
2 minute read
Staðsetning draumahússins
Ég ákveð hvar húsið mitt stendur og met samfélagsgerðina og veðurfarið. Ég fræðist um árstíðarbreytingar og hvað stjórnar veðurfari á jörðinni. Ég ákveð hvort húsið mitt sé í borg, sveit, þorpi o.s.frv. Í hvaða heimshluta er húsið mitt ? Er það jafnvel á annarri plánetu? Hvernig er samfélagið og hvaða tungumál er talað? Veðurfar getur haft mikil áhrif á lífshætti okkar og hvernig við byggjum hús og híbýli. Ég veit að stráhús hentar til dæmis ekki vel á norðurpólnum. Til þess að nálgast upplýsingar um veðurfar staðarins nota ég leitarvél Google og til dæmis síðuna https://weather-and-climate.com/. Ég skrái meðalhita hvers mánaðar (t.d. í töflu) og merki inn í hvaða mánuði er hæsta hitastig og í hvaða mánuði er lægsta hitastig. Ég vil vita hversu mikil úrkoma er svo ég skoðað meðal úrkomu. Ég finn út í hvaða mánuði er mest úrkoma og hvaða mánuði minnst. Ég skila verkefninu á tölvutækuformi inn á Mentor en ég ræð í hvaða forriti ég vinn (t.d. word, excel, canva, ppt). Áður en ég skila fer ég yfir stafsetningu með hjálp Skramba vinar míns (https://skrambi.arnastofnun.is/).
Viðmið um árangur
Advertisement
o A) Nemandi segir frá hvar húsið er staðsett. o B) Nemandi tilgreinir að minnsta kosti plánetu, heimsálfu og land. o C) Nemandi tilgreinir hvaða tungumál er talað þar. o D) Nemandi setur fram samfélagsgerð og helstu einkenni samfélagsins. o E) Nemandi tekur fram að minnsta kosti 3 flíkur sem eru í fatatísku líðandi stundar. o F) Nemandi tekur fram að minnsta kosti 3 vinsælustu rétti samfélagsins. o G) Nemandi setur fram meðalhita að minnsta kosti 8 mánaða ársins. o H) Nemandi merkir sérstaklega heitasta og kaldasta mánuð ársins. o I) Nemandi merkir í hvaða mánuði er mest úrkoma og í hvaða mánuði minnst. o J) Nemandi svarar spurningunni „Hvaða þættir stjórna veðurfari?“ með að minnsta kosti 3 málsgreinum. o K) Nemandi svarar spurningunni „Hvers vegna verða árstíðaskipti?“ með að minnsta kosti 3 málsgreinum. o L) Nemandi notar að minnsta kosti 3 myndir við framsetningu. o M) Nemandi vinnur verkefnið einn og í tölvu. o N) Nemandi skilar verkefninu með færri en 10 stafsetningarvillum. o O) Nemandi skilar verkefni á réttum tíma.
Skiladagur: 9. nóvember 2022
Um sein skil: Þau sem skila seint hafa ekki möguleika á einkunninni framúrskarandi. Veikindi eða önnur útskýrð fjarvera er að sjálfsögðu tekin til greina. Nemendur geta alltaf samið við kennara um annan skiladag með góðum rökum.