Starfslýsingar STARFSLÝSING SKÁLAVARÐA
STARFSLÝSING: FERÐAFÉLAG ÍSLANDS Starfsheiti: Skálavörður Staður: Skálar Ferðafélags Íslands Yfirmaður: Rekstrarstjóri skála Tengill: Skálafulltrúi 1. Almennt ábyrgðarsvið a) Eftirlit og umsjón með skálum Ferðafélagsins og öðru sem þeim tilheyrir. b) Innheimta gisti- og þjónustugjalda og senda uppgjör og regluleg skil til skrifstofu. c) Viðhald húsa, eigna og umhverfis á hverjum stað. d) Sjá til þess að skálar FÍ og umhverfi allt sé hreint og snyrtilegt. e) Dagleg skýrslugerð og dagbókarfærslur skv. vinnureglum. f) Móttaka gesta og upplýsingagjöf til þeirra. g) Náttúruvernd og fræða gesti og leiðbeina um svæðið. 2.Helstu verkefni skálavarðar Innheimta og uppgjör • Skálaverðir skulu innheimta gistigjöld og önnur gjöld skv. verðskrá og fylla út eyðublöð og kvittanir eins og við á hverju sinni. • Uppgjör skulu gerð a.m.k.vikulega, gengið frá þeim í umslög ásamt peningum og öllum gögnum sbr. leiðbeiningar. • Skálaverðir skulu fylgjast með aðsókn á staðinn og halda vikulegt bókhald þar um. Fylla skal út gistináttaskýrslur til Hagstofunnar og koma til skrifstofu. • Skálaverðir skulu halda dagbók þar sem fram koma helstu atriði hvers dags t.d. ef veitt er aðstoð, ef slys verður, eitthvað bilar eða annað sem upp kann að koma. • Símar skulu alls ekki lánaðir nema brýna nauðsyn beri til enda sé símtal stutt. Innheimta skal gjald kr 500 fyrir símnotkun og skrá sem tekjur á viðeigandi hátt.
•
•
•
•
•
• •
• • • •
Skálarnir sjálfir og umhverfi þeirra Viðhaldsvinnu skal sinnt skv. lista sem fyrir liggur og eftir þörfum því sem við bætist. Aðstoða á félaga í vinnuferðum og fólk sem kemur til viðhaldsvinnu eins og mögulegt er. Þrífa skal skálana reglulega, á hverjum degi sé þess þörf. Sérstaklega er mikilvægt að hirða vel um forstofur skálanna og eldhús. Sömuleiðis þrífa salerni og hreinlætisaðstöðu eins vel og mögulegt er, einu sinni á dag eða oftar eftir þörfum. Sjá til að þar sé allt sem þarf. Sjá til þess að allar rekstrarvörur, gas og annað sé tiltækt og panta það sem vantar með góðum fyrirvara frá skrifstofu. Sinna umhverfi skálanna s.s. taka til og hreinsa upp rusl, tína saman tjaldgrjót, halda við stígum, stikum og merkingum. Láta vita af því sem þarf að laga eða vantar. Flokka endurvinnanlegar umbúðir og brýna fyrir gestum að henda slíku ekki í ruslið. Tekjur af endurvinnslu er mjög mikilvæg fjáröflun fyrir félagið Móttaka gesta Skálaverðir ráða húsi og skulu ráðstafa gestum gistirými. Kynna gestum skála- og gistireglur t.d. að friður sé milli 24.00 og 7.00 og að menn skuli fara úr skónum í anddyri húsa. Sýna mönnum aðstöðuna á staðnum og upp á hvaða þjónustu er boðið. Taka á móti gestum fara t.d. í rútur sé því við komið og bjóða fólk velkomið. Leiðbeina fólki um útiverumöguleika, gönguleiðir, örnefni og það helsta markverða á svæðinu. Kynna fyrir fólki þær bækur, kort, muni og annað sem til sölu er. Kynna fólki kosti þess að vera í Ferðafélaginu og bjóða því að ganga í félagið en einfalt er að gera það á heimasíðu FÍ.
3. Kröfur um skólagöngu eða reynslu Starfsmaður þarf fyrst og fremst að hafa þekkingu og brennandi áhuga á ferðamálum á Íslandi, einkum gönguferðamennsku.Vera skipulagður og geta unnið skipulega undir álagi. Hafa góða íslenskukunnáttu og vera vel mæltur á erlendum tungum a.m.k. ensku. Hafa ríka þjónustulund og eiga gott með að vinna með öðrum. • Þekking á skyndihjálp - fara á námskeið ef það vantar. •
Ferðafélag Íslands - Gæðahandbók
27