handbok

Page 33

Ferðaþjónusta Ferðafélag Íslands er áhugamannafélag sem stendur meðal annars um ferðir um landið þar sem starfið fellst í að selja og framkvæma hópferðir af ýmsu tagi þar sem ferðast er um Ísland á skipulegan hátt og með fararstjóra sem Ferðafélagið leggur til. Þjónustan er öll framkvæmd af Ferðafélaginu, starfsmönnum þess, verktökum eða öðrum þjónustuaðilum sem vinna samkvæmt samningi við Ferðafélagið.

SKILMÁLAR OG REGLUR Dagsferðir Dagsferðir eru ferðir sem taka innan við sólarhring, venjulegast er lagt af stað að morgni og komið heim seinnipartinn. Þessar ferðir bókast og greiðast með að minnsta kosti tveggja daga fyrirvara og í síðasta lagi fyrir kl.16:00, fimmtudaginn fyrir þær ferðir sem farnar eru á laugardegi eða sunnudegi, nema annað sé tekið fram í ferðalýsingu. Sumarleyfis og helgarferðir Sumarleyfis og eða helgarferðir ferðir taka tvo eða fleiri daga. Fargjald þarf að greiða að fullu við pöntun. Afslættir Börn og unglingar, 7-18 ára, í fylgd forráðamanna, greiða hálft gjald í ferðir félagsins. Börn, 6 ára og yngri, ferðast ókeypis með forráðamönnum sínum. Félagsmenn í Ferðafélagi Íslands fá afslátt í allar ferðir félagsins. Afsláttur félagsmanna gildir einnig fyrir maka og börn að 18 ára aldri í fylgd félagsmanns. Afbókunarskilmálar • Afbókun innan 7 daga frá bókun og meira en 21 degi fyrir brottför: Ferð endurgreidd að staðfestingargjaldi frátöldu. • Afbókun 20 - 8 dögum fyrir brottför: 50% fargjalds endurgreidd að staðfestingargjaldi frátöldu. • Afbókun 7 - 4 dögum fyrir brottför: 25% fargjalds endurgreidd að staðfestingargjaldi frátöldu. • Afbókun 3 - 0 dögum fyrir brottför: Engin endurgreiðsla.

Tryggingar Ferðafélag Íslands tryggir hvorki farþega sína né farangur þeirra. Farþegar ferðast með félaginu á eigin ábyrgð. Félagið hvetur fólk til að kaupa ferða- og slysatryggingar fyrir ferðir. FARARSTJÓRN Fararstjórar skulu fylgja starfsreglum fararstjóra Ferðafélagið leggur áherslu á að fararstjórar þess uppfylli kröfur Ferðamálastofu (Vakinn) um menntun, þjálfun og reynslu. Hjá FÍ starfar einvala lið fararstjóra af báðum kynjum. Félagið leitast við að fá til sín fólk sem hefur fjölbreytta reynslu af fjalla­mennsku og útivist og í flestum tilfellum hefur það reynslu af starfi með björgunarsveitum. Þar með hefur það hlotið þjálfun á ýmsum sviðum. Áherslan við ráðningar er ekki síður á samskiptahæfni leiðsöguefnanna; getuna til að skemmta og fræða þátttakendur í ferðum félagsins. Fararstjórar FÍ hafa yndi af því að ferðast um landið miðla af þekkingu sinni og reynslu og hafa tileinkað sér heilbriðgaðn lísstíl. Ætlast er til að þeir séu til fyrirmyndar á þeim sviðum sem snúa að fjallamennsku og almennt því sem starfið snýr að. Þjónustulund, áræðni og úrræðasemi eru mikilvægir kostir. Traust milli fararstjóra innbyrðis annars vegar og fararstjóra og þátttakenda hins vegar er lykilatriði. Þeir hafa yfirgripsmikla þekkingu og eru færir í að koma henni frá sér á lifandi og skemmtilegan hátt. Fararstjórar eru í stöðugu endurmati á vinnu sinni með það að markmiði að tileinka sér nýja tækni, uppfæra upplýsingar um náttúruna, meta og endurmeta öryggi gesta o.fl. Fararstjórar Ferðafélagsins eru til fyrirmyndar þegar kemur að umgengni við náttúruna, spilla henni ekki á nokkurn hátt og skilja ekki eftir sig rusl.

Jafnrétti Ferðafélagið mismunar ekki viðskiptavinum sínum á neinn hátt. •

Breytingar Ferðafélag Íslands áskilur sér rétt til að hætta við, fresta ferð eða breyta áætlun vegna veðurs eða annarra utanaðkomandi aðstæðna, svo og ef ekki fæst næg þátttaka.

Aðalfararstjóri félagsins Aðalfararstjóri Ferðafélags Íslands hefur það sama hlutverk og yfirleiðsögumaður hefur í gæðaskjölum Ferðamálastöfu. Aðalfararstjóri Ferðafélagsins skal uppfylla eftirfarandi hæfiskröfur: 1 búa yfir 2 ára eða 100 daga reynslu sem leiðsögumaður.

Ferðafélag Íslands - Gæðahandbók

33


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.
handbok by ferdalag - Issuu