1 minute read

Umhverfi draumahússins

Í þessu verkefni segi ég betur frá umhverfinu í kringum húsið mitt. Ef húsið mitt er staðsett á jörðinni þá skrifa ég um það land og/eða landshluta þar sem húsið mitt stendur. Ég skrifa um landslagið í kring, helstu náttúruperlur og dýrategundir sem finnast á svæðinu. Ef húsið mitt er staðsett á annarri plánetu skrifa ég um þá plánetu og umhverfið á henni. Ef ég vil má ég velja að hanna garðinn í kringum húsið mitt. Þá teikna ég garðinn upp, nefni plönturnar sem þar finnast og finn annan efnivið í garðinn. Verkefninu skila ég inn á tölvutæku formi (t.d. Word, Canva, Powerpoint) í skilahólf á Mentor. Áður en ég skila fer ég yfir stafsetningu með Skramba (https://skrambi.arnastofnun.is/) eða öðru forriti sem fer yfir stafsetningu.

Viðmið um árangur

Advertisement

o A) Nemandi tilgreinir hvar húsið sitt stendur. o B) Ef valið er að hanna garð: nemandi teiknar upp garðinn. o C) Ef valið er að hanna garð: nemandi tilgreinir að minnsta kosti 5 tegundir plantna, lýsir þeim og tilgreinir staðsetningu þeirra í garðinum. o D) Nemandi lýsir að minnsta kosti fimm einkennum umhverfis í kringum húsið. o E) Nemandi notar að minnsta kosti 3 myndir við framsetningu. o F) Nemandi vinnur verkefnið einn og í tölvu. o G) Nemandi skilar verkefninu með færri en 10 stafsetningarvillum. o H) Nemandi skýrir skjalið sitt með nafni. o I) Nemandi skilar verkefninu á Mentor. o J) Nemandi skilar á réttum tíma.

Skiladagur: 18. nóvember 2022

Um sein skil: Þau sem skila seint hafa ekki möguleika á einkunninni framúrskarandi. Veikindi eða önnur útskýrð fjarvera er að sjálfsögðu tekin til greina. Nemendur geta alltaf samið við kennara um annan skiladag með góðum rökum.

This article is from: