2 minute read

HREINGERNINGAÁÆTLUN MÖRKIN 6

Next Article
MATARUMSJÓN

MATARUMSJÓN

• Gæta að síðustu neyslu dagsetningum matvæla og reyna að nýta það sem er að renna út áður en það verður of seint. • Pakka þurrvöru og öðru þannig að mýs og önnur dýr hafi ekki greiðan aðgang að. • Þrífa vandlega hnífa og skuðbretti sem hefur verið notað í kjöt/fisk og á að nota í grænmeti og öfugt. • Best að nota sitthvort brettið og hnífana í kjöt/fisk annarsvegar og grænmeti hinsvegar. • Gæta þarf að eldunartíma til að koma í veg fyrir matareitranir. • Þrífa alla boðfleti vel í lok hverrar máltíðar og áður en byrjað er að elda. • Geyma ekki hrávöruafganga eins og salat nema hægt sé að tryggja viðeigandi kælingu (í ísskáp). • Mikilvægt er að hafa sérþarfir viðskiptavina varðandi ofnæmi í huga við matreiðslu. Þeir sem hafa ofnæmi fyrir ákveðnum efnum í mat geta aðstoðað við að benda á hvað ekki má fara í þann mat sem þeir neyta. • Við eldun með gasi / bensíni skal gæta þess að loftun sé ávallt nægjanleg og að gas og eldsneytiskútar séu ekki það nálægt eldunarbúnaði að sprengihætta geti hlotist af. Aldrei skal skipta um bensínbrúsa á heitum prímusum og aldrei skal skipta um gaskúta inni í tjöldum. Gæta skal þess að gashellur og hitarar séu ekki það nálægt tjaldveggjum að þeir geti brennt þá, þetta á sérstakelga við þegar gashellur eru notaðar til að hita tjöld. • Aldrei skal nota kol innandyra - ávallt skal farga kólnuðum kolum á viðeignadi stað og ganga vel frá öllum grillstæðum þegar kol hafa kólnað. Mælt er með að hafa þykka hanska meðferðis til að auðvelda meðhöndlun matvæla á heitum, og oft logandi, grillum. • Matarumsjón felur einnig í sér umsjón með því að förgun alls sorps sem tilfellur í ferðinni fari í þann farveg sem viðeigandi er á hverjum stað. Æskilegast er að sorpflokkun sé eins mikil og hægt er á hverjum stað. Allur fastur úrgangur sem fellur til við matseld skal fjarlægður og honum fargað á viðeigandi hátt þar sem tekið er við sorpi. Fastur úrgangur er aldrei grafinn, brenndur eða honum hent í ár, vötn eða haf.

Eftir ferð

Advertisement

• Þrífa áhöld og skila búnaði á lager FÍ. • Fylla út atvikaskýrslu ef þörf þykir og skila: atvikaskýrsla.

Hreinlætisáætlun 2019

Flokkun sorps

Sorpflokkun Ferðafélagsins er eftirfarandi: • pappír • skilagjaldsskyldar umbúðir • plast • almennt sorp • spilliefni

Á gististöðum félagsins svo og á skrifstofu og lager félagsins eru tunnur og ílát fyrir þessa flokka.

Starfsfólk bendir gestum og gangandi á þessa flokkun og aðstoðar við móttöku og ráðstöfun á sorpi sem ekki fellur beint í einhvern þessara flokka.

FLOKKUN SORPS

Sorpflokkun Ferðafélagsins er eftirfarandi: • pappír • skilagjaldsskyldar umbúðir • plast • almennt sorp • spilliefni Á gististöðum félagsins svo og á skrifstofu og lager félagsins eru tunnur og ílát fyrir þessa flokka. Starfsfólk bendir gestum og gangandi á þessa flokkun og aðstoðar við móttöku og ráðstöfun á sorpi sem ekki fellur beint í einhvern þessara flokka.

This article is from: