FÍB Blaðið 1.tbl. 2021

Page 22

Ökuvísir áhugaverð nýjung Aksturshegðun ákvarðar iðgjaldið

Ökuvísir er nýr valkostur í ökutækjatryggingum þar sem hægt er að fá aðgang að smáforriti (appi) sem aðstoðar við að bæta aksturslag. Með virkri endurgjöf í gegnum smáforritið er viðskiptavinurinn aðstoðaður við aksturinn og með þessu er hægt að draga úr umferðarslysum. Markmiðið er að umbuna viðskiptavinum sem aka vel og aka lítið.  Svona fyrirkomulag er þekkt erlendis og byggir á samþykki tryggingartaka fyrir vinnslu á akstursupplýsingum til ákvörðunar um iðgjald. Einfaldari verðskrá Tveir þættir hafa áhrif á iðgjaldaverðið í Ökuvísi, þ.e. aksturseinkunn og eknir kílómetrar. Þetta er einfaldari verðskrá en hefðbundin verðskrá tekur mið af aldri tryggingartaka, heimilisfangi sem skilgreinir áhættusvæði, þyngd og vélarstærð ökutækis m.m. Að mati VÍS er verðskrá Ökuvísis einfaldari og gegnsærri en áður hefur þekkst. Áhugasamir

geta fengið að prófa smáforritið í tvær vikur til að vega og meta hvort það henti. Upplýst samþykki viðskiptavina Samkvæmt upplýsingum VÍS fær ökumaðurinn virka endurgjöf við akstur, eftir hverja ferð. Smáforritið á eingöngu að safna upplýsingum til endurgjafar við aksturinn. Það á ekki að safna persónuupplýsingum. VÍS segir að persónuupplýsingar viðskiptavina verða ekki notaðar í neitt annað en að veita þjónustu sem tengist Ökuvísi. Vinnsla persónuupplýsinga í Ökuvísi byggir á upplýstu samþykki viðskiptavina, staðsetningargögn eru geymd í farsíma viðskiptavina og tryggt er að engir starfsmenn hafi aðgang að persónugreinanlegum staðsetningargögnum. Hugað var að persónuvernd í allri vinnslu og hönnun, s.s. forritun og þjónustu.

Tjón á rafhlöðu bætt – jákvæðar skilmálabreytingar hjá Sjóvá Tryggingafélagið Sjóvá hefur nú bætt kaskótryggingu viðskiptavina félagsins og gerir hana enn víðtækari en áður. Kaskótrygging Sjóvár bætir nú tjón sem verður á rafhlöðu rafbíls, vél eða gírkassa ef bíllinn rekst niður eða eitthvað hrekkur upp undir hann við venjulegan akstur, annars staðar en á fjallvegum, slóðum, utan vega eða yfir óbrúaðar ár. Eigin áhætta í undirvagnstjónum er tvöföld miðað við önnur kaskótjón. Hún getur verið enn hærri í alvarlegum drifrafhlöðutjónum eða 15% af tjónakostnaði.

22

FÍB-blaðið

FÍB hefur í gegnum tíðina gert alvarlegar athugasemdir við smáa letrið í tengslum við kaskótjón. FÍB hefur sérstaklega og ítrekað komið á framfæri við markaðinn ófullnægjandi stöðu rafbílaeigenda vegna mögulegra tjóna á drifrafhlöðum í akstri. Undanþágur í vátryggingum vegna undirvagnstjóna eru mun umfangsmeiri hér á landi samanborið við flest önnur lönd. Bætt kaskótrygging Sjóvá ætti að ýta við markaðnum og FÍB fagnar þessum skilmálabreytingum félagsins. Nú er að sjá hvort hin tryggingafélögin ætla að taka í þátt í orkuskiptum í samgöngum með bættum skilmálum líkt og Sjóvá?


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.
FÍB Blaðið 1.tbl. 2021 by Félag íslenskra bifreiðaeigenda - Issuu