðir og fleira.
Jysk Rejsebureau hefur líkt og KILROY sérhæft sig í einstaklingsmiðuðum ferðum en skírskotar til breiðara aldursbils.
KILROY leggur áherslu á að starfsemi fyrirtækisins gagnist ekki eingöngu viðskiptavinum heldur líka umhverfinu og öðrum hagsmunaaðilum með langtíma sjálfbærni að leiðarljósi.
KILROY samstæðan gefur út eigin ársskýrslu sem hægt er að nálgast inn á www.kilroy.net
KILROY INTERNATIONAL
KILROY – INDIVIDUAL TRAVEL
KILROY hefur getið sér gott orð sem leiðandi sérfræðingar í ferðamálum ungmenna og námsmanna. KILROY sérhæfir sig í sérsniðnum ferðapökkum fyrir einstaklinga. Söluráðgjafar eru þjálfaðir í að setja saman flóknar flugleiðir og ferðir umhverfis jörðina. Auk þess er mikilvægt að þessir ráðgjafar eru sjálfir þrautreynt áhugafólk um ferðalög. KILROY býður viðskiptavinum sínum það besta úr báðum heimum: Persónulega þjónusturáðgjafa og sjálfsafgreiðslu á netinu.
KILROY – GROUP TRAVEL
KILROY hefur yfirburðastöðu á markaði á Norðurlöndunum og sérhæfir sig í hópferðum með fræðslutilgangi. Sérstök ferðavara hefur verið þróuð í samstarfi við viðskiptavini sem í flestum tilfellum eru
kennarar. Hún felst í því að útvega þeim kennsluefni sem hægt er að nota fyrir og eftir námsferðina þannig að þeir geti sparað sér tíma við undirbúninginn og eflt menntunartengt innihald ferðarinnar.
KILROY – EDUCATION
KILROY vörumerkið er sterkt á námsmannamarkaðnum en einnig varðandi nám erlendis. KILROY býður upp á ráðgjafaþjónustu fyrir námsmenn sem leita að námi erlendis eða tækifærum til starfsnáms. Núverandi vöruframboð gefur kost á fjölbreyttum áfangastöðum, námssviðum og reynslu með samstarfi við fjölda háskóla í hæsta gæðaflokki og aðrar fjölbreyttar menntastofnanir um allan heim.
JYSK REJSEBUREAU
Jysk Rejsebureau hefur hannað ferðir fyrir hinn ævintýraþyrsta ferðalang í áratugi. Söluráðgjafar Jysk Rejsebureau eru sjálfir með mikla reynslu sem ferðalangar og þeir einbeita sér að því að veita viðskiptavinum tækifæri til að upplifa svæði sem iðulega finnast þar sem malbikið endar og vegirnir breytast í slóða. Leitast er við að setja saman ferðir með miklu af „að upplifa heiminn“-innihaldi – ferðir sem eru einstök reynsla en um leið á viðráðanlegu verði. Í byrjun árs 2018 keypti Jysk Rejsebureau sænsku ferðaskrifstofuna
Winberg Travel sem lið í því að færa út kvíarnar til annarra norrænna markaða og starfar Winberg enn undir því vörumerki.
BENNS
Ferðaskrifstofa sem sérhæfir sig í margskonar áfangastöðum og ferðum, svo sem safaríferðum, skemmtisiglingum, kynnisferðum með leiðsögn og víðtæku neti áfangastaða og ferða í Bandaríkjunum/ Kanada og Ástralíu/Nýja Sjálandi. Aðalmarkhópur Benns er fólk sem orðið er eldra en 50 ára. Vörumerkið BENNS var kynnt í upphafi
árs 2015 og kemur í stað heitisins Team Benns. Síðar á árinu 2015 yfirtók BENNS vörumerkið tur.no í Noregi.
ISIC KILROY
ISIC KILROY er með rétt til að gefa út ISIC-kortið (International Student Identity Card, alþjóðlega námsmannakortið) á sex markaðssvæðum. ISIC eru einu persónuskilríkin sem njóta alþjóðlegrar viðurkenningar og eru tekin gild sem staðfesting á stöðu handhafans sem námsmanns í fullu námi og er bæði gefið út sem kort eða með ISIC-appinu. Appið og rafræn skilríki er hægt að nálgast í meira en 100 löndum. Korthafar eru um 4 milljónir og það veitir aðgang að meira en 150.000 afsláttartilboðum um allan heim.
OURWORLD
Fyrirtækið sérhæfir sig í hópferðum með leiðsögn um allan heim og beinir athyglinni að því að þjóna fyrirtækjum og félagasamtökum.
Flóra hotels
Á hótel- og veitingasviði samstæðunnar var á árinu stofnað
móðurfélag og hlaut það nafnið Flóra hotels. Á sviðinu eru rekin
5 vörumerki: Reykjavík Residence hótel, ODDSSON hótel, Tower Suites Reykjavík, Port9 vínbar og In-port9 víninnflutningur.
Framkvæmdastjóri Flóra hotels er Inga Harðardóttir.
REYKJAVÍK RESIDENCE HÓTEL
Flaggskip fyrirtækisins er Reykjavík Residence hótel í miðborg Reykjavíkur. Hótelið samanstendur af 63 hótelíbúðum, allt frá tveggja manna stúdíóíbúðum upp í þriggja svefnherbergja íbúðir. Fullbúin eldhús eða eldunaraðstaða er í öllum íbúðum. Hótelið er til húsa í 8 fallegum byggingum afar miðsvæðis, nálægt
Laugavegi en samt fjarri öllum skarkala miðbæjarins. Byggingar hótelsins eru á Hverfisgötu 21, Hverfisgötu 45, tvær byggingar á Hverfisgötu 78, Veghúsastíg 7, Veghúsastíg 9, Veghúsastíg 9a og Lindargötu 11.
Flest húsanna eru sögufrægar byggingar reistar snemma á síðustu öld en tvær þeirra voru byggðar fyrir hótelið á allra síðustu árum. Allar eru byggingarnar í góðri sátt við umhverfi sitt og uppruna og sögu þeirra er miðlað í máli og myndum í hverju húsi fyrir sig. Hótelið er fyrir kröfuharðari viðskiptavini og hefur unnið til fjölmargra verðlauna. Reykjavík Residence hefur verið starfrækt síðan í mars 2011. Hótelstjóri er Sigrún Pétursdóttir.
Snemma árs 2020 var opnuð ný og glæsileg gestamóttaka að Hverfisgötu 60 og er þar sameiginleg móttaka fyrir öll vörumerki félagsins. Aðstaðan þar gerir félaginu kleift að þjóna viðskiptavinum sínum enn betur en áður. Hótelið nýtir sér tæknina í sífellt auknum mæli og býðst gestum t.d. að hlaða niður smáforriti í símann og nýta það sem lykil að herbergjum.
PORT 9
Félagið rekur einnig vínbarinn Port 9 við Veghúsastíg 7-9. Port 9 var opnaður í nóvember 2016 og hefur verið vel tekið af viðskiptavinum, bæði innlendum sem og erlendum ferðamönnum. Vínbarinn leggur mikinn metnað í að bjóða upp á
áhugaverð og ljúffeng eðalléttvín. Nafnið Port 9 er dregið af portinu sem er á milli húsanna Veghúsastígs 7, 9 og 9A.
Innflutningsfyrirtækið Inport-9 hóf á árinu að flytja inn kampavín og önnur eðalléttvín frá Frakklandi, Spáni og Portúgal. Vínin er fyrst um sinn hægt að nálgast á Port9 vínbarnum og á hótelum félagsins.
ODDSSON HÓTEL
Félagið tók við rekstri ODDSSON hótels á vormánuðum 2020. Hótelið, sem er staðsett á Grensásvegi 16a, er stílhreint og nútímalegt 77 herbergja hótel, hóflega verðlagt og hentugt fyrir smærri hópa og fjölskyldur. Afar vel staðsett rétt fyrir utan miðkjarna borgarinnar. Gestamóttakan er miðlæg og er staðsett á Hverfisgötu 60. Gestir fá send herbergisnúmer og kóða í tölvupósti stuttu fyrir komu og hefur það fyrirkomulag gengið vel. Veitingastaður og bar eru á hótelinu. Hótelstjóri er Inga Harðardóttir.
TOWER SUITES REYKJAVÍK
Á vormánuðum ársins 2018 tók félagið yfir rekstur 8 lúxussvíta á efstu hæð turnsins við Höfðatorg í Reykjavík. Undir vörumerkinu Tower Suites Reykjavík er rekin ein glæsilegasta gistiaðstaða borgarinnar. Útsýnið af 20. hæðinni þykir einstakt og er mjög góður rómur gerður að dvöl í turninum. Reksturinn hefur gengið vel og er töluverð samlegð með öðrum hótelverkefnum. Hótelstjóri er Anni Maivel.
Saga húsanna
RR hótel ehf.
LINDARGATA 11
Ástráður Hannesson byggði fyrstu gerð hússins. Árið 1906 seldi Ástráður Sigurði Jónssyni bóksala og mági hans, Vilhjálmi
Árnasyni trésmið húsið, enda hafði hann þá byggt hús handan götunnar, Smiðjustíg 13 (Ástráðshús). Þeir félagar réðust strax í stækkun hússins og næstu áratugi bjó þar sama fjölskyldan.
VEGHÚSASTÍGUR 9A
Á árunum 1911–1914 byggði Bergur Einarsson sútari þrjá skúra á Veghúsastíg 9a, á bak við hús sitt, Bergshús. Þetta voru þurrkhús með porti og tveir steinsteyptir skúrar.
VEGHÚSASTÍGUR 9 / BERGSHÚS
Timburhús klætt með bárujárni, byggt árið 1910 og seinna var byggt við það í áföngum. Húsið byggði Bergur Einarsson, fyrsti Íslendingurinn sem lærði og starfaði við sútaraiðn. Þar bjó hann ásamt konu sinni, Önnu Árnadóttur Einarsson, og tveimur dætrum, og hafði sútunarverkstæði og verslun.
HVERFISGATA 21
Steinhús byggt árið 1912 fyrir Jón Magnússon, þá bæjarfógeta í Reykjavík og seinna fyrsta forsætisráðherra Íslands, og eiginkonu hans, Þóru Jónsdóttur. Seinna voru þar m.a. höfuðstöðvar félaga bókagerðarmanna, skrifstofur bæjarfógeta og skrifstofa Áfengisverslunar ríkisins.
Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis hóf þar starfsemi sína og sömuleiðis var þar til húsa Bókaútgáfa Menningarsjóðs og Þjóðvinafélagsins. Konungur og drottning Danmerkur og Íslands gistu í húsinu í opinberri heimsókn sinni 1926 og bera konunglegu svítur hótelsins nöfn þeirra Christians X konungs og Alexandrine drottningar.
HVERFISGATA 45
Steinhús byggt árið 1914. Hér var áður tómthúsbýlið Hlíð eða Arnljótskot. Fyrstu eigendur hússins voru hjónin Matthías Einarsson læknir
og Ellen Ludvíka Matthíasdóttir
Johannessen, foreldrar Louisu Matthíasdóttur listmálara. Seinna var húsinu skrifstofa aðalræðismanns, síðar Sendiráð Noregs, og þá var Söngskólinn í Reykjavík í húsinu í nærri aldarfjórðung.
HVERFISGATA 78
Bókfellshúsið á Hverfisgötu 78 var byggt á árunum 1945–1947 en bókbandsstofan
Bókfell hafði verið stofnuð nokkru áður af nokkrum stórhuga mönnum árið 1943 þegar heimsstyrjöldin síðari var í algleymingi. Margar prentsmiðjur hafa verið í húsinu, sú síðasta prentsmiðjan Formprent, sem var til húsa á fyrstu hæðinni frá 1970 til 2016. Um hríð var einnig lakkrísgerð, fatahreinsun, skrifstofur SÍBS o.fl. í húsinu.
1975
VEGHÚSASTÍGUR 7
Steinsteypt og að hluta til steinhlaðið hús byggt árið 1920, hannað af Erlendi Einarssyni arkitekt. Þar og viðbyggingum sem seinna voru rifnar voru til húsa, sápugerðin Máni, smjörlíkisgerðin Smári, bókaútgáfan Helgafell, prentsmiðjan
Víkingsprent, bókaverslunin Unuhús og sýningarsalir fyrir myndlist. Þá var Félag áhugamanna um stjörnulíffræði til húsa risinu um tæplega tveggja áratuga skeið.
GRENSÁSVEGUR 16A
Byggingin að Grensásvegi 16a var byggð á árinu 1975 og var upphaflega hönnuð m.a. fyrir höfuðstöðvar ASÍ. Árið 1980 fékk Listasafn ASÍ fastan samastað á efstu hæð Grensásvegar 16a og var fyrsta myndlistarsýningin opnuð þar 1. maí sama ár. Menningar og fræðslusamband ASÍ var einnig þar til húsa og voru fjölmörg námskeið haldin þar á þeirra vegum. Um miðjan annan áratug þessarar aldar hófst vinna við umbreytingu á byggingarreitnum sem markast af Grensásvegi 16a og Síðumúla 37-39. Tveimur hæðum var bætt við á Grensásveg 16a og lítilli 2ja hæða viðbyggingu ofan við hótelið, við Fellsmúla.
Heilbrigðisþjónusta
ÖLDRUNARÞJÓNUSTA
Íslensk fjárfesting hefur einsett sér að vera virkur þátttakandi á markaði fyrir einkarekna heilbrigðisþjónustu á Íslandi. Fjárfestingar félagsins á því sviði eru nær allar í öldrunarþjónustu. Þær helstu eru Öldungur hf., Sóltún öldrunarþjónusta ehf. og Sólstöður ehf.
SÓLTÚN HEILBRIGÐISÞJÓNUSTA EHF.
Svið sem Íslensk fjárfesting hefur mikinn áhuga á er öldrunar- og hjúkrunarþjónusta. Með kaupum á félaginu Öldungur hf. sem rekur hjúkrunarheimilið Sóltún hóf Íslensk fjárfesting virka þátttöku í íslenskri öldrunarþjónustu. Að mati félagsins má enn bæta miklu við í þjónustu við aldraða og því mun félagið einbeita sér að því í framtíðinni. Eftirspurn eftir þjónustu í þessum geira mun aukast gríðarlega á næstu árum og áratugum í takt við hækkandi meðalaldur þjóðarinnar. Öldungur hf. og Sóltún öldrunarþjónusta ehf. eru dótturfélög Sóltúns heilbrigðisþjónustu ehf.
Starfsemin árið 2023 einkenndist af innleiðingu skipulagsbreytinga sem tóku gildi í lok ársins 2022 þar sem félögin færðust undir eina stjórn. Lögð var áhersla á að efla gæði og þjónustu, hagræða í rekstri, samræma lykilþætti starfsemi tveggja hjúkrunarheimila, uppfæra tækni og ferla.
Félagið opnaði nýja vefsíðu, www.soltun.is, og uppfærði vöru- og myndmerkið Sóltún til nútímans í samstarfi við Kolibri. Vefurinn hefur unnið til fjölda verðlauna, meðal annars silfur verðlaun á Íslensku vefverðlaununum 2024. Unnið hefur verið að bættri upplýsingagjöf og ásýnd á samfélagsmiðlum.
Sóltún hélt glæsilega ráðstefnu í Hörpu, Eldri og betri – áskoranir og tækifæri í öldrunarþjónustu, með íslenskum og erlendum fyrirlesurum, sem vakti mikla athygli.
SÓLTÚN ÖLDRUNARÞJÓNUSTA OG SÓLSTÖÐUR
Stefna Íslenskrar fjárfestingar er að einbeita sér að þeim þáttum öldrunarþjónustunnar þar sem mest vaxtar tækifæri eru framundan og þeirri tegund þjónustu sem ekki hefur haft mikinn forgang hjá hinu opinbera. Aukin eftirspurn og vöxtur getur hvort tveggja stafað af breyttri aldurssamsetningu þjóðarinnar og breyttum kröfum um þjónustu og þjónustugæði. Áhersla verður því á að auka framboð af öldrunarþjónustu á Íslandi með það að leiðarljósi að veita öldruðum þá þjónustu sem þeir óska helst eftir, á þeim stað sem hentar þeim best og þegar þeir þurfa á
þjónustunni að halda, helst í samstarfi við stærsta þjónustukaupandann, ríkið. Á árinu 2010 stofnaði Íslensk fjárfesting ehf. ásamt Hjúkrunarmati og ráðgjöf ehf. félagið Íslensku öldrunarþjónustuna ehf., sem nú heitir Sóltún öldrunarþjónusta ehf.
Félagið hefur það meginhlutverk að sinna vaxtar verkefnum á heilbrigðissviði og hefur unnið að uppbyggingu á heimaþjónustu
fyrir eldri borgara í sjálfstæðri búsetu. Félagið tók vaxtarkipp eftir að hafa orðið hlutskarpast við útboð á rekstri Sólvangs hjúkrunarheimilis í Hafnarfirði og urðu aðilaskipti vorið 2019. Árið 2023 gekk vel á Sólvangi en þar fer fram fjölbreytt þjónusta. Þar eru 71 hjúkrunarrými, tvær dagdvalir, heimaþjónustan Sóltún
Heima og Sóltún Heilsusetur sem var opnað haustið 2022. Sóltún Heilsusetur er nýsköpunar verkefni sem stuðlar að bættum lífsgæðum aldraðra í sjálfstæðri búsetu og er ætlað með árangri í bættum styrk, andlegum og líkamlegum, að draga úr þörf fyrir dýrari þjónustuúrræði. Þjónustan er rekin á samningi við Sjúkratryggingar Íslands.
Á árinu 2010 var sett á stofn dótturfélagið Sólstöður ehf. sem sérhæfir sig í atvinnumiðlun heilbrigðisstarfsfólks. Félagið sinnti atvinnumiðlun íslensks fagfólks til Noregs en á árinu hófst skoðun á innflutningi erlends fagfólks til Íslands til að mæta eftirspurn eftir heilbrigðisstarfsfólki.
Hjúkrunarþjónusta
Sóltún heilbrigðisþjónusta ehf.
Öldungur hf. hefur rekið Sóltún hjúkrunarheimili samkvæmt þjónustusamningi við ríkið frá 7. janúar 2002. Markmið Sóltúns er að veita íbúum bestu hjúkrun og aðra þjónustu sem völ er á hverju sinni og vera aðlaðandi starfsvettvangur. Á Sóltúni eru samtals 92 einstaklingsíbúðir á þremur hæðum. Áhersla er lögð á að mæta einstaklingsbundnum þörfum aldraðra einstaklinga sem þarfnast langtíma hjúkrunar og læknisþjónustu. Langflestir íbúar útskrifast frá Landspítala til Sóltúns.
Árið 2022 var erfitt rekstrarár fyrir Öldung hf., þar sem ríkið hefur ekki enn bætt aukinn launakostnað vegna styttingar vinnuvikunnar í vaktavinnu sem tók gildi 2021. Unnið er að innheimtu þeirra gjalda.
Með skipulagsbreytingum á yfirstjórn félagsins í lok ársins 2022 var tekið skref til að samræma þjónustu og ferla milli félaga með það að markmiði að tryggja framúrskarandi þjónustu við íbúa. Einnig var unnið að verkefnum sem sneru að hagræðingu og tæknimálum.
Í samstarfi við Reginn fasteignafélag var unnið að þarfagreiningu á stækkun á Sóltúni hjúkrunarheimili en Reginn er eigandi fasteignarinnar Sóltún 2. Mikil eftirspurn er eftir hjúkrunarrýmum á Sóltúni og Sólvangi en um 100 aldraðir bíða eftir rými á hvoru heimili fyrir sig.
Sjá nánar á www.soltun.is
ÞJÓNUSTA VIÐ ALDRAÐA
Markmið Sóltúnsfélaganna er að byggja upp frekari þjónustu á heilbrigðissviði og ýmis konar öldrunarþjónustu í þágu aldraðra og fjölskyldna þeirra á Íslandi.
SÓLTÚN ÖLDRUNARÞJÓNUSTA
Sóltún öldrunarþjónusta ehf. rekur Sólvang hjúkrunarheimili í Hafnarfirði og dagdvalir, auk endurhæfingar- og heimaþjónustu fyrir eldri borgara í sjálfstæðri búsetu, Sóltún Heima. Árið 2023 var fyrsta heila rekstrarár Sóltúns Heilsuseturs. Þar eru 39 skammtímarými fyrir einstaklinga í sjálfstæðri búsetu og 11 ný hjúkrunarrými. Þetta endurspeglast í talsvert hærri tekjum og launakostnaði en á árinu 2022. Sóltún Heilsusetur er rekið með samningi við Sjúkratryggingar Íslands. Þarna geta aldraðir skjólstæðingar heimahjúkrunar höfuðborgarsvæðisins dvalið í 4-6 vikur, fengið virka endurhæfingu sem skilar sér í auknu sjálfstæði og hreysti. Markmiðið með úrræðinu er að lengja sjálfstæða búsetu aldraðra einstaklinga og draga úr þörf á dýrari heilbrigðisþjónustu svo sem dvöl á Landspítalanum í kjölfar slysa eða veikinda. Þjónustukannanir gefa til kynna mjög mikla ánægju
með dvölina og mælingar sýna að dvalargestirnir hafa mikinn hag af endurhæfingunni.
Félagið leggur mikla áherslu á að veita framúrskarandi þjónustu við aldraða og stuðla þannig að bættri heilsu og vellíðan í daglegu lífi þeirra með áherslu á nýjungar í þjónustu-úrvali og velferðartækni. Sólvangur hjúkrunarheimili og dag- og heimaþjónusta (dagdvalir, endurhæfing og heimaþjónustan Sóltún Heima) eru reknar sem tvær rekstrareiningar innan félagsins.
Unnið var að þróun nýrra þjónustuúrræða fyrir aldraða og félagið fékk vilyrði fyrir lóð frá Hafnarfjarðarbæ undir 88 rýma hjúkrunarheimili í Hamranesi sem er nýtt hverfi í útjaðri sveitarfélagsins. Hafist var handa við forhönnun í samstarfi við Íslenskar fasteignir hf. Unnið er að framkvæmdaleyfi frá ríkinu og þjónustusamningi.
Sjá nánar á www.soltun.is
Forstjóri Sóltúns heilbrigðisþjónustu og dótturfélaga er Halla Thoroddsen.
Fasteignir
Stafir
Stafir er nýtt heiti á því félagi sem áður var Fasteignafélag Íslenskrar fjárfestingar. Nýtt nafn var tekið upp á árinu 2023 í kjölfar stefnumótunarvinnu sem farið var í á árinu. Stafir eru að fullu í eigu Íslenskrar fjárfestingar.
Stafir er fasteignafélag sem fjárfestir í atvinnuhúsnæði. Áhersla félagsins til framtíðar, m.a. með vísan til framangreindrar stefnumótunar, er einkum á fasteignir sem hýsa hótel, verslun, skrifstofur, iðnað og heilbrigðisþjónustu. Markmið félagsins er að stækka á öllum framangreindum sviðum á næstu árum í samvinnu við trausta leigutaka.
Þegar litið er á helstu fjárfestingar félagsins þá vegur einna þyngst uppbygging fasteignasafns í hótelum sem er í útleigu til Flóra hotels. Undir vörumerkinu Reykjavík Residence hafa sögufræg og glæsileg
hús við Hverfisgötu, Lindargötu og Veghúsastíg verið endurbætt þar sem saga og fyrra útlit hvers húss hefur verið varðveitt og virt. Í dag geyma þessi átta hús 63 hótelíbúðir og vínbarinn Port 9.
Hótelið ODDSSON er síðan í húsnæði félagsins við Grensásveg 16 og er þar um að ræða 77 hótelherbergi.
Framkvæmdastjóri félagsins er Björn Þór Karlsson.
VERKEFNI STAFA
Á síðasta ári voru mörg verkefni í skoðun en stærsta fjárfesting
ársins voru kaup á hóteli í byggingu. Byggingin samanstendur af Laugavegi 33 og 35 auk Vatnsstígs 4. Vatnsstígur 4 var byggður árið 1916 og er húsið friðað enda eitt fárra íbúðarhúsa
frá upphafsárum steinsteypualdar með steinsteyptu þaki. Húsið hefur því mikið umhverfislegt gildi og var gert upp í samræmi við upphaflegt útlit. Húsin sem snúa að Laugavegi verða varðveitt og gerð upp í samræmi við upphaflega gerð auk þess að vera hækkuð um eina hæð. Á jarðhæð við Laugaveg verða atvinnurými og við Vatnsstíg verður móttaka Reykjavík Residence hótels.
Alls er um að ræða 33 glæsilegar hótelíbúðir sem verða teknar í notkun sumarið 2024.
Félagið heldur utan um þær fasteignir sem eru í útleigu og rekstri
til vörumerkja Flóra hotels, bæði Reykjavík Residence hótel og
ODDSSON hótel. Hótelrekstur er kominn aftur á eðlilegan stað
eftir Covid árin og bókunarstaða á árinu 2023 var góð, þótt áhrifa vegna eldhræringa á Reykjanesskaga hafi gætt undir lok ársins.
Flóra hotels er vel í stakk búið að bæta við sig og mun félagið
styðja við rekstur félagsins eftir þörfum með áframhaldandi fjölgun íbúða í eignasafni sínu á komandi árum.
Á árinu var ráðist í talsverðar viðhaldsframkvæmdir á hóteleignum auk þess sem félagið innréttaði skrifstofuhúsnæði á Kársnesi.
Í tengslum við áðurnefnda stefnumótun voru gerðar ýmsar breytingar á samstæðu Stafa, skipt var um reikningsskilaaðferð við mat á fasteignum og færir það nú matsbreytingu fasteigna í gegnum rekstrarreikning. Þá var farið í að sameina nokkur félög til að einfalda samstæðuna.
HELSTU
Þekkingarhús á öllum sviðum fasteignaþróunar
Íslenskar fasteignir ehf. er fasteignaþróunarfélag sem sérhæfir sig í fjárfestingum í lóðum og fasteignum fyrir íbúðir eða atvinnuhúsnæði. Þá annast félagið einnig verkefnastjórnun og umsjón með þróun fasteigna í samstarfi við eigendur fasteigna eða fjárfesta. ÍF býður sérþekkingu á öllum þáttum framkvæmda og undirbúningi að þeim, þ.m.t. skipulagsvinnu, hönnun, útboði verkþátta, fjármögnun og sölu. Jafnframt tekur félagið að sér rekstur fasteigna, viðhald og eftirlit eftir þörfum fasteignaeiganda hverju sinni.
Íslenskar fasteignir býður yfirgripsmikla reynslu og þekkingu á umsjón verkþátta á mismunandi stigum fasteignaverkefna:
• Greiningu viðskiptatækifæra
• Hagkvæmnis- og arðsemisgreiningu
• Áætlanagerð við framkvæmdir
• Útboð og verksamninga
• Fjármögnun
• Verkefnastjórnun og samskipti við arkitekta/opinber yfirvöld/ byggingaraðila
• Skipulagsmál
• Byggingastjórn
• Skýrslur um framvindu og sjóðstreymi á verktíma
• Rekstur, markaðssetningu og sölu
Starfsmenn ÍF hafa áratugareynslu af flóknum og viðamiklum fasteignaverkefnum.
Sveinn Björnsson er framkvæmdastjóri félagsins og Gunnar Thoroddsen stjórnarformaður.
Grunnur lagður að nýjum verkefnum
Á árinu 2022 lauk mörgum stórum verkefnum Íslenskra fasteigna, ýmist með verklokum og afhendingu eða með sölu þeirra í kjölfar mikilla verðhækkana á fasteignum og lóðum. Félagið var því vel í stakk búið til að hefja undirbúning nýrra fasteignaþróunar verkefna á árinu 2023.
Verkefni sem nú eru í þróun hjá Íslenskum fasteignum taka mið af þeim tækifærum og ógnunum sem nú ríkja í ytra umhverfi, á fjármálamarkaði og fasteignamarkaði, en þar hefur félagið lagt áherslu á eftirfarandi gerð verkefna:
• Íbúðaverkefni á vaxtarsvæðum í nágrenni höfuðborgarinnar.
• Fasteignir fyrir ferðaþjónustuna sem bjóða sérstöðu og einstök gæði.
• Hjúkrunarheimili og önnur mannvirki tengd þjónustu við aldraða.
• Hágæða atvinnuhúsnæði á eftirsóknarverðum staðsetningum.
• Þróunarsamninga við land- og fasteignaeigendur um stærri þróunarverkefni.
RÁÐGJÖF
OG
VERKEFNASTJÓRNUN
Íslenskar fasteignir annast á hverjum tíma ýmis ráðgjafar- og byggingarstjórnunar verkefni á árinu fyrir fagfjárfesta, fasteignafélög og byggingaraðila. Á árinu tók félagið við byggingarstjórnun Hyatt Centric hótels sem verður byggt á Laugavegi 176 í Reykjavík. Margir þekkja bygginguna betur sem gamla sjónvarpshúsið. Hótelið verður 169 herbergi með veitingastað, bari, fundarsali og líkamsræktarstöð á 11.000 m2. Eigandi fasteignarinnar er fasteignafélagið Reitir og eru verklok áætluð haustið 2025.
Útivist og hreyfing
Útivist og hreyfing, sem er eitt fjárfestingasviða Íslenskrar fjárfestingar, var sett á laggirnar 2021. Íslensk fjárfesting og J.S. Gunnarsson keyptu í sameiningu verslunina Útilíf af Högum. Íslensk fjárfesting keypti á árinu 2023 hlut J.S. Gunnarssonar í Útilíf og er því 100% eigandi félagsins í lok ársins 2023.
2023 var ár vaxtar og endurmörkunar á sviðinu
Í febrúar opnaði Útilíf glæsilega útivistarverslun í Skeifunni 11 sem hönnuð var af Gláma-Kím arkitektum og Ernu Einarsdóttur en samhliða þeirri opnun kynnti Útilíf til leiks endurmörkun vörumerkisins sem unnin var í samstarfi við Brú Strategy.
Markmiðið var byggja á sterkum grunni Útilífs sem útivistar- og
íþróttaverslunar og leggja í sókn á þeim markaði. Þá var einnig ráðist í endurskipulagningu innan fyrir tækisins á árinu til að styðja við þann vöxt. Eitt af markmiðum Útilífs er að vera aflvaki hreyfingar og á árinu vann það markvisst að því að efla hreyfingu og styðja við íþróttafólk. Í maí fór Útilíf af stað með 100 km áskorun sem hvatti einstaklinga til að hreyfa sig hundrað kílómetra í maí, og í júlí kynnti Útilíf Pro-Athlete verkefni Útilífs sem ætlað er að styðja við framúrskarandi íþróttafólk.
Í ágúst gekk Útilíf frá kaupum á útivistarversluninni Ölpunum sem var staðsett í Faxafeni 12. Með kaupunum kom sterkt vöruúrval Alpanna inn í Útilíf, þá sérstaklega á sviði skíða og útivistar.
Í fyrra húsnæði Alpanna opnaði Útilíf íþrótta- og útivistarmarkað þar sem viðskiptavinum gefst kostur á að versla eldri vörur á lægra verði allan ársins hring. Í október 2023 var svo ný heimasíða Útilífs kynnt til leiks og mun hún reynast lykiltól í vexti og bættri upplifun viðskiptavina Útilífs.
Í lok árs 2023 starfrækir Útilíf því fimm verslanir: tvær íþróttavöruverslanir í Smáralind og Kringlunni, útivistar verslun í Skeifunni 11 og íþrótta- og útivistarmarkað í Faxafeni 12 ásamt vefverslun.
Þá hefur sérverslun The North Face á Íslandi á Hafnartorgi vaxið á árinu og þjónustar fjölbreyttan hóp viðskiptavina, innlendra sem erlendra.
Er þessu sviði ætlað að styðja við þessa starfsemi auk þess að sækja enn áfram í viðskiptatækifæri á þessu sviði.
Elín Tinna Logadóttir er framkvæmdastjóri Útilífs.
Aðrar fjárfestingar
Íslensk fjárfesting er minnihlutafjárfestir í ýmsum fyrirtækjum, en helst má nefna þessi:
LEITAR CAPITAL PARTNERS
Leitar Capital Partners er skráður rekstraraðili sérhæfðra sjóða en að fyrsta sjóðnum koma rekstraraðilar og einkafjárfestar ásamt Arion banka og VÍS. Leiðandi fjárfestar í verkefninu eru Íslensk fjárfesting og Birgir Örn Birgisson, sem er jafnframt stjórnarformaður nýja fjárfestingarsjóðsins.
Íslensk fjárfesting mun fjárfesta fyrir 275 milljónir króna í fyrsta sjóði Leitar Capital Partners sem heitir Leitar I slhf. og er þar með stærsti fjárfestirinn í sjóðnum.
Leitar fjárfestir í ungum einstaklingum og styður þá við að finna,
fjárfesta í og leiða vöxt á litlu til meðalstóru fyrirtæki. Markmið
Leitar er að búa til nýjan eftirsóknarverðan valkost fyrir ungt og
öflugt fólk sem hefur áhuga að verða frumkvöðlar, leiðtogar og að byggja upp góð og arðsöm fyrirtæki.
Teymið á bak við Leitar býr yfir reynslu og þekkingu á rekstri og fjárfestingum í stórum sem smáum fyrirtækjum og úr ólíkum áttum. Að fjárfestingum félagsins kemur breiður hópur öflugra fjárfesta og rekstraraðila sem hafa áhuga á að gefa til baka, skapa og miðla þekkingu til næstu kynslóða og leiðbeina þeim við rekstur á eigin fyrirtæki.
Framkvæmdastjóri Leitar er Einar Þór Steindórsson.
VONZEO CAPITAL
Íslensk fjárfesting er fjárfestir í tveimur leitarsjóðum á vegum
Vonzeo Capital. Sjóðurinn byggir á sömu hugmyndafræði og
Leitar Capital Partners en áhersla Vonzeo er fremur á alþjóðlegar fjárfestingar.
Sjá nánar www.vonzeocapital.com
Jan Simon, fjárfestir og stofnandi Vonzeo Capital flutti erindi um hvernig maður kaupir fyrirtæki á ráðstefnu á vegum Leitar Capital Partners.
LAUFIÐ
Laufið er stafrænn vettvangur þar sem stjórnendur íslenskra fyrirtækja geta sameinast og hagnýtt sér fjölbreytt verkfæri í átt að sjálfbærari fyrirtækjarekstri og samfélagslegri ábyrgð og í baráttunni við loftslagsvána.
Sjá nánar: www.laufid.is
FLOREALIS
Florealis býður upp á úrval skráðra jurtalyfja og lækningavara sem byggja á virkum náttúruefnum. Fyrirtækið styður við meðhöndlun sjúkdóma á borð við kvíða, svefntruflanir og vægar þvagfærasýkingar. Allt eru þetta algengir sjúkdómar sem skorta fjölbreyttari meðferðarúrræði. Vörur Florealis eru fáanlegar í öllum apótekum á Íslandi og fjölmörgum apótekum í Svíþjóð. Allar vörur frá Florealis eru skráðar og viðurkenndar hjá lyfjayfirvöldum á öllum Norðurlöndunum.
Sjá nánar www.florealis.is
ELDEY EIGNARHALDSFÉLAG
Félagið heldur utan um eignarhlut fjárfesta í Kynnisferðum og Norðursiglingu en hafði áður einbeitt sér að fjárfestingum í afþreyingartengdri ferðaþjónustu, en þær fjárfestingar voru sameinaðar Kynnisferðum.
Af öðrum fjárfestingum má nefna Tego Cyber og Mink Campers.
Ársreikningur 2023
- EIGNIR
Ársreikningur móðurfélags
Skýrsla og áritun stjórnar og framkvæmdastjóra
Félagið var stofnað árið 1999 og er tilgangur þess kaup og sala hlutabréfa, rekstur fyrirtækja og fasteigna, sem og lánastarfsemi.
REKSTUR
ÁRSINS 2023
Árið 2023 var annasamt í rekstri Íslenskrar fjárfestingar og einkenndist af vinnu við að styrkja framkvæmdastjórnir og stjórnir
í nokkrum af viðskiptaeiningum félagsins ásamt því að vinna að þróun fjölda nýrra verkefna. Sérstaklega hefur verið lögð mikil
áhersla á uppbyggingu nýrra fasteignaþróunarverkefna sem mörg eru nú þegar komin vel af stað.
Á árinu er enn að finna bókhaldsleg áhrif af tapi sem varð til á
COVID-árunum og hefði hagnaður annars orðið töluvert meiri.
Hagnaður félagsins á árinu 2023 nam 499 millj. kr. (2022: 1.709 milljónir kr.). Heildareignir félagsins í árslok námu 5.490 millj. kr. og eigið fé félagsins í árslok nam 4.790 millj. kr. (2022: 4.506 millj. kr.). Félög innan samstæðunnar eru því búin að ná fyrri styrk og
eiginfjárhlutfall móðurfélagsins var í lok árs 2023 87,2% og reikna
stjórnendur með að það muni styrkjast enn frekar á næstu árum.
Stjórnendur félagsins búast við áframhaldandi góðum rekstri
í félögum innan samstæðunnar á árinu 2024. Stjórn félagsins
leggur til að greiddur verði 246 milljóna króna arður til hluthafa
á árinu 2024 en vísar að öðru leyti til ársreiknings um ráðstöfun hagnaðar og aðrar breytingar á eiginfjárreikningum.
Ferðaþjónusta
Kilroy sem er stærsta félag samstæðunnar styrkti áfram stöðu sína á árinu og jók söluna töluvert frá fyrra ári. Það má segja að árið 2023 hafi áfram verið sterkt ár í ferðaþjónustu þar sem eftiráhrif COVID-tímabilsins eru að minnka, en eftir COVID var mikil uppsöfnuð ferðaþörf hjá almenningi. Bæði Kilroy og hótelin eru í góðum rekstri og er búist við því að það haldi áfram á árinu 2024. Þegar þessi skýrsla er skrifuð er ljóst að salan mun halda áfram að vera öflug hjá Kilroy og dótturfélögum. Sama er að frétta af hótelunum þar sem mikil söluaukning er að eiga sér stað samanborið við árin fyrir COVID. Kilroy skilaði mjög öflugu rekstrarári árið 2023 þrátt fyrir að það hafi ekki verið alveg jafn mikill hagnaður og árið áður. Salan jókst þó töluvert.
Heilbrigðisþjónusta
Á árinu 2023 gætti áfram áhrifa frá COVID í starfseminni í byrjun árs en rekstrarlega er niðurstaða ársins ágæt, þó enn eigi félögin í samstæðunni inni töluverða fjármuni fyrir þjónustu sem veitt var á árinu sökum þess að enn á eftir að leiðrétta greiðslur til félaganna vegna kjarasamninga. Mikil uppbygging var í gangi og unnið að stækkunarverkefnum bæði við Sóltún og Sólvang.
Búist er við því að félögin haldi áfram að vaxa ásamt því að fleiri svipuð félög komi inn í samstæðuna á næstu árum.
Fasteignir
Íslenskar fasteignir hefur skapað sér orðspor fyrir að vera eitt öflugasta fyrirtækið á sviði fasteignaþróunar og eru með fjölda verkefna í stýringu á hverjum tímapunkti ýmist fyrir fjárfesta eða
eigendur félgasins. Mikið af stórum verkefnum kláruðust á árinu
2022 og voru seld og styrkti það efnahag félagsins mikið. Á árinu
2023 hefur verið unnið að því að fylla pípurnar aftur af góðum verkefnum. Nú þegar er búið að stilla upp fjölda spennandi
verkefna hjá félaginu til framtíðar. Framundan eru byggingar á hjúkrunarheimilum, skrifstofuhúsnæði, hótelum, íbúðarbyggingu og skipulagsvinnu á stórum skipulagssvæðum. Það er því búist
við því að árið 2024 verði mjög annasamt og mörg ný verkefni muni fara af stað á árinu. Fasteignafélag Íslenskrar fjárfestingar, Stafir, vann áfram að þróunarverkefnum og rekstri fasteignasafns í útleigu.
Útivist og afþreying
Útilíf fór í gegnum miklar breytingar á árinu 2022-2023. Opnuð var ný verslun The North Face í Austurhöfn um mitt ár 2022. Einnig var undirbúin opnun á þriðju Útilífsversluninni í Skeifunni en hún opnaði í febrúar 2023. Þar er um útivistarverslun að ræða.
Jafnframt var á árinu gengið frá kaupum á versluninni Alparnir í Skeifunni en þar er nú rekinn útsölumarkaður undir merkjum
Útilífs. Verslanir Útilífs eru því fjórar ásamt verslun The North
Face. Miklar breytingar voru líka gerðar á öllum innri ferlum og kerfum sem mun vonandi skila sér á árinu 2024 og 2025. Auk þess var unnið við endurskipulagningu á markaðsmálum félagsins og endurmótun á vörumerkjum. Enn er búist við því að það taki töluverða orku að breyta félaginu á árinu 2024 sem mun skila sér í mun betri rekstri á því ári og er búist við því að þar sé búið að undirbúa jarðveginn fyrir öflugan vöxt í sölu og EBITDA.
Meðalfjöldi starfsmanna félagsins á árinu umreiknaður í heilsársstörf (ársverk) var þrír (2022: þrír). Hluthafar í árslok voru tveir líkt og í ársbyrjun. Í árslok 2023 var hlutafé í eigu eftirtalinna aðila:
Eignarhluti:
Arnar Þórisson, 50% og Þórir Kjartansson, 50%
Stjórn og framkvæmdastjóri Íslenskrar fjárfestingar ehf. hafa í dag rætt ársreikning félagsins fyrir árið 2023 og staðfest hann með undirritun sinni. Stjórn og framkvæmdastjóri leggja til við aðalfund að samþykkja ársreikninginn.
Reykjavík 2024.
Stjórn: Framkvæmdastjóri:
ÁRITUN ÓHÁÐS ENDURSKOÐANDA
Til stjórnar og hluthafa Íslenskrar fjárfestingar ehf.
Áritun um endurskoðun ársreikningsins
Álit
Við höfum endurskoðað ársreikning Íslenskrar fjárfestingar ehf. („félagið“) fyrir árið 2023. Ársreikningurinn hefur að geyma rekstrarreikning, efnahagsreikning, sjóðstreymisyfirlit, upplýsingar um mikilvægar reikningsskilaaðferðir og aðrar skýringar.
Það er álit okkar að ársreikningurinn gefi glögga mynd af fjárhagsstöðu félagsins 31. desember 2023 og afkomu þess og breytingu á handbæru fé á árinu 2023, í samræmi við lög um ársreikninga.
Grundvöllur álits
Við endurskoðuðum í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla.
Ábyrgð okkar samkvæmt stöðlunum er lýst frekar í kaflanum Ábyrgð endurskoðanda á endurskoðun ársreikningsins í árituninni. Við erum óháð félaginu í samræmi við gildandi siðareglur fyrir endurskoðendur.
Við teljum að við höfum aflað nægilegra og viðeigandi endurskoðunargagna til að byggja álit okkar á.
Ábyrgð stjórnar og framkvæmdastjóra á ársreikningnum
Stjórn og framkvæmdastjóri eru ábyrg fyrir gerð og glöggri framsetningu ársreikningsins í samræmi við lög um ársreikninga og fyrir því innra eftirliti sem þau telja nauðsynlegt til að gera þeim kleift að setja fram ársreikning sem er án verulegra annmarka, hvort sem er vegna sviksemi eða mistaka.
Við gerð ársreikningsins ber stjórn og framkvæmdastjóra að leggja mat á rekstrarhæfi félagsins og upplýsa, eftir því sem við á, um þætti er varða rekstrarhæfi og miða grundvöll reikningsskilanna við áfram-
haldandi rekstrarhæfi, nema þau ætli annað hvort að leysa félagið upp eða hætta starfsemi þess, eða hafa engan annan raunhæfan kost en að gera það.
Stjórn og framkvæmdastjóri skulu hafa eftirlit með gerð og framsetningu ársreikningsins.
Ábyrgð endurskoðanda á endurskoðun ársreikningsins
Markmið okkar eru að öðlast hæfilega vissu um hvort ársreikningurinn í heild sé án verulegra annmarka, hvort sem er vegna sviksemi eða mistaka, og að gefa út áritun endurskoðanda sem inniheldur álit okkar. Í hæfilegri vissu felst áreiðanleiki en ekki trygging fyrir því að endurskoðun í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla muni alltaf leiða í ljós verulega annmarka ef þeir eru fyrir hendi. Annmarkar geta komið fram vegna sviksemi eða mistaka og eru taldir verulegir ef þeir einir og sér eða samanlagt gætu haft áhrif á efnahagslegar ákvarðanir sem notendur ársreikningsins taka á grundvelli hans.
Við endurskoðun í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla beitum við ávallt faglegri dómgreind og viðhöfum faglega gagnrýni. Að auki:
• Greinum við og metum hættu á verulegri skekkju í ársreikningnum, hvort sem er vegna sviksemi eða mistaka, skipuleggjum og framkvæmum endurskoðunaraðgerðir til að bregðast við þeirri hættu og öflum endurskoðunargagna sem eru nægjanleg og viðeigandi til að byggja álit okkar á. Hættan á að uppgötva ekki verulega skekkju vegna sviksemi er meiri en að uppgötva ekki skekkju vegna mistaka, þar sem sviksemi getur falið í sér samsæri, fölsun, að einhverju sé viljandi sleppt, villandi framsetningu eða að farið sé framhjá innra eftirliti.
• Öflum við skilnings á innra eftirliti, sem varðar endurskoðunina, til að skipuleggja viðeigandi endurskoðunaraðgerðir, en ekki til að veita álit á virkni innra eftirlits félagsins.
• Metum við hvort reikningsskilaaðferðir og reikningshaldslegt mat stjórnenda og tengdar skýringar séu viðeigandi.
• Ályktum við um hvort notkun stjórnar og framkvæmdastjóra á forsendu reikningsskilanna um rekstrarhæfi sé viðeigandi og metum, á grundvelli endurskoðunarinnar, hvort aðstæður séu til staðar sem valdið gætu verulegum vafa um rekstrarhæfi félagsins. Ef við teljum að verulegur vafi leiki á rekstrarhæfi ber okkur, í áritun okkar, að vekja sérstaka athygli á viðeigandi skýringum ársreikningsins eða, ef slíkar skýringar eru ófullnægjandi, að víkja frá fyrirvaralausri áritun. Niðurstaða okkar byggir á endurskoðunargögnum sem aflað er fram að dagsetningu áritunar okkar. Samt sem áður geta atburðir eða aðstæður í framtíðinni gert félagið órekstrarhæft.
• Metum við framsetningu, uppbyggingu og innihald ársreikningsins í heild, að meðtöldum skýringum, og hvort ársreikningurinn gefi glögga mynd af undirliggjandi viðskiptum og atburðum.
Við upplýsum stjórn meðal annars um áætlað umfang og tímasetningar endurskoðunarinnar og veruleg atriði sem upp kunna að koma í endurskoðun okkar, þar á meðal verulega annmarka á innra eftirliti.
Staðfesting vegna annarra ákvæða laga Í samræmi við ákvæði 2. mgr. 104 gr. laga nr. 3/2006 um ársreikninga staðfestum við samkvæmt okkar bestu vitund að í skýrslu stjórnar sem fylgir þessum ársreikningi eru veittar þær upplýsingar sem þar ber að veita í samræmi við lög um ársreikninga og koma ekki fram í skýringum.
Reykjavík, 2024
KPMG ehf.
Árni Claessen
3 Áritun óháðs endurskoðanda
REKSTRARREIKNINGUR ÁRIÐ 2023
EFNAHAGSREIKNINGUR 31. DESEMBER 2023
SJÓÐSTREYMISYFIRLIT ÁRIÐ 2023
SKÝRINGAR
SKÝRINGAR
SKÝRINGAR
SKÝRINGAR
SKÝRINGAR
SKÝRINGAR
SKÝRINGAR
Hagnýtar upplýsingar
Hlutafélagaskrá frá og með aðalfundum 2024
Íslensk fjárfesting ehf. ip.is
Kt.: 660399-3059
Firmað rita: Allir stjórnarmenn saman
Stjórn, formaður fyrst: Arnar Þórisson, Þórir Kjartansson
Framkvæmdastjórn: Þórir Kjartansson
Prókúruhafi: Þórir Kjartansson, Arnar Þórisson, Linda Metúsalemsdóttir
Rekstrarfélag Íslenskrar fjárfestingar ehf.
Kt.: 520515-1430
Firmað rita: Tveir stjórnarmenn saman
Stjórn, formaður fyrst: Arnar Þórisson, Þórir Kjartansson
Framkvæmdastjórn: Linda Metúsalemsdóttir
Prókúruhafi: Linda Metúsalemsdóttir
HEILBRIGÐISÞJÓNUSTA
Sóltún heilbrigðisþjónusta ehf. soltun.is
Kt.: 710309-0940
Firmað rita: Tveir stjórnarmenn saman
Stjórn, formaður fyrst: Anna Birna Jensdóttir, Arnar Þórisson, Þórir Kjartansson
Forstjóri: Halla Thoroddsen
Prókúruhafi: Halla Thoroddsen, Linda Metúsalemsdóttir
Öldungur hf.
Kt.: 600300-5390
Firmað rita: Formaður + frkv.stj eða tveir stjórnarmenn
Stjórn, formaður fyrst: Anna Birna Jensdóttir, Þórir Kjartansson, Arnar Þórisson, Linda Metúsalemsdóttir (varamaður)
Forstjóri: Halla Thoroddsen
Prókúruhafi: Halla Thoroddsen
Sóltún öldrunarþjónusta ehf.
Kt.: 650310-0710
Firmað rita: Tveir stjórnarmenn saman
Stjórn, formaður fyrst: Anna Birna Jensdóttir, Þórir Kjartansson, Arnar Þórisson
Forstjóri: Halla Thoroddsen
Prókúruhafi: Halla Thoroddsen
Sólstöður ehf. solstodur.is
Kt.: 681010-0330
Firmað rita: Meirihluti stjórnar
Stjórn, formaður fyrst: Halla Thoroddsen, Anna Birna Jensdóttir
Framkvæmdastjórn: Halla Thoroddsen
Prókúruhafi: Halla Thoroddsen
FASTEIGNIR
Stafir ehf
Kt.: 640619-1040
Firmað rita: Meirihluti stjórnar
Stjórn, formaður fyrst: Þórir Kjartansson, Arnar Þórisson, Einar Þór Steindórsson, Linda
Metúsalemsdóttir, Magnús Edvardsson
Framkvæmdastjórn: Björn Þór Karlsson
Prókúruhafi: Björn Þór Karlsson
Stafir - hótel
Kt.: 521115-1060
Firmað rita: Meirihluti stjórnar
Stjórn, formaður fyrst: Þórir Kjartansson, Björn
Þór Karlsson
Framkvæmdastjórn: Björn Þór Karlsson
Prókúruhafi: Björn Þór Karlsson
Stafir – iðnaður og skrifstofur ehf
Kt.: 560205-0660
Firmað rita: Meirihluti stjórnar
Stjórn, formaður fyrst: Þórir Kjartansson, Björn Þór Karlsson
Framkvæmdastjórn: Björn Þór Karlsson
Prókúruhafi: Björn Þór Karlsson
Stafir – verslun ehf
Kt.: 500816-0310
Firmað rita: Meirihluti stjórnar
Stjórn, formaður fyrst: Þórir Kjartansson, Björn Þór Karlsson
Framkvæmdastjórn: Björn Þór Karlsson
Prókúruhafi: Björn Þór Karlsson
RR fasteignir ehf.
Kt.: 610317-2430
Firmað rita: Meirihluti stjórnar
Stjórn, formaður fyrst: Þórir Kjartansson, Björn Þór Karlsson
Framkvæmdastjórn: Björn Þór Karlsson
Prókúruhafi: Björn Þór Karlsson
Kársnesbyggð ehf.
Kt.: 550217-0740
Firmað rita: Meirihluti stjórnar
Stjórn, formaður fyrst: Þórir Kjartansson, Björn Þór Karlsson
Framkvæmdastjórn: Björn Þór Karlsson
Prókúruhafi: Björn Þór Karlsson
Kársnesbyggð II ehf. karsnes.is
Kt.: 580507-2200
Firmað rita: Stjórnarmaður
Stjórn, formaður fyrst: Þórir Kjartansson, Björn Þór Karlsson
Framkvæmdastjórn: Björn Þór Karlsson
Prókúruhafi: Björn Þór Karlsson
Úlfaldi ehf.
Kt.: 700409-0580
Firmað rita: Tveir stjórnarmenn
Stjórn, formaður fyrst: Þórir Kjartansson, Björn Þór Karlsson
Framkvæmdastjórn: Björn Þór Karlsson
Prókúruhafi: Björn Þór Karlsson
Sóltún 4 ehf.
Kt.: 420805-1360
Firmað rita: Meirihluti stjórnar
Stjórn, formaður fyrst: Arnar Þórisson, Þórir Kjartansson, Anna Birna Jensdóttir, Linda Metúsalemsdóttir (varamaður)
Framkvæmdastjórn: Þórir Kjartansson
Prókúruhafi: Þórir Kjartansson, Linda Metúsalemsdóttir
ÍSFAST ehf. isfast.is
Kt.: 480222-2610
Firmað rita: Meirihluti stjórnar
Stjórn, formaður fyrst: Gunnar Thoroddsen, Sveinn Björnsson, Þórir Kjartansson, Arnar Þórisson.
Framkvæmdastjórn: Sveinn Björnsson
Prókúruhafi: Sveinn Björnsson
ÍFX ehf.
Kt.: 511202-3450
Firmað rita: Meirihluti stjórnar
Stjórn, formaður fyrst: Gunnar Thoroddsen, Sveinn Björnsson, Þórir Kjartansson, Arnar Þórisson, Linda Metúsalemsdóttir
Framkvæmdastjórn: Sveinn Björnsson
Prókúruhafi: Sveinn Björnsson
EFÁ I
Kt.: 551216-0980
Firmað rita: Stjórnarmaður
Stjórn, formaður fyrst: Gunnar Thoroddsen, Sveinn Björnsson (varamaður)
Framkvæmdastjórn: Gunnar Thoroddsen
Prókúruhafi: Gunnar Thoroddsen
EFÁ II
Kt.: 551216-1010
Firmað rita: Stjórnarmaður
Stjórn, formaður fyrst: Gunnar Thoroddsen, Sveinn Björnsson (varamaður)
Framkvæmdastjórn: Gunnar Thoroddsen
Prókúruhafi: Gunnar Thoroddsen
Orkureitur ehf.
kt.: 490222-1460
Firmað rita: Stjórnarmaður
Stjórn, formaður fyrst: Gunnar Thoroddsen, Sveinn Björnsson (varamaður)
Prókúruhafi: Gunnar Thoroddsen
FERÐAÞJÓNUSTA
Flóra hotels ehf. florahotels.is
Kt.: 651116-2790
Firmað rita: Tveir stjórnarmenn saman
Stjórn, formaður fyrst: Þórir Kjartansson, Arnar Þórisson, Linda Metúsalemsdóttir
Framkvæmdastjórn: Inga Harðardóttir
Prókúruhafi: Inga Harðardóttir, Linda Metúaselmsdóttir
Reykjavík Residence Hótel ehf. rrhotel.is Kt.: 530906-0940
Firmað rita: Tveir stjórnarmenn saman
Stjórn, formaður fyrst: Þórir Kjartansson, Arnar Þórisson, Linda Metúsalemsdóttir
Framkvæmdastjórn: Inga Harðardóttir
Prókúruhafi: Inga Harðardóttir, Linda Metúaselmsdóttir
ODDSSON downtown hótel ehf. oddsson.is
Kt.: 590115-0530
Firmað rita: Meirihluti stjórnar
Stjórn, formaður fyrst: Þórir Kjartansson
Framkvæmdastjórn: Inga Harðardóttir
Prókúruhafi: Inga Harðardóttir
Tower Suites Reykjavík ehf. towersuites.is
Kt.: 571017-1640
Firmað rita: Meirihluti stjórnar
Stjórn, formaður fyrst: Þórir Kjartansson, Björn Þór Karlsson (varamaður)
Framkvæmdastjórn: Inga Harðardóttir
Prókúruhafi: Inga Harðardóttir, Linda Metúsalemsdóttir
ODDSSON Midtown hótel ehf. oddsson.is
Kt.: 500620-0210
Firmað rita: Meirihluti stjórnar
Stjórn, formaður fyrst: Þórir Kjartansson, Björn Þór Karlsson (varamaður)
Framkvæmdastjórn: Inga Harðardóttir
Prókúruhafi: Inga Harðardóttir, Linda Metúsalemsdóttir
Port 9 ehf. port9.is
Kt.: 510216-1130
Firmað rita: Meirihluti stjórnar
Stjórn, formaður fyrst: Þórir Kjartansson, Sverrir Eyjólfsson, Inga Harðardóttir
Framkvæmdastjórn: Inga Harðardóttir
Prókúruhafi: Inga Harðardóttir, Linda Metúsalemsdóttir
In-Port 9 ehf.
kt.: 580121-2760
Firmað rita: Meirihluti stjórnar
Stjórn, formaður fyrst: Þórir Kjartansson, Sverrir Eyjólfsson
Framkvæmdastjórn: Inga Harðardóttir
Prókúruhafi: Inga Harðardóttir, Linda Metúsalemsdóttir
Eignarhaldsfélagið Kilroy ehf.
Kt.: 600207-2100
Firmað rita: Stjórnarmaður
Stjórn, formaður fyrst: Arnar Þórisson, Þórir Kjartansson
Framkvæmdastjórn: Þórir Kjartansson
Prókúruhafi: Þórir Kjartansson, Linda Metúsalemsdóttir
ÚTIVIST OG HREYFING
Útilíf ehf. utilif.is kt.: 690321-0920
Firmað rita: Meirihluti stjórnar
Stjórn, formaður fyrst: Einar Þór Steindórsson, Arnar Þórisson, Þórir Kjartansson
Framkvæmdastjóri: Elín Tinna Logadóttir.
Prókúruhafi: Elín Tinna Logadóttir, Einar Þór Steindórsson
TNF Ísland ehf. tnfreykjavik.is. kt.: 690321-0920
Firmað rita: Stjórnarmaður
Stjórn, formaður fyrst: Einar Þór Steindórsson, Arnar Þórisson, Þórir Kjartansson
Framkvæmdastjóri: Elín Tinna Logadóttir.
Prókúruhafi: Elín Tinna Logadóttir, Einar Þór Steindórsson
Komasvo ehf. kt.: 520319-0770
Firmað rita: Stjórnarmaður
Stjórn, formaður fyrst: Elín Tinna Logadóttir, Einar Þór Steindórsson (varamaður)
Framkvæmdastjóri: Elín Tinna Logadóttir
Prókúruhafi: Elín Tinna Logadóttir
HLIÐARSVIÐ
Leitar Capital Partners ehf. kt.: 620422-0530
Firmað rita: Meirihluti stjórnar
Stjórn, formaður fyrst: Birgir Örn Birgisson, Bjarni Þórður Bjarnason, Einar Þór
Steindórsson, Þórir Kjartansson
Framkvæmdastjórn: Einar Þór Steindórsson
Prókúruhafi: Einar Þór Steindórsson
Leitar I slhf.
kt.: 580522-0170
Firmað rita: Ábyrgðaraðili félagsins, Leitar GP ehf.
Leitar GP ehf. kt.: 650422-3170
Firmað rita: Meirihluti stjórnar
Stjórn, formaður fyrst: Einar Þór Steindórsson, Björn Þór Karlsson (varamaður)
Framkvæmdastjórn: Einar Þór Steindórsson
Prókúruhafi: Einar Þór Steindórsson
Vonzeo fjárfestingar II ehf.
kt.: 421020-0430
Firmað rita: Meirihluti stjórnar
Stjórn, formaður fyrst: Þórir Kjartansson
Framkvæmdastjórn: Linda Metúsalemsdóttir
Prókúruhafi: Linda Metúsalemsdóttir
Vonzeo fjárfestingar III ehf.
kt.: 700124-2580
Firmað rita: Meirihluti stjórnar
Stjórn, formaður fyrst: Þórir Kjartansson
Framkvæmdastjórn: Björn Þór Karlsson
Prókúruhafi: Björn Þór Karlsson
Eldey eignarhaldsfélag hf.
kt:. 631120-0670
Firmað rita: Meirihluti stjórnar
Stjórn, formaður fyrst: Hildur Árnadóttir, Arnar Þórisson, Soffía Gunnarsdóttir
Framkvæmdastjórn: Björn Þór Karlsson
Prókúruhafi: Björn Þór Karlsson
Ýmsir tenglar
www.islenskfjarfesting.is
www.ip.is
www.isfast.is
www.benns.com
www.jr.dk
www.kilroy.net
www.port9.is
www.rrhotel.is
www.rrsuites.is
www.soltun.is
www.soltunheima.is
www.solvangur.is
www.stafirfasteignir.is
www.towersuites.is
www.oddsson.is
www.utilif.is
www.tnfreykjavik.is
www.wt.se
www.leitar.is
ÍSLENSK FJÁRFESTING EHF. Laugavegi 182 - 105 Reykjavík