2 minute read

UMHVERFISSTEFNA

Next Article
GÁTLISTAR

GÁTLISTAR

Snyrtimennska

Áhersla er lögð á að starfsfólk FÍ sé snyrtilegt til fara við störf sín. Snyrtilegt útlit og klæðnaður starfsfólks FÍ hefur áhrif á ímynd félagsins út á við auk þess sem snyrtilegur klæðaburður starfsfólks ber vott um virðingu fyrir viðskiptavinum félagsins, samstarfsfólki og eigin störfum.

Advertisement

Trúnaður og siðareglur

Starfsmenn FÍ eru bundnir trúnaði um allt það sem þeir komast að við framkvæmd starfa sinna.Trúnaður nær yfir öll samskipti við þriðja aðila innan og utan félags og þar með talið einnig yfir samskipti á samfélagsmiðlum. Varðandi brot á trúnaði er kveðið á um í ráðningarsamningi. Trúnaður þessi er óbreyttur eftir starfslok. Starfsmenn FÍ fara eftir siðareglum FÍ í störfum sínum fyrir félagið.

Starfslok

Þegar starfslok nálgast vegna aldurs leitast FÍ við að finna farsælar lausnir báðum aðilum til hagsbóta.Við starfslok er öllum starfsmönnum þakkað fyrir framlag sitt til uppbyggingar félagsins.

Endurskoðun starfsmannastefnu

Starfsmannastefnan var unnin af hópi starfsmanna og samþykkt af stjórn FÍ í nóvember 2016. Starfsmannastefna FÍ er endurskoðuð á tveggja ára fresti.

MÓTTAKA NÝRRA STARFSMANNA

Eftirfarandi er verklagsregla sem segir til um það hvernig taka skal á móti nýjum starfsmanni hjá Ferðafélagi Íslands.

Móttaka nýrra starfsmanna á skrifstofu

• Starfsmaður er boðinn velkominn til starfa. • Farið yfir aðstöðu starfsmanna, fatahengi, salerni, kaffistofu og almennt rými á skrifstofu. • Kynnntur fyrir samstarfsfólki. • Starfsmaður fær sína vinnustöð til afnota. • Bent á heimasíðu félagsins til að kynna sér upplýsingar um félagið sjálft, stjórnarmenn, skála, ferðir o.f.l. • Farið yfir það helsta sem er á dagskrá eftir árstímanum. • Starfsmaður fær kynningu á gæðakerfi félagsins. • Starfsmaður fær kynningu á viðbragðsáætlun félagsins. • Ákveðinn starfsmaður fær það verkefni að kenna á símakerfi og helstu tölvukerfi - verkferla og er með viðkomandi í því fyrstu dagana eftir þörfum. • Farinn stuttur rúntur um húsið. • Nýr starfsmaður kynntur fyrir forseta, stjórnarmönnum og öðrum sem eiga leið á skrifstofuna, eftir því sem aðstæður leyfa.

Umhverfisstefna Ferðafélags Íslands

• Ferðafélag Íslands skal vera í fararbroddi á sviði umhverfismála og stuðlar að sjálfbærri þróun í starfi sínu.

• Ferðafélag Íslands leggur áherslu á að þekkja umhverfisáhrif starfsemi sinnar og leitast við að lágmarka þau áhrif. Til þess að ná stöðugt betri árangri á þessu sviði eru þýðingarmiklir umhverfisþættir vaktaðir og markvisst unnið að umbótum.

• Ferðafélag Íslands vill stuðla að góðri umgengni ferðamanna og vernd náttúru landsins, m.a. með samstarfi við umhverfis- og náttúruverndaraðila.

• Ferðafélag Íslands tekur tillit til umhverfismála í allri starfsemi félagsins og stuðlar þannig að betra umhverfi í náttúru

Íslands.

• Ferðafélag Íslands sýnir náttúru Íslands virðingu og leitast við að valda sem minnstu raski í umhverfinu í ferðum félagsins og á skálasvæðum og í öllu starfi félagsins.

• Ferðafélag Íslands leggur áherslu að uppbygging skála á hálendi Íslands vegna öryggis og þjónustu við ferðamenn skuli vera einföld og umhverfisvæn.

• Ferðafélag Íslands leggur áherslu á að uppbygging samgangna á hálendi Íslands vegna öryggis og þjónustu við ferðamenn skuli vera einföld og umhverfisvæn.

• Ferðafélag Íslands leggur áherslu á að starfsfólk, sem og aðrir sem vinna fyrir félagið, hafi hæfni og þekkingu til að framfylgja umhverfisstefnu félagsins.

• Ferðafélag Íslands kynnir stefnu sína í umhverfismálum opinberlega og gerir grein fyrir árangri félagsins í umhverfismálum og stuðlar þannig að opinni og málefnalegri umræðu.

This article is from: