3 minute read

ALMENNT UM FERÐAFÉLAG ÍSLANDS

Next Article
GÁTLISTAR

GÁTLISTAR

Um FÍ

Ferðafélag Íslands er áhugamannafélag með rúmlega tíu þúsund félaga og hefur frá stofnun, árið 1927, unnið að margvíslegri þjónustu fyrir ferðamenn.

Advertisement

Tilgangur félagsins er að stuðla að ferðalögum á Íslandi og greiða fyrir þeim. Þetta gerir félagið meðal annars með skipulagningu fjölbreyttra ferða ásamt uppbyggingu og rekstri fjallaskála víða um land. Jafnframt með viðamiklu útgáfustarfi, merkingu gönguleiða og upplýsingagjöf.

Auk fjölbreyttra ferða er margs konar félagslíf innan vébanda FÍ, svo sem myndakvöld, námskeið og þemaferðir af ýmsu tagi. Margvíslegir fjallgöngu- og heilsuhópar starfa einnig undir merkjum félagsins.

Deildir og félög

Innan vébanda Ferðafélags Íslands starfa 12 deildir um land allt. Deildir FÍ starfa samkvæmt lögum Ferðafélagsins og standa fyrir ferðum, reka gistiskála og sinna fræðslu og útgáfustarfi í heimabyggð.

Ferðafélag Íslands stofnaði Ferðafélag barnanna árið 2009 með það að höfuðmarkmiði að hvetja börn og foreldra til útiveru og samveru í náttúru Íslands. Allar ferðir Ferðafélags barnanna eru farnar á forsendum barna og sniðnar að þörfum þeirra.

Ferðafélag unga fólksins, FÍ Ung, var stofnað sumarið 2015 með það markmið að hvetja ungt fólk á aldrinum 18-25 ára til að ferðast um Ísland, kynnast landinu og njóta útiveru í góðum félagsskap.

Útgáfa

Á hverju ári gefur Ferðafélag Íslands út heimilda- og fræðslurit, kort og bækur, að ógleymdri árbók félagsins. Fyrsta árbókin kom út árið 1928 og hefur síðan komið út árlega í óslitinni röð og er einstæður bókaflokkur um land og náttúru. Þá hefur Ferðafélagið um árabil gefið út sérrit með leiðarlýsingum á göngusvæðum eða öðrum fróðleik er tengist náttúru, sögu og lífríki afmarkaðs svæðis.

STOFNUN FERÐAFÉLAGS ÍSLANDS Ferðafélag Íslands var stofnað 27 . nóvember 1927

Aðalhvatamaður að stofnun þess var Sveinn Björnsson, er þá var sendiherra í Kaupmannahöfn en síðar forseti Íslands. Að hvatningu Sveins tók Björn Ólafsson stórkaupmaður að sér að stofna félagið en Björn var mikill ferðamaður og áhugamaður um óbyggðir Íslands. Björn fékk til liðs við sig 8 mæta menn til að undirbúa stofnfund og semja ávarp til almennings um þann fund.

Ávarp til almennings

„Á síðari árum hefur mjög aukist áhugi manna um að ferðast hér um og kynnast óbyggðum landsins og öðrum lítt kunnum landshlutum. Áhugi hefur einnig vaknað fyrir því að kynna landið erlendum þjóðum, náttúru þess, sögu og þjóðhætti. Hefur mönnum fyrir löngu ljóst orðið að fáfræði erlendra þjóða um hagi vora er oss til hinnar mestu óþurftar á ýmsan hátt, og mundi oss á ýmsan veg reynast stórhagur að aukinni þekkingu á landi voru erlendis.

Hér á landi er enginn félagsskapur sem beitir sér fyrir því að kynna landið út á við né inn á við, eins og á sér stað í flestum löndum Norðurálfunnar. Á Norðurlöndum er slíkur félagsskapur (Turistforeninger) í hverju landi öflugur mjög, sem hefur margbrotið verk með höndum um að auka þekkingu manna á náttúru landsins, örva áhuga á ferðalögum og greiða fyrir því á ýmsan hátt. Vér undirritaðir álítum mjög æskilegt að slíkur félagsskapur yrði stofnaður hér á landi. Mun það varla orka tvímælis að félagsskapur sá mætti verða þjóðinni til hins mesta gagns og leysa úr ýmsum þeim viðfangsefnum sem engan eiga hér formælanda nú, viðfangsefnum sem ekki verður fram hjá gengið gaumlaust til lengdar.

Til þess að koma þessu máli á framfæri leyfum vér oss að bjóða öllum, er áhuga hafa um þetta mál, til fundar í Kaupþingssalnum sunnudaginn 27. nóvember 1927 kl. 2. Þar verður félagið stofnað á þessum fundi.“

Undir þetta ávarp rituðu: Björn Ólafsson, Níels P. Dungal, Einar Pétursson, Haraldur Árnason, Jón Þorláksson, Skúli Skúlason, Tryggvi Magnússon, Stefán Stefánsson, Valtýr Stefánsson, Helgi Jónasson frá Brennu og Geir G. Zoega.

Stofnfundurinn

Á stofnfundinn sem boðað var til með þessu ávarpi mættu 63 stofnfélagar. Félaginu voru sett lög og því kosin stjórn. Jón Þorláksson var kosinn forseti félagsins. Hann var verkfræðingur að mennt, hafði verið landsverkfræðingur og lengi einn af áhrifamestu stjórnmálamönnum landsins, síðast forsætisráðherra. Stefnumótun Ferðafélagsins vorið 2017.

This article is from: