
1 minute read
Gólfefni draumahússins – 9. bekkur
Ég vil vita hvað húsið mitt er stórt. Ég ákveð hvað ég set á gólfin og ég kaupi málningu á húsið. Ég skrifa fermetrastærð hvers herbergis og rýmis á teikninguna og heildarflatarmál hússins míns. Ég vel eitt rými í húsinu og reikna flatarmál allra veggjanna. Ég vel gólfefni á allt húsið og reikna hvað það kostar. Ég vel málningu á eitt rýmið og reikna hvað það kostar.
Viðmið um árangur
Advertisement
o A) Nemandi reiknar flatarmál allra herbergja. o B) Nemandi merkir flatarmál herbergja inn á grunnteikningu. o C) Nemandi velur að minnta kosti tvær tegundir gólfefnis. o D) Nemandi reiknar kostnað gólfefnis fyrir allt húsið. o E) Nemandi reiknar flatarmál veggja í að minnsta kosti einu rými. o F) Nemandi merkir flatarmál veggjanna inn á grunnteikningu. o G) Nemandi reiknar kostnað málningar fyrir að minnsta kosti 1 herbergi. o H) Nemandi tekur fram nafn eða númer litarins sem notaður er til að mála. o I) Nemandi skilar á blaði til kennara. o J) Nemandi skilar á réttum tíma.
Skiladagur: 11. nóvember 2022
Um sein skil: Þau sem skila seint hafa ekki möguleika á einkunninni framúrskarandi. Veikindi eða önnur útskýrð fjarvera er að sjálfsögðu tekin til greina. Nemendur geta alltaf samið við kennara um annan skiladag með góðum rökum.