4 minute read

Nýjungar í tryggingum

Aksturshegðun ákvarðar iðgjaldið

Ökuvísir er nýr valkostur í ökutækjatryggingum þar sem hægt er að fá aðgang að smáforriti (appi) sem aðstoðar við að bæta aksturslag. Með virkri endurgjöf í gegnum smáforritið er viðskiptavinurinn aðstoðaður við aksturinn og með þessu er hægt að draga úr umferðarslysum. Markmiðið er að umbuna viðskiptavinum sem aka vel og aka lítið. Svona fyrirkomulag er þekkt erlendis og byggir á samþykki tryggingartaka fyrir vinnslu á akstursupplýsingum til ákvörðunar um iðgjald.

Einfaldari verðskrá

Tveir þættir hafa áhrif á iðgjaldaverðið í Ökuvísi, þ.e. aksturseinkunn og eknir kílómetrar. Þetta er einfaldari verðskrá en hefðbundin verðskrá tekur mið af aldri tryggingartaka, heimilisfangi sem skilgreinir áhættusvæði, þyngd og vélarstærð ökutækis m.m. Að mati VÍS er verðskrá Ökuvísis einfaldari og gegnsærri en áður hefur þekkst. Áhugasamir geta fengið að prófa smáforritið í tvær vikur til að vega og meta hvort það henti.

Upplýst samþykki viðskiptavina

Samkvæmt upplýsingum VÍS fær ökumaðurinn virka endurgjöf við akstur, eftir hverja ferð. Smáforritið á eingöngu að safna upplýsingum til endurgjafar við aksturinn. Það á ekki að safna persónuupplýsingum. VÍS segir að persónuupplýsingar viðskiptavina verða ekki notaðar í neitt annað en að veita þjónustu sem tengist Ökuvísi. Vinnsla persónuupplýsinga í Ökuvísi byggir á upplýstu samþykki viðskiptavina, staðsetningargögn eru geymd í farsíma viðskiptavina og tryggt er að engir starfsmenn hafi aðgang að persónugreinanlegum staðsetningargögnum. Hugað var að persónuvernd í allri vinnslu og hönnun, s.s. forritun og þjónustu.

Tjón á rafhlöðu bætt – jákvæðar skilmálabreytingar hjá Sjóvá

Tryggingafélagið Sjóvá hefur nú bætt kaskótryggingu viðskiptavina félagsins og gerir hana enn víðtækari en áður. Kaskótrygging Sjóvár bætir nú tjón sem verður á rafhlöðu rafbíls, vél eða gírkassa ef bíllinn rekst niður eða eitthvað hrekkur upp undir hann við venjulegan akstur, annars staðar en á fjallvegum, slóðum, utan vega eða yfir óbrúaðar ár. Eigin áhætta í undirvagnstjónum er tvöföld miðað við önnur kaskótjón. Hún getur verið enn hærri í alvarlegum drifrafhlöðutjónum eða 15% af tjónakostnaði. FÍB hefur í gegnum tíðina gert alvarlegar athugasemdir við smáa letrið í tengslum við kaskótjón. FÍB hefur sérstaklega og ítrekað komið á framfæri við markaðinn ófullnægjandi stöðu rafbílaeigenda vegna mögulegra tjóna á drifrafhlöðum í akstri. Undanþágur í vátryggingum vegna undirvagnstjóna eru mun umfangsmeiri hér á landi samanborið við flest önnur lönd. Bætt kaskótrygging Sjóvá ætti að ýta við markaðnum og FÍB fagnar þessum skilmálabreytingum félagsins. Nú er að sjá hvort hin tryggingafélögin ætla að taka í þátt í orkuskiptum í samgöngum með bættum skilmálum líkt og Sjóvá?

Góð reynsla af greiðslukerfinu

– segir Valgeir Bergmann, framkvæmdastjóri Vaðlaheiðarganga hf.

Vaðlaheiðargöng, sem eru undir Vaðlaheiði og tengja Eyjafjörð og Fnjóskadal, voru opnuð fyrir umferð 21. desember 2018. Göngin eru önnur í röðinni á Íslandi þar sem veggjald er innheimt af vegfarendum, áður hafði það verið innheimt í Hvalfjarðargöngum. Farin var ný leið hér á landi í innheimtu veggjalds í Vaðlaheiðargöngum, snertilaus sjálfsafgreiðslulausn í gegnum vefsíðuna veggjald.is, þar sem einnig er að finna allar upplýsingar um verð og greiðslufyrirkomulag. Valgeir Bergmann, framkvæmdastjóri Vaðlaheiðarganga, segir að greiðslukerfi ganganna hafi í öllum meginatriðum reynst mjög vel og viðskiptavinir sem noti göngin mikið verið mjög ánægðir með veggjaldsappið. Í því sé yfirlit yfir allar ferðir auk þess sé hægt að skrá fleiri bíla á sama greiðslukortið. „Frá upphafi höfum við lagt áherslu á að hafa kerfið einfalt og skilvirkt og ég tel að það hafi tekist mjög vel. Vissulega var þetta nýtt og framandi fyrir marga en mér finnst að þorri vegfarenda hafi verið mjög fljótur að tileinka sér þennan greiðslumáta,“ segir Valgeir. Hann segir að eftir því sem fleiri aki um Vaðlaheiðargöng og meiri og betri reynsla hafi fengist á notkun ganganna hafi spurningum vegfarenda um greiðslufyrirkomulagið fækkað. Þó vakni eðlilega ýmsar spurningar hjá þeim sem aki um göngin í fyrsta skipti, t.d.: Hvernig er greitt veggjald í Vaðlaheiðargöng? Hægt er kaupa stakar ferðir á veggjald.is eða stofna aðgang og njóta afsláttarkjara. Er greitt sérstaklega fyrir aftanívagna? Svarið er nei, hvorki þarf að skrá né greiða fyrir aftanívagn, eingöngu ökutækið sem dregur. Eru vegfarendur sem aka Vaðlaheiðargöng án þess að skrá ökutæki sín á veggjald.is sektaðir? Nei, engum sektum er beitt. Ef ekið er í gegn án skráningar er veggjaldið auk bankakostnaðar rukkað í heimabanka hjá umráðamanni ökutækis.

Vefverslun FÍB, öryggi og þægindi fyrir ferðalagið Nánar á FIB.is

KEYRÐU Á ÖRYGGI!

- KAUPTU NOKIAN GÆÐADEKK

Sumardekk frá hinum heimsþekkta finnska dekkjaframleiðanda Nokian fást hjá MAX1 Bílavaktinni. Nokian sumardekkin eru sérstaklega hönnuð til að gefa gott grip við breytilegar aðstæður, m.a. í bleytu. Dekkin hrinda vel frá sér vatni sem vill safnast fyrir í hjólförum vega og draga því úr hættu á að bíllinn fljóti.

SENDUM UM ALLT LAND FLUTNINGUR MEÐ FLYTJANDA 1.000 KR. HVERT DEKK

FINNDU DEKKIN ÞÍN Á MAX1.IS

Nokian Powerproof veitir einstakt grip í bleytu, framúrskarandi öryggi, lágmarkað veghljóð, nákvæmt og endingargott. Powerproof er fáanlegt fyrir fólksbíla og sportjeppa og henta einnig fyrir rafbíla og Hybrid bifreiðar.

Nokian Wetproof veitir framúrskarandi öryggi, sérlega hljóðlátt, eldsneytissparandi og endingargott. Wetproof er fáanlegt fyrir fólksbíla og sportjeppa og henta einnig fyrir rafbíla og Hybrid bifreiðar. Nokian Rotiiva AT er frábært heilsársdekk

með grófu mynstri fyrir jeppa. Dekkið er sterkbyggt og hannað til að draga úr vegviðnámi, bæði á torfærum leiðum sem og á malbiki.

This article is from: