3 minute read

STARFSMANNASTEFNA

Next Article
GÁTLISTAR

GÁTLISTAR

Starfsmannastefnan var unnin af hópi starfsmanna og samþykkt af stjórn FÍ í nóvember 2016. Starfsmannastefna FÍ er endurskoðuð reglulega.

Markmið

Advertisement

Meginmarkmið starfsmannastefnu FÍ er • að félagið hafi á að skipa hæfu, heiðarlegu og framsæknu starfsfólki. • að FÍ veiti starfsfólki sínu sem best skilyrði til að sinna þeim verkefnum sem störf þeirra krefjast og möguleika til þess að vaxa og dafna í starfi. • Skýr starfsmannastefna styður félagið í að veita og viðhalda framúrskarandi þjónustu til viðskiptavina og samstarfsfélaga.

Starfsandi

Hjá FÍ leggja allir sitt af mörkum til að skapa framúrskarandi starfsanda. Það er stefna FÍ að starfsmönnum líði vel á vinnustað þar sem þeir eru virkir þátttakendur og mæta stuðningi og sanngirni. Samskipti og framkoma starfsmanna einkennist af heiðarleika, virðingu og trausti. Vinnustaðagreiningar eru framkvæmdar reglulega og er markvisst unnið úr niðurstöðum þeirra í því skyni að auka starfsánægju.

Ráðningar

Leitast er við að auglýsa allar lausar stöður hjá FÍ innan félagsins og utan og standa öll laus störf opin bæði konum og körlum. Skýr starfslýsing og vel skilgreindar hæfniskröfur eru grundvöllur ráðninga til félagsins. Faglegt ráðningarferli miðar að því að velja einstaklinga sem efla þann hóp sem fyrir er á hverjum tíma.

Nýir starfsmenn

Ferli um móttöku nýrra starfsmanna stuðlar að því að nýir starfsmenn verði sem fyrst virkir þátttakendur í starfsemi FÍ. Áhersla er lögð á að byggja upp góða þekkingu á innviðum félagsins og þeim verkefnum sem tilheyra viðkomandi starfi. Stjórnendur eru ábyrgir fyrir því að fylgja fyrirliggjandi ferli um móttöku nýrra starfsmanna.

Starfsþróun og þjálfun

Starfsmenn FÍ hafa tækifæri til að þróast í starfi og eru hvattir til að auka hæfni sína og getu með því að takast á við verkefni og sækja sér fræðslu sem eflir þá og styrkir sem einstaklinga og starfsmenn. Regluleg starfsmannasamtöl eru vettvangur umræðu um starfsþróun og fræðsluþörf starfsmanna.

FÍ býður starfsmönnum upp á námskeið á hverju ári og stendur fyrir starfsdögum amk. tvisvar á ári.

• Frammistaða, kjör og endurgjöf – starfsmannafundir / frammistöðumat • Starfsmenn FÍ leitast ávallt við að ná framúrskarandi árangri í störfum sínum hjá félaginu sem einstaklingar og sem liðsheild. • Kjör starfsmanna taka mið af ábyrgð og frammistöðu hvers og eins. Meðal þátta sem litið er til við mat á frammistöðu eru árangur í starfi, frumkvæði og starfsþróun. • Stjórnendur veita starfsmönnum reglulega endurgjöf um frammistöðu og árleg starfsmannasamtöl eru nýtt til markmiðasetningar.

Upplýsingamiðlun og boðleiðir

Hjá FÍ er lögð áhersla á góða upplýsingamiðlun. Góð upplýsingamiðlun er til þess fallin að bæta frammistöðu skipulagsheildarinnar og einstaklinga innan hennar og er grundvöllur ákvarðanatöku. Hlutverk og ábyrgð stjórnenda í upplýsingamiðlun innan félagsins er skýrt og starfsmenn eru virkir í að miðla þekkingu til samstarfsfélaga. Starfsmannafundir þar sem starfsmenn miðla upplýsingum sín á milli eru haldnir allt frá 1x í viku - 1x í mánðuði eftir álagstímum.

Stjórnun

Stjórnendur FÍ eru ábyrgir fyrir því að innleiða og fylgja stefnu félagsins á hverjum tíma. Sú krafa er gerð til stjórnenda FÍ að þeir búi yfir hæfni í mannlegum samskiptum og þekkingu á því hvað hvetur fólk áfram. Stjórnendur FÍ hafa góðan skilning á rekstri félagsins og stjórnunarleg ábyrgð þeirra er skýr.

Starfsaðstaða, umhverfi

Það er stefna FÍ að búa starfsmönnum sínum gott og heilsusamlegt vinnuumhverfi. FÍ styður heilsueflingu starfsmanna.

Félagslíf

FÍ styður félagslíf á meðal starfsmanna FÍ, bæði beint og óbeint.

Jafnrétti

Það er stefna FÍ að gætt sé jafnréttis og að hver starfsmaður sé metinn á eigin forsendum óháð kynferði. Öll mismunun er óheimil innan félagsins í hvaða formi sem hún birtist.

Einelti og kynferðisleg áreitni

Einelti eða kynferðisleg áreitni líðst ekki hjá FÍ. Telji starfsmaður sig verða fyrir slíku skal hann snúa sér hið fyrsta til næsta yfirmanns og tilkynna um atvikið. Ef næsti yfirmaður er gerandi máls eða sinnir því ekki getur viðkomandi snúið sér til framkvæmdastjóra / forseta. Það er á ábyrgð þess, sem tekur við tilkynningu um slík atvik, að beina málinu í réttan farveg innan félagsins samkvæmt fyrirliggjandi ferli.

Sveigjanleiki

Ferðafélag Íslands leitast við að auðvelda starfsmönnum að samræma vinnu og fjölskyldulíf. Stjórnendur leggja sig fram um að leysa starfstengd og persónuleg mál í samvinnu við starfsmenn. Mögulegur sveigjanleiki tekur mið af aðstæðum innan félagsins á hverjum tíma en gagnkvæmni og náið samstarf og trúnaður milli stjórnanda og starfsmanns er forsenda sveigjanleika.

This article is from: