•
•
•
•
• •
•
•
•
•
•
• •
Gæta að síðustu neyslu dagsetningum matvæla og reyna að nýta það sem er að renna út áður en það verður of seint. Pakka þurrvöru og öðru þannig að mýs og önnur dýr hafi ekki greiðan aðgang að. Þrífa vandlega hnífa og skuðbretti sem hefur verið notað í kjöt/fisk og á að nota í grænmeti og öfugt. Best að nota sitthvort brettið og hnífana í kjöt/fisk annarsvegar og grænmeti hinsvegar. Gæta þarf að eldunartíma til að koma í veg fyrir matareitranir. Þrífa alla boðfleti vel í lok hverrar máltíðar og áður en byrjað er að elda. Geyma ekki hrávöruafganga eins og salat nema hægt sé að tryggja viðeigandi kælingu (í ísskáp). Mikilvægt er að hafa sérþarfir viðskiptavina varðandi ofnæmi í huga við matreiðslu. Þeir sem hafa ofnæmi fyrir ákveðnum efnum í mat geta aðstoðað við að benda á hvað ekki má fara í þann mat sem þeir neyta. Við eldun með gasi / bensíni skal gæta þess að loftun sé ávallt nægjanleg og að gas og eldsneytiskútar séu ekki það nálægt eldunarbúnaði að sprengihætta geti hlotist af. Aldrei skal skipta um bensínbrúsa á heitum prímusum og aldrei skal skipta um gaskúta inni í tjöldum. Gæta skal þess að gashellur og hitarar séu ekki það nálægt tjaldveggjum að þeir geti brennt þá, þetta á sérstakelga við þegar gashellur eru notaðar til að hita tjöld. Aldrei skal nota kol innandyra - ávallt skal farga kólnuðum kolum á viðeignadi stað og ganga vel frá öllum grillstæðum þegar kol hafa kólnað. Mælt er með að hafa þykka hanska meðferðis til að auðvelda meðhöndlun matvæla á heitum, og oft logandi, grillum. Matarumsjón felur einnig í sér umsjón með því að förgun alls sorps sem tilfellur í ferðinni fari í þann farveg sem viðeigandi er á hverjum stað. Æskilegast er að sorpflokkun sé eins mikil og hægt er á hverjum stað. Allur fastur úrgangur sem fellur til við matseld skal fjarlægður og honum fargað á viðeigandi hátt þar sem tekið er við sorpi. Fastur úrgangur er aldrei grafinn, brenndur eða honum hent í ár, vötn eða haf.
Hreingerningaáætlun Mörkin 6 Hreinlætisáætlun 2019 Flokkun sorps Sorpflokkun Ferðafélagsins er eftirfarandi: • pappír • skilagjaldsskyldar umbúðir • plast • almennt sorp • spilliefni Á gististöðum félagsins svo og á skrifstofu og lager félagsins eru tunnur og ílát fyrir þessa flokka. Starfsfólk bendir gestum og gangandi á þessa flokkun og aðstoðar við móttöku og ráðstöfun á sorpi sem ekki fellur beint í einhvern þessara flokka.
FLOKKUN SORPS Sorpflokkun Ferðafélagsins er eftirfarandi: • pappír • skilagjaldsskyldar umbúðir • plast • almennt sorp • spilliefni Á gististöðum félagsins svo og á skrifstofu og lager félagsins eru tunnur og ílát fyrir þessa flokka. Starfsfólk bendir gestum og gangandi á þessa flokkun og aðstoðar við móttöku og ráðstöfun á sorpi sem ekki fellur beint í einhvern þessara flokka.
Eftir ferð Þrífa áhöld og skila búnaði á lager FÍ. Fylla út atvikaskýrslu ef þörf þykir og skila: atvikaskýrsla.
Ferðafélag Íslands - Gæðahandbók
59