Gátlistar REIÐHJÓLAFERÐIR Gátlisti fyrir fararstjóra Reiðhjólaferðir og starfslýsing fararstjóra í hjólaferð. Gildissvið Gátilisti þessi gildir fyrir hverskonar reiðhjólaferðir með fararstjórn á vegum Ferðafélags Íslands., hvort sem um ræðir ferðir í óbyggðum eða þéttbýli.
•
•
• •
• •
•
Ath. að nauðsynlegt getur verið að kynna sér aðrar reglur félagsins vegna aksturs, eldunar og annarrar afþreyingar sem gæti verið hluti af ferðinni.
• • •
Hæfniskröfur fararstjóra/leiðsögumanns Leiðsögumenn í hjólaferðum verða að hafa umtalsverða reynslu af þeirri tegund hjólreiða sem um ræðir hverju sinni. Þeir verða að hafa reynslu af almennri útivist og kunnáttu í notkun staðsetningartækja. Nauðsynlegt er að leiðsögumaðurinn hafi grunn kunnáttu í helstu hjólaviðgerðum sem hægt er að koma við í feltinu auk þess að kunna skil á eðlilegu viðhaldi hjóla í lengri ferðum (s.s. stilla gír, smyrja, skipta um keðju). Æskilegt að leiðsögumenn í hjólaferðum hafi einnig reynslu í almennri leiðsögn og þar með færni í hópstjórn, skilning á þörfum gesta og almenna færni í að veita þeim þjónustu.
•
Einn starfsmaður hið minnsta í hverri ferð skal vera með WFR réttindi.
•
Starfslýsing fararstjórans
• • •
•
•
Fjöldi þáttakenda á hvern fararstjóra skal vera mest 10 í óbyggðum og einföldu landslagi og 13 á auðförnum vegum. Skyldur fararstjóra/leiðsögumanns Fararstjóri skal kynna sér vel starfsreglur fararstjóra. Fararstjórar gæta öryggis í hvívetna, upplýsa um hættur og erfiðleika. Þeir hafa einnig umsjón með að eðlilegt viðhald á hjólum og öðrum búnaði fari fram í ferðinni og aðstoða gesti eftir þörfum við það. Þeir gæta þess að verkefni hvers dags taki mið af getu gesta, veðri og aðstæðum og nota m.a. hraða til að stýra áhættu í ferðum.
• • • •
• • • •
Leiðsögumaður á að tryggja öryggi gesta eftir bestu getu. Meti hann búnað eða líkamlegt ástand gesta þannig að þeir muni ekki á öruggan hátt geta tekið þátt í viðkomandi ferð ber honum að vísa viðkomandi úr ferðinni. Hann ætti að leitast við að koma viðkomandi í sambandi við skrifstofuna svo hægt sé að greiða úr málum með sem minnstum óþægindum fyrir alla aðila.
• • •
Búnaður ferðar Hjól / fjallahjól. Almennur útivistabúnaður. Viðgerðarbúnaður sem hæfir ferðinni – flóknari búnaður fyrir erfiðari ferðir sem eru fjarri alfaraslóð / þéttbýli / trússbíl.
64
Ferðafélag Íslands - Gæðahandbók
Auka slanga, bótasett, verkfærasett: sexkantar, dekkjaplast, keðjuþvinga, quick-link, pumpa og keðja. Drop-out, afturskiptir og auka keðja af réttri /réttum stærðum, auka dekk sem hægt er að brjóta saman. Bothy-bag neyðarskýli og hlýr fatnaður ef þarf að stoppa. Fyrir lengri ferðir en dagsferðir ætti eftirfarandi einnig að vera handhægt t.d. í trússbíl eða í náttstað: Hjólastandur, auka fram og aftur gjarðir ásamt stærri varahlutum Hjólahjálmar fyrir leiðsögumann og gesti af viðurkenndum gerðum í góðu ástandi og yngri en 5 ára gamlir. Fjarskipti (GSM, Tetra, Iridum, VHF eins og við á hverju sinni). Skyndihjálparbúnaður. Staðsetningartæki. Æskilegt er að hjól séu útbúin með bjöllu á slóðum þar sem búast má við mikilli umferð gangandi og við allar hjólreiðar innanbæjar.
•
•
• •
•
•
Fyrir ferð Kynna sér þær leiðir sem á að hjóla Kynna sér upplýsingar um ferðir í gæda-möppu og/eða á heimsíðu Kynna sér gististaði – staðsetningu og aðstöðu Kynna sér matarlista og hafa samvinnu við lagerinn um matarmál sérþarfir ofnæmi oþh. Kanna færð á vegum og ástand slóða, gera viðeigandi ráðstafanir séu vandamál. Sérþarfir / séróskir gesta sem þarf að undirbúa? Sjá til þess að leiguhjól séu til reiðu og að þau séu í góðu ástandi Bremsur, (ljós), dekk, drifbúnaður Fara yfir viðgerðar/varahlutapakka Kynna sér allar verklagsreglur sem eiga við um ferð Fræða gesti um notkun þess fjarskiptabúnaðar sem meðferðis er þannig að þeir séu færir um að kalla til aðstoð ef leiðsögumaður er það ekki. Í ferð Kynna dagskrá fyrir gestum og ræða frammvindu hvers dags: Vega- og tímalengdir. Veður og fatnaður. Matur og drykkur. Almennar aðstæður, landslag og önnur atriði sem vert er að hafa í huga fyrir daginn. Gæta að líkamsbeitingu og vinnuaðstöðu þegar hjól eru sett á bíl/ kerru. Kynna sig. Taka á öllum vandamálum varðandi farangur o.þ.h. Leita aðstoðar hjá skrifstofu ef við á. Fara yfir ferðatilhögun, matar- og salernismál og ráðleggja um nauðsynlegt magn vökva og nestis fyrir daginn. Fara yfir helstu atriði varðandi búnað og tryggja að ekki þurfi að redda einhverju áður en lagt er af stað og leysa möguleg vandamál áður en lagt er af stað ef hægt.